Fundu furðudýr á Kötlugrunni

Leið­angrar á vegum Haf­rann­sókn­ar­stofn­unar hafa kannað líf­ríki á hafs­botni til að kanna hvort að grípa þurfi til aðgerða til að vernda botn­líf­verur. Hópurinn fann lif­andi kór­al­rif, akra af sæfjöðrum og botn­dýr sem hóp­ur­inn hefur ekki enn náð að greina.

Leiðangurshópur af vísindamönnum fann furðudýr sem það hafði ekki séð áður á Kötlugrunni. Dýrið er með tvær raðir af öngum, með ferkantaðan fót og ljósfjólublátt á litinn.
Leið­ang­urs­hópur af vís­inda­mönnum fann furðu­dýr sem það hafði ekki séð áður á Kötlu­grunni. Dýrið er með tvær raðir af öngum, með fer­kant­aðan fót og ljós­fjólu­blátt á lit­inn. Mynd: Hafrannsóknarstofnun

Í kringum Ísland eru þekktar yfir 3000 teg­undir af botn­dýrum en aðeins hluti þeirra hefur verið mynd­aður hingað til. Hópur vís­inda­manna fann eitt slíkt dýr, í leið­angri sínum við að kort­leggja búsvæði á hafs­botni, sem hóp­ur­inn hafði ekki séð áður og hefur ekki enn fundið út hvað í raun er. Hvort þetta dýr til­heyri ein­hverri af þekktu tengd­unum eða um hvort að nýja teg­und sé að ræða við Ísland veit hóp­ur­inn ekki.

Ekki vitað hver áhrif súrnun sjávar hefur á botndýr

Leið­ang­ur­inn er hluti af gagna­söfnun Haf­rann­sókn­ar­stofn­unar fyrir langa­tíma­verk­efnið Kort­lagn­ing búsvæði, þar sem ólík búsvæði á hafs­botn­inum við landið eru skil­greind og fjöl­breyti­leiki þeirra skoð­aður. Lagt er mat á hvort um fágæt eða við­kvæm búsvæði sé um að ræða og hvort grípa þurfi til aðgerða til verndar þeim. 

Lífríkið á botni sjávar er stór og mik­il­vægur hluti af líf­keðju hafs­ins og afkomu margra fiska. Ekki hefur hins vegar verið fylgst með því líkt og fisk­stofnum hér á landi. Hvernig botn­líf­verur hafa brugð­ist við auknu hita eða súrnun sjávar er til dæmis ekki vitað.

„Með því að skoða á skipu­lagðan hátt líf­ríkið á botn­inum komumst við nær því að þekkja nátt­úru­legan fjöl­breyti­leika á sjáv­ar­botn­inum við landið, en einnig sjáum við líka áhrif manns­ins á líf­ríkið og umhverfið. Við myndum bæði ósnortin svæði og innan við veiði­slóðir. Valin eru svæði með ólíka botn­gerð og á mis­mun­andi dýpi. Sérstök áhersla er á að leita uppi við­kvæm og fágæt búsvæði eins og kór­al­rif, kór­al­garða og svampa­breiður,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Ánægjulegt að sjá lifandi kóralrif og akra af sæfjöðrum

Í til­kynn­ingu Haf­rann­sókn­ar­stofn­unar segir að ýmis­legt áhuga­vert hafi komið fram á neð­an­sjáv­ar­myndum þegar hópur undir leið­sögn Stein­unnar H. Ólafs­dóttur, sjáv­ar­vist­fræð­ingur á Haf­rann­sókn­ar­stofnun, kann­aði í líf­ríki hafs­botns­ins í júní­lok og byrjun júlí á þessu ári. [adspot]

Í fyrri kort­lagn­inga­leið­öngrum hóps­ins hefur komið í ljós að fjöl­breyti­leiki botn­dýra­lífs er mik­ill víða í land­grunns­kant­inum suður af land­inu og þar eru þegar þekkt kór­al­svæði. Í júní leið­angrinum fann hóp­ur­inn lif­andi kór­al­rif á nokkrum stöðum í bröttum land­grunns­kant­inum og á öðrum stöðum voru akrar af sæfjöðrum sem er ánægju­legt að mati hóps­ins. Þau svæði eru utan við veiðislóð enda í bröttum kant­inum en ofan á kant­inum voru hins vegar dauð kór­al­rif enda er veiði­á­lag þar mikið og kór­al­rifin sem einu sinni voru þar hafa horfið.

Hópurinn mynd­aði alls 70 snið eftir botn­inum í 100 til 700 metra dýpi. Unnið verður úr mynd­unum og öll dýr greind og talin og botn­gerð og rusl og slitin veið­ar­færi skráð. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár