Logi segist „pínu spenntur“ fyrir viðræðunum á morgun

Formaður Sam­fylk­ing­ar­innar seg­ist hlakka til að vinna undir verk­stjórn Pírata í fimm flokka við­ræðum á morgun.

Logi Ein­ars­son, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, seg­ist vera „pínu spenntur fyrir næstu skrefum“ í stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræðum. Flokkur hans er einn þeirra fimm flokka sem funda á morgun undir verk­stjórn Pírata. Logi segir ótta við önnur vinnu­brögð og hræðslu um að ekki tæk­ist að sætta ólík sjón­ar­mið hafi valdið því að flokk­arnir fimm náðu ekki saman í fyrstu atlögu. Logi var við­mæl­andi Krist­jáns Krist­jáns­sonar í þætt­inum Sprengisandi á Bylgj­unni í morgun.

„Við erum komin með nýjan og öfl­ugan stjórn­mála­flokk sem heita Píratar inn á þing. Þau byggja að mörgu leyti á öðrum kúltúr en við erum vön sem höfum starfað í þessum hefð­bundnu stjórn­mála­flokkum. Það á ekki að hræða okkur. Það á að gleðja okkur að það komi inn ný hugsun og nýjar leiðir til þess að nálg­ast verk­efni,“ sagði Logi í þætt­inum. „Ég er pínu spenntur fyrir í raun­inni fyrir næstu skrefum sem verður það hvernig Birgitta og hennar fólk hjá Pírötum halda á málum.“

Sam­fylk­ingin tók þátt í stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræðum Vinstri grænna, Pírata, Við­reisnar og Bjartar fram­tíðar undir verk­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur í síð­asta mán­uði. Þeim við­ræðum var slitið og Katrín skil­aði stjórn­ar­mynd­un­ar­um­boði aftur til Guðna Th. Jóhann­es­sonar, for­seta Íslands. Nokkur sam­hljómur er meðal þeirra þing­manna sem tóku þátt í þessum við­ræðum að ekki hafi verið búið að reyna til þrautar að sætta ólík sjón­ar­mið flokk­anna.

Logi vonar að vinnan verði kláruð við að koma flokk­unum fimm saman sem ætla að hefja stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræður á nýjan leik á morgun. „Það er alltaf vont að labba frá verki og gef­ast upp áður en þú hefur reynt allt sem þú getur. Okkur mun líða betur jafn­vel þó það komi í ljós að við náum ekki saman ef við höfum full­vissu fyrir því.“

Logi telur að ótti við annan kúltúr og annað yfir­bragð ann­ara flokka hafi gert það að verkum að við­ræðum flokk­ana fimm var hætt síð­ast þegar á það sam­starf var reynt. „Og svo á hinn bog­inn var það hræðslan við það að menn næðu ekki saman um mál­efnin.“ Spurður hvað hafi komið honum mest á óvart, ver­andi nýr þing­maður og for­maður stjórn­mála­flokks síðan eftir kosn­ing­arnar 29. októ­ber nefnir Logi tor­tryggni í garð ann­arra. „Það kemur mér pínu á óvart hversu mikil áhrif það hefur, svona hug­lægir hlutir eins og hvernig þér líkar við þennan, tor­tryggni út þennan og slíkir hlutir.“

Búið var að ná „nokkuð skemmti­legri lend­ingu“ í stjórn­ar­skrár­mál­inu að sögn Loga og byrjað var að þreifa á sjáv­ar­út­vegs­málum. „Eftir stendur að allir flokk­arnir lof­uðu gríð­ar­legri upp­bygg­ingu inn­viða og það er nauð­syn­legt. En síðan eru kannski skiptar skoð­anir um með hvaða hætti eigi að fjár­magna þetta. Á milli flokk­ana – lengst til vinstri og lengst til hægri í þessu mynstri – eru bara eðli­lega ólíkar skoð­anir á því. Og við þurfum að mæt­ast ein­hvers staðar á miðri leið.“

Þátttaka Samfylkingarinnar ekki ólýðræðisleg

Logi var kjör­inn vara­for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar á síð­asta lands­fundi flokks­ins þegar Oddný Harð­ar­dóttir var kjör­inn for­maður. Eftir kosn­inga­ó­sigur flokks­ins 29. októ­ber síð­ast­lið­inn sagði Oddný af sér sem for­maður en situr enn sem þing­maður úr Suð­ur­kjör­dæmi. Logi varð þess vegna for­maður flokks­ins strax í vik­unni eftir að hafa hlotið kjör á Alþingi í fyrsta sinn.

Oddný hafði sagt strax eftir að úrslit kosn­ing­anna voru ljós að Sam­fylk­ingin myndi ekki geta setið í rík­is­stjórn með svo lítið fylgi miðað við úrslit fyrri Alþing­is­kosn­inga. Eftir að Logi varð for­maður hefur afstaða flokks­ins breyst. Hann segir Oddnýju aðeins hafa farið fram úr sér í hita leiks­ins.

„Ég held að hún [Oddný] hafi látið þessi orð falla svona eftir þetta þung högg sem við fengum. Það held ég að flestir hefðu gert í hita augna­bliks­ins. En síðan þegar við fórum að skoða stöð­una og mögu­leik­ana þá sáum við strax að þetta yrði flókið og hinn minnst bútur gæti skipt máli í þessu sam­hengi. Það hefur svo komið á dag­inn.“

Loga þykir það ekki ólýð­ræð­is­legt að Sam­fylk­ingin, með svo lítið fylgi á lands­vísu, komi að myndun rík­is­stjórnar. „Á end­anum skiptir það máli að það verði til starf­hæfur meiri­hluti á þing­inu og þá eru þing­menn taldir en ekki endi­lega fylgi flokk­anna,“ segir hann.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár