Þjónustusvipting Útlendingastofnunar ekki með stoð í lögum

Kæru­nefnd útlend­inga­mála hefur kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að ákvörðun Útlend­inga­stofn­unar um að hætta að veita umsækj­endum um alþjóð­lega vernd þjón­ustu ef þeir gang­ist ekki undir PCR-próf hafi ekki stoð í lögum.

Fimm ungir menn sem Kjarninn ræddi við fyrir utan húsakynni Útlendingastofnunar í síðasta mánuði. Rauði krossinn telur úrskurðinn í dag hafa forsdæmisgildi fyrir hina þrettán sem sviptir voru þjónustu.
Fimm ungir menn sem Kjarninn ræddi við fyrir utan húsa­kynni Útlend­inga­stofn­unar í síð­asta mán­uði. Rauði kross­inn telur úrskurð­inn í dag hafa fors­dæm­is­gildi fyrir hina þrettán sem sviptir voru þjón­ustu. Mynd: Sunna Ósk Logadóttir

Kæru­nefnd útlend­inga­mála felldi í dag úr gildi ákvörðun Útlend­inga­stofn­unar um að fella niður þjón­ustu umsækj­anda um alþjóð­lega vernd hér á landi, sökum þess að sá hinn sami vildi ekki und­ir­gang­ast PCR-próf.

Eitt mál af þessum toga var kært til kæru­nefnd­ar­innar og segir í úrskurði hennar, sem Kjarninn hefur undir höndum, að ekki verði séð að Útlend­inga­stofnun hafi haft heim­ild í lögum til þess að beita sér með þeim hætti sem hún gerði.[links]

„Ákvörðun Útlend­inga­stofn­unar, dags. 18. maí 2021, um að fella niður þjón­ustu við kær­anda er felld úr gildi,“ segir í úrskurð­ar­orðum kæru­nefnd­ar­innar.

Áshildur Linnet, teym­is­stjóri hjá Rauða kross­inum, segir í sam­tali við Kjarnann að þetta ætti að hafa for­dæm­is­gildi fyrir alla þá ein­stak­linga sem hafa verið sviptir þjón­ustu af hálfu Útlend­inga­stofn­unar að und­an­förnu. Þeir eigi þá rétt á að kom­ast aftur í búsetu­úr­ræði á vegum stofn­un­ar­innar, eftir að hafa verið kastað á dyr fyrir um mán­uði síðan.

„Við fögnum þess­ari nið­ur­stöðu enda er hún í sam­ræmi við túlkun okkar á þess­ari heim­ild í útlend­inga­lögum og reglu­gerð um útlend­inga,“ segir Áshildur.

Hún segir að Rauði kross­inn hafi þegar sett sig í sam­band við Útlend­inga­stofnun og að sam­tökin von­ist til þess að allir þeir ein­stak­lingar sem verið hafa sviptir þjón­ustu á und­an­förnum vikum kom­ist aftur inn í búsetu­úr­ræði strax í dag, en fjöldi þeirra er hátt á annan tug.

Úrskurðurinn hafi áhrif á alla í sömu stöðu

„Þetta var gagn­vart umbjóð­anda sem að nýtti rétt sinn til að synja lík­ams­rann­sókn þegar sú lík­ams­rann­sókn var hluti af því ferli að koma við­kom­andi úr landi og tengd­ist lýð­heilsu­sjón­ar­miðum ekki með nokkrum hætti heldur var ein­ungis liður í því að geta fram­kvæmt brott­vísun á við­kom­andi aðila,“ segir Magnús Norðdahl lög­maður manns­ins sem hafði betur í mál­inu í dag, um nið­ur­stöðu kæru­nefnd­ar­innar í mál­inu.

[adspot]

„Þessir aðilar vildu koma í veg fyrir sínar eigin brott­vísun eins og gengur og ger­ist, það fer eng­inn sjálf­vilj­ugur úr landi þegar hann er að flýja lífs­hættu­legar aðstæður. Útlend­inga­stofnun refs­aði þessum hópi með því að svipta hús­næði og fæði. Við sögðum að það væri ólög­mætt og nú hefur kæru­nefnd útlend­inga­mála fellt úr gildi þessa ákvörðun Útlend­inga­stofn­unar að svipta umbjóð­anda okkar hús­næði og fæði með þessum hætti. Þetta hefur auð­vitað áhrif á alla þá aðila sem í sömu stöðu eru,“ segir Magnús enn­fremur, í sam­tali við Kjarnann.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Útlendingamál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár