Sex konur stjórna í 50 stærstu fyrirtækjum landsins

Sex af 50 stærstu fyr­ir­tækjum lands­ins er stýrt af konum. Það gera tólf pró­sent. Hlut­fallið í fjár­mála­kerf­inu er 9% og hjá rík­is­stofn­unum 39%.

Sex konur eru æðstu stjórn­endur í 50 stærstu fyr­ir­tækjum lands­ins. Þetta leiðir könnun Kjarnans í ljós, en stuðst var við upp­lýs­ingar frá Keldunni um stærstu fyr­ir­tæki lands­ins og stjórn­endur þeirra. Samkvæmt því eru því konur tólf pró­sent æðstu stjórn­enda hjá stærstu fyr­ir­tækjum lands­ins.

Meðal tíu stærstu fyr­ir­tækja lands­ins eru tvær konur í æðstu stöðum, ef Lilja Björk Ein­ars­dóttir, verð­andi banka­stjóri Lands­bank­ans, er talin með. Hin konan þar er Birna Ein­ars­dóttir, banka­stjóri Íslands­banka.

Rannveig Rist, fram­kvæmda­stjóri Rio Tinto Alcan, og Brynja Hall­dórs­dóttir, fram­kvæmda­stjóri Norvíkur, eru einu tvær kon­urnar í for­svari hjá fyr­ir­tækj­unum í 11. til 20. sæti.

Engin kona er í for­svari fyrir fyr­ir­tækin sem eru í 21. til 30. sæti yfir stærstu fyr­ir­tæki lands­ins. Í 31. til 40. stærstu fyr­ir­tækj­unum er ein kona í for­svari, en það er Erna Gísla­dóttir, fram­kvæmda­stjóri BL. Hrund Rud­olfs­dóttir er fram­kvæmda­stjóri Veritas Capital og hún er eina konan í for­svari fyrir fyr­ir­tækin sem rað­ast í 41. til 50. sæti yfir stærstu fyr­ir­tæki lands­ins.

Sum þeirra fyr­ir­tækja sem telj­ast til fimm­tíu stærstu fyr­ir­tækja lands­ins voru einnig tekin fyrir í nýlegri úttekt Kjarnans á hlut­falli kvenna í æðstu stöðum í fjár­mála­kerf­inu á Íslandi. Kjarninn hefur síð­ast­liðin fjögur ár gert úttekt á stöðu kvenna á meðal æðstu stjórn­enda við­skipta­banka, spari­sjóða, líf­eyr­is­sjóða, skráðra félaga, félaga á leið á markað, óskráðra trygg­inga­fé­laga, lána­fyr­ir­tækja, verð­bréfa­fyr­ir­tækja og –miðl­ana, fram­taks­sjóða, orku­fyr­ir­tækja, greiðslu­stofn­ana, Kaup­hallar og lána­sjóða. Úttektin nær til æðsta stjórn­anda hvers fyr­ir­tækis eða sjóðs. Nið­ur­staðan í ár, sam­kvæmt úttekt sem fram­kvæmd var í febr­úar 2017, er sú að æðstu stjórn­endur í ofan­greindum fyr­ir­tækjum séu 88 tals­ins. Af þeim eru 80 karlar en átta konur. Það þýðir að 91 pró­sent þeirra sem stýra pen­ingum á Íslandi eru karlar en níu pró­sent konur.

Einn af hverjum fjórum stjórnarmönnum konur

Hlutfall kvenna í stjórnum var 25,9 pró­sent í lok árs 2015, þegar öll fyr­ir­tæki sem greiða laun og voru skráð í hluta­fé­laga­skrá voru skoðuð sam­kvæmt tölum Hagstofu Íslands. Hlut­fallið hafið verið á bil­inu 21,3 til 22,3 pró­sent á árunum 1999 til 2006 og því hefur það farið hækk­andi frá árinu 2007. En samt sem áður er ein­ungis um einn af hverjum fjórum stjórn­ar­mönnum í íslenskum fyr­ir­tækjum konur.

Mark­að­ur­inn, fylgi­blað Frétta­blaðs­ins um efna­hags­mál og við­skipti, fékk Creditinfo nýverið til að taka saman upp­lýs­ingar um hlut­fall kvenna í fram­kvæmda­stjóra­stöðum stórra fyr­ir­tækja, sem áttu eignir yfir einn millj­arð króna. Í nið­ur­stöð­unum kom fram að hlut­fall þeirra hafi lækkað á milli áranna 2014 og 2016. Um þrettán pró­sent stjórn­ar­for­manna fyr­ir­tækj­anna voru konur. Til stórra fyr­ir­tækja telj­ast alls 857 félög.

Á fyrra árinu voru konur tíu pró­sent fram­kvæmda­stjóra stórra fyr­ir­tækja en tveimur árum síðar ein­ungis níu. Hjá með­al­stórum fyr­ir­tækjum, sem áttu eignir frá 200 millj­ónum króna og upp í millj­arð króna, var hlut­fall kvenna sem stýrðu tólf pró­sent. Alls voru átján pró­sent stjórn­ar­for­manna milli­stórra fyr­ir­tækja konur. Til þeirra töld­ust alls 1.866 félög.

Kjarninn greindi einnig nýlega frá því að konur eru nú 39 pró­sent for­stöðu­manna hjá stofn­unum rík­is­ins, en hlut­fallið hefur hækkað úr 37 pró­sentum í fyrra og 29 pró­sentum árið 2009.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár