Umhverfisráðherra vanhæfur til að fara með mál Landverndar

Svandís Svav­ars­dóttir heil­brigð­is­ráð­herra verður settur ráð­herra til að fara með til­tekin mál á ábyrgð­ar­sviði Guð­mundar Inga Guð­brands­sonar umhverfis- og auð­linda­ráð­herra er varða Land­vernd á þeim grund­velli að hann sé van­hæfur.

Guðmundur Ingi Guðbrandsson er umhverfis- og auðlindaráðherra.
Guð­mundur Ingi Guð­brands­son er umhverfis- og auð­linda­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra hyggst leggja það til við for­seta Íslands að Svandís Svav­ars­dóttir heil­brigð­is­ráð­herra verði settur ráð­herra til að fara með til­tekin mál á ábyrgð­ar­sviði Guð­mundar Inga Guð­brands­sonar umhverfis- og auð­linda­ráð­herra er varða Land­vernd á þeim grund­velli að hann sé van­hæfur til að fara með málin. Guð­mundur hefur ákveðið að víkja á grund­velli stjórn­sýslu­laga, sem kveða á um að ef fyrir hendi eru aðstæður sem séu til þess fallnar að draga óhlut­drægni hans í efa með réttu beri honum að víkja, þar sem hann hafi á þeim tíma sem málin bár­ust ráðu­neyt­inu gegnt stöðu fram­kvæmda­stjóra félags­ins.

Um er að ræða fjögur mál:

  1. Erindi Land­verndar, dags. 23. maí 2017, þar sem skortur á eft­ir­liti Umhverf­is­stofn­unar með fram­kvæmdum Lands­nets hf., við lagn­ingu háspennu­línu frá Kröflu, Þeista­reykjum að Bakka, er kærður.
  2. Erindi Land­verndar, dags. 12. sept­em­ber 2017, þar sem farið er fram á að umhverfis- og auð­linda­ráðu­neytið fjalli um lög­mæti álits Skipu­lags­stofn­unar um mat á umhverf­is­á­hrifum Hval­ár­virkj­unar.
  3. Umsóknir Land­verndar til umhverfis- og auð­linda­ráðu­neytis um verk­efna­styrki, dags. 18. – 22. nóv­em­ber 2017, ásamt umsóknum ann­arra aðila um styrk­ina.
  4. Erindi nokk­urra eig­enda Reykja­hlíðar í Mývatns­sveit, dags. 8. des­em­ber 2017, um fyr­ir­hug­aðar frið­lýs­ingar á jörð­inni.

Ekki er um að ræða mál sem snýr að fyrr­ver­andi aðstoð­ar­manni Guð­mundar, Sifjar Kon­ráðs­dóttur, sem hætti á dög­unum. Þar hefur Umhverf­is­stofnun sent ráðu­neyt­inu friðun jarð­ar­innar Hóla í Öxnadal. Sif er eig­andi jarð­ar­innar ásamt maka sínum. Þau fóru fram á að jörðin yrði frið­lýst, en þau hafa stundað skóg­rækt og fleira á jörð­inni. Vísir greindi fá mál­inu um dag­inn en ástæða þess að þau fóru fram á firð­lýs­ingu er meðal ann­ars til að tor­velda lagn­ingu Blöndulínu 3 sem á að fara yfir jörð þeirra. Þau hafa kært og gert athuga­semdir við lagn­ingu lín­unnar allt frá árinu 2013.

Í sam­tali við Vísi sagð­ist Sif ekki telja að Guð­mundur væri van­hæfur til að taka ákvörðun um frið­lýs­ing­una þó hún væri þá aðstoð­ar­maður hans og þannig und­ir­maður hans.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár