Atvinnuleysi minnkar á milli mánaða

Atvinnu­leysi í mars mæld­ist 2,9 pró­sent og minnk­aði á milli mán­aða. Þetta kemur fram í nýjum tölum frá Hag­stof­unni.

Atvinnu­þát­taka í mars var 1,9 pró­sent meira í mars en í febr­úar og var í heild­ina 82,7 pró­sent. Atvinnu­leysi lækk­aði um 0,3 pró­sent á milli mán­aða og er nú 2,9 pró­sent. Þetta kemur fram í árs­tíða­leið­réttum tölum Hag­stof­unnar. Sam­an­burður á mars 2019 og 2018 sýnir að starf­andi fólki fjölg­aði um fjögur þús­und og lækk­aði hlut­fallið um 0,1 pró­sent. Atvinnu­lausir í mars síð­ast­liðnum voru aftur á móti 1400 fleiri en sama mánuð í fyrra.

Sé hins vegar litið til sein­ustu sex mán­uða lækk­aði hlut­fall starf­andi á vinnu­mark­aði lít­il­lega og atvinnu­leysi jókst. Alls eru nú sex þús­und ein­stak­lingar atvinnu­lausir og eru áber­andi fleiri karlar atvinnu­lausir en konur. 3900 karlar voru atvinnu­lausir í mars, á móti 2100 konum. Á móti kemur að tæp­lega fjórtán þús­und fleiri karlar á vinnu­mark­aði á Íslandi en konur. Alls eru tæp­lega 210 þús­und ein­stak­lingar á íslenskum vinnu­mark­aði í dag.[adspot]

Áhrif af falli WOW Air ekki komin fram

Eftir að WOW Air varð gjald­þrota hefur verið bent á að atvinnu­leysi gæti auk­ist og virkj­aði Vinnu­mála­stofnun til að mynda við­bragð­steymi til að þjón­usta það fólk sem missti starf sitt við fall félags­ins. Þá hefur einnig verið bent á að störf hjá fyr­ir­tækjum sem þjón­u­st­uðu WOW Air væru í hættu, auk þess sem við­búið væri að störfum gæti fækkað í ferða­þjón­ust­unni.

[links]Þessar tölur Hag­stof­unnar ná hins­vegar ein­ungis fram til mars og því koma áhrifin af falli WOW Air ekki fram í þeim, en Unnur Sverr­is­dóttir sagði í við­tali við Rík­is­út­varpið að ótt­ast væri að á milli eitt til tvö þús­und gætu misst vinn­una. Kjarninn greindi frá því nýverið að grein­ing­ar­fyr­ir­tækið Analytica til­tæki að óvissan í ferða­þjón­ust­unni væri meðal þeirra þátta sem helst ógn­uðu hag­vexti á Íslandi.

Atvinnuþáttaka mest á Íslandi

Samkvæmt tölum OECD frá lok árs 2018 var hlut­fall ein­stak­linga á vinnu­mark­aði hæst á Íslandi af löndum OECD ríkj­anna en næsta ríki á eftir Íslandi var Sviss. Þá var Ísland með lang­mestu atvinnu­þátt­tök­una af Norð­ur­lönd­unum en sam­kvæmt fyrr­nefndum tölum OECD var atvinnu­þátt­taka rúm­lega sjö pró­sentum meiri á Íslandi en í Svíþjóð, Danmörku og Noregi, og tólf pró­sentu­stigum meiri en í Finn­landi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár