39% forstöðumanna hjá ríkinu eru konur

Hlutfall kvenna í stöðum for­stöðu­manna hjá rík­inu hefur hækkað úr 29 pró­sentum í 39 pró­sent frá árinu 2009. For­stöðu­mönnum hefur á sama tíma fækkað um ríf­lega 50.

Konur eru 39 pró­sent for­stöðu­manna hjá stofn­unum rík­is­ins. Hlut­fallið hefur hækkað úr 37 pró­sentum í fyrra og 29 pró­sentum árið 2009. Þetta kemur fram í frétta­bréfi stjórn­enda rík­is­stofn­ana, sem kom út í vik­unni.

For­stöðu­menn hjá rík­inu voru 154 í jan­úar á þessu ári, og hafði fækkað um tvo á einu ári. Það skýrist af því að Haf­rann­sókna- og Veiði­mála­stofnun sam­ein­uð­ust í eina stofnun og Lög­reglu­skóli rík­is­ins var lagður niður. Körlum fækk­aði um fjóra og konum fjölg­aði um tvær.

Konur eru nú sam­tals 60 tals­ins meðal 154 for­stöðu­manna hjá rík­inu. Allar stofn­anir rík­is­ins eru með­taldar í kynja­bók­hald­inu, að und­an­skildum stofn­unum utan fram­kvæmda­valds­ins, Alþingi, stofn­unum þess og dóm­stólum.

For­stöðu­mönnum hefur fækkað úr 207 árið 2009 í 154 á þessu ári.

Þegar kynja­hlut­föllin eru skoðuð eftir ráðu­neytum sést að jöfn­ust eru þau undir for­sæt­is­ráðu­neyt­inu og mennta- og menn­ing­ar­mála­ráðu­neyt­inu. Í for­sæt­is­ráðu­neyt­inu er hlut­fall kvenna sem for­stöðu­manna 50% og í mennta­mála­ráðu­neyt­inu 48%. Í vel­ferð­ar­ráðu­neyt­inu er hlut­fallið 41%.

Í inn­an­rík­is­ráðu­neyt­inu er hlut­fall kvenna 39%, í atvinnu­vega­ráðu­neyt­inu og umhverfis- og auð­linda­ráðu­neyt­inu 27% og hjá fjár­mála­ráðu­neyt­inu 23%. Í utan­rík­is­ráðu­neyt­inu er hlut­fall kvenna 0%, en eini for­stöðu­mað­ur­inn undir því ráðu­neyti er ráðu­neyt­is­stjór­inn, sem er karl.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár