Bankastjóri Landsbankans segir að söluferli Borgunar yrði opið í dag

Lands­bank­inn fékk gott verð fyrir 31,2 pró­sent hlut sinn í Borgun og verð­matið byggði á bestu fáan­legu upp­lýs­ingum sem bank­inn gat kom­ist yfir á þeim tíma. Stjórn­endur Lands­bank­ans hafa hins­vegar hlustað á og tekið mark á gagn­rýni á sölu­ferlið á Borgun. Ef bank­inn verður aftur í „sömu eða svip­aðri aðstöðu munum við fara öðru­vísi að og hafa sölu­ferlið opið.“ Þetta er meðal þess sem kemur fram í aðsendri grein eftir Steinþór Pálsson, banka­stjóra Lands­bank­ans, sem birt­ist í Morg­un­blað­inu í dag.

Þar segir hann einnig að ef Fjár­mála­eft­ir­litið ákveði að rann­saka sölu Lands­bank­ans á hlut sínum í Borgun, sem fór fram fyrir luktum dyrum í nóv­em­ber 2014, þá geti bank­inn enga athuga­semd við það. Stjórn­endur bank­ans muni einnig skýra málið fyrir nefnd Alþingis verði þess óskað.

Steinþór segir einnig að það hafi verið ann­mörkum háð að efna til opins sölu­ferlis á hlutnum í Borgun. Lands­bank­inn hefði haft lít­inn aðgang að upp­lýs­ingum um fyr­ir­tækið og því hafi hann metið að erfitt yrði að tryggja eðli­lega upp­lýs­inga­gjöf og aðgengi ann­arra hugs­an­legra til­boðs­gjafa en stjórn­enda að gögnum til að vinna áreið­an­leikakann­anir. Því sé bæði óvíst að betra verð hefði feng­ist fyrir hlut­inn með þeim hætti eða að staða bank­ans gagn­vart mögu­legum við­bót­ar­greiðslum hefði orðið önnur.

Viðskiptavit starfsfólk bankans ekki lítið

Nýr kafli var skrif­aður í hina umdeildu sölu á hlut Lands­bank­ans á 31,2 pró­sent hlut í Borgun í vik­unni. Þá var opin­berað í íslenskum fjöl­miðlum að Borgun og Valitor, íslensk greiðslu­korta­fyr­ir­tæki sem gefa m.a. út Visa-greiðslu­kort, mun hagn­ast um á annan tug millj­arða króna vegna kaupa Visa Inc. á Visa Europe. Fyr­ir­tækin munu bæði fá hlut­deild í 3.000 millj­arða króna sölu­virði Visa Europe. Kaup Visa Inc. á Visa Europe höfðu verið yfir­vof­andi árum saman og þegar að Lands­bank­inn seldi hlut sinn í Borgun á 2,2 millj­arða króna til hóps stjórn­enda fyr­ir­tæk­is­ins og með­fjár­festa þeirra þá lá fyrir vilja­yf­ir­lýs­ing um að gana frá kaup­unum. Samt var ekki gerð nein krafa um við­bót­ar­greiðslur frá nýjum eig­endum á hlut Lands­bank­ans í Borgun ef af kaupum Visa Inc. á Visa Europe yrði. Þetta hefur verið harð­lega gagn­rýnt und­an­farna daga og á Alþingi hefur verið kallað eftir rann­sókn á mál­inu. Sú gagn­rýni bæt­ist við mikla gagn­rýni sem kom fram eftir að Kjarninn upp­lýsti seint í nóv­em­ber 2014 að hlutur rík­is­bank­ans í Borgun hefði verið seldur í ógagn­sæju ferli fyrir verð sem margir telja allt of lágt. Sú gagn­rýni jókst örfáum mán­uðum síðar þegar Borgun greiddi eig­endum sínum 800 millj­ónir króna í arð vegna frammi­stöðu árs­ins 2014.

Steinþór svarar gagn­rýn­inni í grein sinni í Morg­un­blað­inu. Þar hafnar hann því að skortur á samn­ingi um við­bót­ar­greiðslur við Borgun sé til marks um lítið við­skipta­vit starfs­fólks Lands­bank­ans. Það megi vissu­lega færa rök fyrir því, í ljósi þess hversu vel hafi gengið hjá Borgun í fyrra, að rétt hefði verið að bíða með söl­una. „Slík rök eiga á hinn bóg­inn við í nán­ast öllum hluta­bréfa­við­skiptum og má t.d. benda á að mörg félög í íslensku kaup­höll­inni hafa hækkað um meira en 50% á rúm­lega ári. Slíkt sáu fáir fyrir, eins og eðli­legt er.

Skýr­ingin á því að ekki var gerður samn­ingur um við­bót­ar­greiðslur við Borgun, líkt og gert var varð­andi Valitor, er í stuttu máli sú að við­skipti Lands­bank­ans við fyr­ir­tækin voru og eru gjör­ó­lík. Borgun hafði fyrst og fremst ann­ast útgáfu Mastercard-korta á Íslandi og Lands­bank­inn hafði aldrei gefið út Visa-kort hér á landi fyrir milli­göngu Borgunar. Þar með hafði Lands­bank­inn ekki rök eða for­sendur til greiðslna sam­kvæmt fyrr­nefndum val­rétti, líkt og í til­felli Valitor.“

Útrás Borgunar áhættusöm

Steinþór segir ástæðu þess að Borgun hafi gengið jafn vel og raun ber vitni í fyrra útrás fyr­ir­tæk­is­ins. Það hafi legið fyrir þegar bank­inn mat virði Borgunar í tengslum við söl­una að sú útrás væri framundan. Bankinn taldi hana áhættu­sama. „Við­skipti sem þessi heppn­ast ekki alltaf. Lands­bank­inn taldi sér ekki hag í að taka þessa áhættu, enda hefur bank­inn frá end­ur­reisn 2008 mark­visst reynt að draga úr áhættu sinni, m.a. með sölu á hluta­bréfum. Við söl­una á eign­ar­hlutnum í Borgun lá ekki fyrir að hvaða marki áformin um aukin erlend við­skipti yrðu í sam­starfi við Visa eða við önnur erlend korta­fyr­ir­tæki. Samkvæmt þeim upp­lýs­ingum sem Lands­bank­inn hefur fengið byggj­ast greiðslur til Borgunar vegna val­rétt­ar­ins að mestu leyti á erlendum Visa-umsvifum fyr­ir­tæk­is­ins eftir að Lands­bank­inn seldi hlut sinn.[...]Við í Lands­bank­anum sáum ekki fyrir að Borgun fengi svona háar við­bót­ar­greiðslur vegna sam­runa Visa Europe og Visa Inc. eins og nú stefnir í, enda bygg­ist sú fjár­hæð að mestu á umsvifum fyr­ir­tæk­is­ins eftir að við seldum. Á hinn bóg­inn er ljóst að hefði útrás Borgunar endað illa hefði bank­inn getað tapað miklum fjár­munum. Við­skiptum fylgir áhætta. Okkar verð­mat byggð­ist á bestu fáan­legum upp­lýs­ingum á þeim tíma.“

Samkeppniseftirlitið sagði bankanum aldrei að selja

Steinþór segir einnig að bank­arnir hafi verið undir miklum þrýst­ingi frá Sam­keppn­is­eft­ir­lit­inu um að breyta eign­ar­haldi á korta­fyr­ir­tækj­unum þannig að aðeins einn banki kæmi að hverju fyr­ir­tæki.

Sam­keppn­is­eft­ir­litið hafn­aði því í til­kynn­ingu í gær að það hafi sett Lands­bank­anum tíma­mörk eða önnur bind­andi skil­yrði varð­andi fyr­ir­komu­lag á sölu eign­ar­hluta bank­ans í Borgun.„Sala Lands­bank­ans á hlutum sínum í Borgun og Valitor og til­högun hennar var því alfarið á for­ræði og á ábyrgð Lands­bank­ans." Eft­ir­litið setti því aldrei skil­yrði um að Lands­bank­inn myndi selja sig út úr Borgun.

Til­kynn­ingin var send vegna ummæla Stein­þórs Páls­sonar í fjöl­miðlum, en hann hafði þar meðal ann­ars vísað til krafna og þrýst­ings sem Sam­keppn­is­eft­ir­litið hafi sett á bank­ann í rök­stuðn­ingi fyrir sölu á hlutnum í Borgun á þeim tíma sem hann var seldur.

Í til­kynn­ing­unni sagði einnig að ummæli Stein­þórs í Frétta­blað­inu í gær, um að bank­inn hafi haft tak­markað aðgengi að upp­lýs­ingum um Borgun vegna sáttar við Sam­keppn­is­eft­ir­litið hafi ekki verið rétt. Eft­ir­litið sagð­ist ekki geta fall­ist á „að ráð­staf­anir eft­ir­lits­ins hafi haft áhrif á skil­mála eða við­skipta­kjör umræddrar sölu."

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár