„Getum ekki með góðri samvisku stigið á svið“

Fimm vin­sælir flytj­endur, Retro Stefson, Úlfur Úlfur, Agent Fresco, Emmsjé Gauti og Sturla Atlas, hætta við að spila á Þjóð­há­tíð í Vest­manna­eyjum nema verk­lagi og orð­ræðu verði breytt og það strax.

Fimm hljóm­sveitir sem voru á dag­skrá Þjóð­há­tíðar í Vest­manna­eyjum ætla að hætta við að spila vegna orð­ræðu og verk­lags Páleyjar Borg­þórs­dóttur, lög­reglu­stjóra, nema taf­ar­laust komi til skýrrar stefnu­breyt­ingar frá bæj­ar­yf­ir­völdum og lög­reglu.

Þetta kemur fram í yfir­lýs­ingu frá hljóm­sveit­unum og tón­list­ar­mönn­unum Retro Stefson, Úlfi Úlfi, Agent Fresco, Emmsjé Gauta og Sturlu Atlas . 

„Við getum ekki með góðri sam­visku stigið á svið meðan yfir­völd í Vest­manna­eyjum taka á málum með þeim hætti sem birst­ist okkur,“ segir Unn­steinn Manuel Stef­áns­son, söngv­ari í Retro Stefson, í sam­tali við Stundina.

Yfir­lýs­ingu hljóm­sveit­anna, sem upp­haf­lega var lesin upp í mynd­skeiði á vef RÚV, má lesa í heild hér að neðan með leyfi tón­list­ar­mann­anna:

Okkur blöskra við­brögð yfir­valda í Vest­mann­eyjum við háværum kröfum sam­fé­lags­ins und­an­farna daga. Þjóð­há­tíð í Vest­manna­eyjum er frá­bær hátíð en kyn­ferð­is­brot á aldrei að þagga niður.

Þjóð­há­tið, Vest­mann­ey­ingar og við öll eigum að úthýsa kyn­ferð­is­of­beldi með öllum til­tækum ráðum.

Í ljósi orð­ræðu og verk­lags lög­reglu­stjór­ans í Vest­mann­eyjum und­an­farna daga sem gengur þvert á þögg­un­ar­um­ræð­una sem hefur átt sér stað und­an­farin ár í íslensku sam­fé­lagi, sjáum við okkur ekki annan kost í stöð­unni en að draga okkur úr dag­skrá Þjóð­há­tíðar í ár nema skýr stefnu­breyt­ing komi frá bæj­ar­yf­ir­völdum og lög­reglu­stjóra og það strax.

Við getum ekki, sem flytj­endur og lista­menn á þess­ari hátið, komið fram vit­andi það að ein­hverjir úr áhorf­enda­sk­ar­anum verði fyrir kyn­ferð­is­of­beldi ef að bæj­ar­yf­ir­völd og lög­reglu­stjór­inn í Vest­mann­eyjum hafa ekki gert allt sem í þeirra valdi stóð til að koma í veg fyrir það.

Okkar krafa er sú að lög­reglu­yf­ir­völd í Vest­mann­eyjum temji sér þau vinnu­brögð sem Lands­spít­al­inn og Stígamót telji vera æski­leg­ust.

Og þá tala ég fyrir hönd eft­ir­far­andi hljóm­sveita:
Retro Stefson, Úlfur Úlfur, Agent Fresco, Emmsjé Gauti og Sturla Atlas.
Kær kveðja Strák­arnir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Þjóðhátíð

InnlentÞjóðhátíð

Þjóð­há­tíð­ar­nefnd ákveðin að halda hátíð­ina síðar í sumar

Þjóð­há­tíð í vest­manna­eyjum verður haldin í sumar þrátt fyrir hertar sótt­varn­ar­að­gerðir. Þjóð­há­tíð­ar­nefnd ætlar að bíða í nokkrar vikur og stefnir á að halda hátíð­ina síðar í sumar. Nú er orðið ljóst að Þjóð­há­tíðin fer ekki fram um næstu helgi, Versl­un­ar­manna­helg­ina eins og alla­jafna. Hertar sótt­varn­ar­að­gerðir koma í veg fyrir að svona fjöl­menn hátíð geti farið fram. Þjóð­há­tíð­ar­nefnd sendi frá sér...
InnlentÞjóðhátíð

Svona verður veðrið á Þjóð­há­tíð

Það stytt­ist í Þjóð­há­tíð í Vest­manna­eyjum sem sett verður 30. júlí í Herj­ólfs­dal. Eftir frekar þungt sumar „sunn­an­lands“ eru margir að spá í hvernig veðrið verði á Þjóð­há­tíð, sem dregur árlega til sín þús­undir skemmt­ana­þyrstra gesta. Ef rýnt er í lang­tíma­veð­ur­spár virð­ist dæmið líta vel út; Þurrt að kalla verður á fimmtu­deg­inum 29. júlí – en þá fer fram hið...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár