Mynd: Birgir Þór Harðarson

Mestar líkur á að ríkisstjórn verði mynduð upp úr fjórflokknum

Hart er þrýst á myndun rík­is­stjórnar Vinstri grænna, Sjálf­stæð­is­flokks og Fram­sókn­ar­flokks en ljóst að það verður erfitt fyrir Vinstri græn að fall­ast á hana. Þar er vilji til að hafa Sam­fylk­ing­una með eða í stað­inn fyrir Framsókn.

Hver bendir á annan sem orsök þess að upp úr rík­is­stjórn­ar­myndun Vinstri grænna, Sam­fylk­ingar, Fram­sókn­ar­flokks og Pírata slitn­aði snemma í gær. Opinbera skýr­ingin er sú að Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn hafi ekki talið hinn nauma meiri­hluta nægj­an­legan til að takast á við þær áskor­anir sem séu fram undan. Framsókn var samt sem áður ekki til­búin að taka Viðreisn inn í við­ræð­urnar til að breikka þann meiri­hluta. Á það benti Logi Ein­ars­son, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, í stöðu­upp­færslu á Facebook í gær. Þar sagði hann að allan tím­ann „vildi Sam­fylk­ingin styrkja slíkt sam­starf með Viðreisn. Því höfn­uðu Framsókn og þess vegna er það óskilj­an­legt að hún noti tæpan meiri­hluta sem rök fyrir slitum.“

Áhyggjur Fram­sókn­ar­manna beindust, sam­kvæmt heim­ildum Kjarnans, fyrst og síð­ast að Píröt­um, sem þeir töldu að hefðu gefið of mikið eftir í stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræðum og að það myndi skapa vanda gagn­vart bak­landi þeirra þegar liði á kjör­tíma­bil­ið. Þá höfðu ummæli Björns Leví Gunn­ars­sonar, um að hann myndi ekki styðja öll mál rík­is­stjórn­ar­innar skil­yrð­is­laust, sem mikið var gert úr í völdum miðlum, áhrif inn í við­ræð­urnar.

Hjá hinum flokk­unum er sú skýr­ing almenn að Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn hafi ekki gengið í takt í við­ræð­unum. Við­mæl­endur þaðan telja flestir að Ásmundur Einar Daðason hafi sér­stak­lega verið mót­fall­inn því að þessi rík­is­stjórn yrði mynduð. Í ljósi þess að stjórnin hefði ein­ungis haft eins manns meiri­hluta þá nægði and­staða eins þing­manns til að hún gæti ekki orðið að veru­leika.

Aðrir segja að vinnan um helg­ina hafi ein­fald­lega ekki gengið nógu vel. Það hafi ekki verið nóg gert til að kom­ast á þann stað sem nauð­syn­legt væri til að halda áfram við­ræð­unum.

Erfitt að mynda stjórn án Sjálfstæðisflokks

Stjórn­ar­slitin í gær verða að telj­ast tölu­verð von­brigði fyrir Katrín Jak­obs­dóttur, for­mann Vinstri grænna. Hún hefur nú tví­vegis á einu ári fengið stjórn­ar­mynd­un­ar­um­boð og reynt að mynda rík­is­stjórn án Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Í bæði skiptin hefur það mis­tek­ist.

Það skiptir marga í bak­landi Vinstri grænna, og á meðal kjós­enda flokks­ins, miklu máli að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn verði utan rík­is­stjórnar. Nú hafa komið upp tvö tæki­færi til að gera nákvæm­lega það, tæki­færi sem hafi kallað á sjálfs­traust og leið­toga­hæfni, en hvor­ugt gengið eftir. Þótt Katrín njóti enn mik­ils stuðn­ings innan síns flokks eru miklar efa­semd­araddir um frammi­stöðu hennar hjá fólki í öðrum flokkum. Katrín verði að átta sig á því að hún sé enn í lyk­il­stöðu til að ráða hvaða rík­is­stjórn verði mynduð. Og geti ráðið því hvernig hún verði sam­sett.

Það virð­ist ljóst að erfitt verður að mynda rík­is­stjórn án Sjálf­stæð­is­flokks­ins, nema svo ólík­lega vilji til að það tak­ist að end­ur­vekja við­ræð­urnar sem sigldu í strand í gær. Sjálf­stæð­is­menn vilja mynda stjórn með Vinstri grænum og Fram­sókn­ar­flokki og róa að því öllum árum. Þeir kunna manna best að spila þann leik sem nú er í gangi og að skapa þrýst­ing og efa á réttum stöðum til að fá sínu fram­gengt.

Afar ólík­legt er að af slíkri stjórn geti orðið í ljósi þess hversu óvin­sælt það yrði innan Reykja­vík­ur­hluta Vinstri grænna, sem er nú orð­inn sterkasta vígi flokks­ins. Þar er eng­inn vilji til þess að verða þriðja hjólið undir íhalds­samri stjórn með tveimur helstu valda­flokkum lands­ins.

Vilja Samfylkinguna með, sem vill Viðreisn með

Lyk­il­at­riðið frá bæj­ar­dyrum Vinstri grænna þegar kemur að myndun rík­is­stjórnar með Sjálf­stæð­is­flokki er að Sam­fylk­ingin verði hluti af slíkri stjórn. Það er flókið í ljósi þess að Logi Ein­ars­son, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, hefur opin­berað að Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, hafi aldrei nokkru sinni hringt í sig. Og Logi hefur að sama skapi aldrei hringt í Bjarna. Þá sagði Logi það opin­ber­lega þremur dögum fyrir kosn­ingar að hann sæi ekki grund­völl fyrir sam­starfi við Sjálf­stæð­is­flokk.

Það er ekki bara hug­myndin um sam­starf við póli­tískan höf­uð­and­stæð­ing Sam­fylk­ing­ar­innar sem gerir flokk­inn tregan í taumi, heldur líka hug­myndin um veru í sam­starfi með bæði honum og Vinstri grænum. Í augum margra Sam­fylk­ing­ar­manna eru báðir flokk­arnir íhalds­flokkar sem vilja standa vörð um helstu kerfi íslensks sam­fé­lags. Kerfi sem Sam­fylk­ingin vill breyta. Þar er sér­stak­lega átt við land­búnað, sjáv­ar­út­veg og pen­inga­stefnu.

Við­mæl­endur Kjarnans segja því að ein leiðin til að gera hug­mynd­ina meira aðlað­andi fyrir Sam­fylk­ing­una sé að bæta Viðreisn við. Þá yrði til rík­is­stjórn með 38 þing­menn gegn 25 þing­mönnum and­stöð­unnar sem hefði mik­inn styrk til að takast á við þær áskor­anir sem eru fram undan, sér­stak­lega á vinnu­mark­aði. Mál­efna­lega er tölu­verð sam­leið milli Sam­fylk­ingar og Við­reisnar. Og þá yrði til alvöru breið stjórn með vinstri­flokki, miðju­flokki með vinstri áherslur, miðju­flokki með hægri áherslur og loks hægri-/íhalds­flokki.

Ríkisstjórn sem innihéldi bæði Miðflokkinn og Sjálfstæðisflokkinn, með Sigmund Davíð Gunnlaugsson og Bjarna Benediktsson í forystu, þykir afar ólíkleg.
Rík­is­stjórn sem inni­héldi bæði Mið­flokk­inn og Sjálf­stæð­is­flokk­inn, með Sigmund Davíð Gunn­laugs­son og Bjarna Bene­dikts­son í for­ystu, þykir afar ólík­leg.

Per­sónu­lega á Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir gott sam­band við leið­toga allra hinna flokk­anna þriggja. Ljóst er að and­staða harð­kjarn­ans í Sjálf­stæð­is­flokknum, fólk­inu sem hverf­ist í kringum Morg­un­blaðið og valda­öflin sem tengj­ast því, myndi þó verða mikil. Þar er ákaf­legt óþol gagn­vart Viðreisn og ekki mikið minna gagn­vart Sam­fylk­ingu.

„Moggastjórnin“ hótun en ekki talin raunhæfur möguleiki

Sá hópur, og sá fjöl­mið­ill, rær að því öllum árum að hér verði mynduð fjög­urra flokka rík­is­stjórn Sjálf­stæð­is­flokks, Mið­flokks, Fram­sókn­ar­flokks og Flokks fólks­ins. Rík­is­stjórn sem er oft­ast köllum „Mogga­stjórnin“ á meðal ann­arra stjórn­mála­manna í dag.

Þessi rík­is­stjórn þykir þó ekki raun­hæfur mögu­leiki þrátt fyrir að hótun um myndun hennar nýt­ist Sjálf­stæð­is­flokknum vel í að ýta á aðrar sam­setn­ingar. Fyrir því eru nokkrar ástæður.

Sú fyrsta og aug­ljós­asta er að Sigurður Ingi Jóhanns­son, for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, hefur ekki áhuga á að vinna með Sigmundi Davíð Gunn­laugs­syni eftir allt sem á undan hefur gengið þeirra á milli. Hann sagði við mbl.is í gær að hann væri ekki spenntur fyrir ofan­greindri sam­setn­ingu á rík­is­stjórn. Hann hafi „lagt áherslu á að rík­­is­­stjórn í land­inu, til að búa til póli­­tísk­an stöðug­­leika, þurfi breið­ari skír­skot­un. Ég get ekki séð að hún myndi svara því kall­i.“

Sigurður Ingi er ekki einn innan Fram­sóknar með þessa skoðun. Fyrir liggur að Ásmundur Einar Daðason fór fram gegn Gunnar Braga Sveins­syni í Norð­vest­ur­kjör­dæmi m.a. eftir að Gunnar Bragi hafði lent í orða­skaki við Þórólf Gíslason, kaup­fé­lags­stjóra Kaup­fé­lags Skag­firð­inga, og einn mesta áhrifa­mann­inn innan Fram­sókn­ar­flokks­ins á und­an­förnum árum, á opnum fundi í aðdrag­anda kosn­inga. Því skaki lauk með að Þórólfur rauk á dyr.

Í raun sat flokks­for­ysta, og önnur öfl innan Fram­sóknar, undir því að vera ásökuð um mik­inn óheið­ar­leika og atlögu gegn Sigmundi Davíð, af Sigmundi Davíð, mán­uðum saman áður en hann yfir­gaf flokk­inn og stofn­aði Mið­flokk­inn í kringum sína per­sónu. Í kjöl­farið af því sagði Sig­mundur Davíð við Vísi að hann hefði áður reynt að ná sáttum við „flokks­eig­enda­fé­lagið í Framsókn“ og önnur öfl sem vildu hann burt. „Til hvers að berj­ast fyrir því að þú getir starfað áfram með fólki sem lítur á það sem meg­in­mark­mið að drepa þig?,“ bætti hann síðan við. Fleiri aðdrótt­anir komu síðan fram í bréfi sem hann rit­aði flokks­mönnum þegar hann hætti í Fram­sókn­ar­flokknum. Og klauf flokk­inn skömmu fyrir kosn­ingar.

Erfiðar kröfur og aldrei víð skírskotun

Þrátt fyrir þetta tókst Framsókn að vinna varn­ar­sigur og halda sama þing­manna­fjölda. Og flokk­ur­inn er hreinn af inn­an­meinum eftir langvar­andi deilur. Innan Fram­sókn­ar­flokks­ins hefur verið sagt að það komi því ekki til greina að fara aftur „heim til ofbeld­is­manns­ins.“

Þá er ótalið að Flokkur fólks­ins er algjör­lega óskrifað blað í íslenskum stjórn­málum. Þeir sem kosnir voru á þing fyrir hann eiga margir hverjir langa sögu í öðrum stjórn­mála­flokkum og stefnu­skrá flokks­ins þykir mjög yfir­drif­inn. Þar er til að mynda lagt til að inn­greiðslur í líf­eyr­is­sjóði verði skatt­lagðar í stað útgreiðslna eins og er í dag. Það myndi þýða til­færslu á skattfé kom­andi kyn­slóða til þeirra sem nú eru á lífi. Þetta fjár­magn vill Flokkur fólks­ins nota til að „end­ur­reisa stoð­kerfi lands­ins“ og sam­fé­lags­legra verk­efna. Um yrði að ræða tugi millj­arða króna á ári. Þá er það krafa flokks­ins að tryggja að laun upp að 300 þús­und krónum verði skatt­frjáls, með til­heyr­andi tekju­sam­drætti fyrir rík­is­sjóð. Á sama tíma vill flokk­ur­inn auka útgjöld rík­is­sjóðs veru­lega með því að afnema allar skerð­ingar milli almanna­trygg­inga og líf­eyr­is­sjóða, afnema frí­tekju­mark og gera grunn­heil­brigð­is­þjón­ustu að öllu leyti gjald­frjálsa. Erfitt verður að sjá Sjálf­stæð­is­flokk kyngja nokkru þess­ara mála.

Sömu sögu er að segja af Mið­flokknum, sem vill ráð­ast í að kaupa Arion banka af núver­andi eig­endum hans með fjár­magni úr rík­is­sjóði og gefa hann síðan að hluta aftur til almenn­ings.

Þá er auð­vitað ótalið að engin rík­is­stjórn myndi skapa meiri sundr­ungu meðal þjóð­ar­innar en sú sem fjallað er um hér að ofan. Í henni myndu sam­ein­ast þau öfl sem voru ráð­andi í síð­ustu tveimur rík­is­stjórn sem sprungu og þeir stjórn­mála­menn sem eru umdeild­astir á meðal þjóð­ar­innar. Hún næði því aldrei þeim til­gangi að vera breið stjórn með víða skírskotun, líkt og all­flestir stjórn­mála­leið­togar hafa talað fyrir að sé nauð­syn­legt und­an­farnar vikur.

Sundr­ungin í íslensku sam­fé­lagi yrði skýr­ari en aldrei fyrr við myndun slíkrar stjórnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2017

Mest lesið undanfarið ár