Eign í skattaskjóli ósamrýmanlegt trúnaðarstörfum Samfylkingarinnar

Formaður Sam­fylk­ing­ar­innar segir það ekki sam­rým­ast trún­að­ar­störfum flokks­ins að eiga eign í skatta­skjóli. Gjald­keri Sam­fylk­ing­ar­innar á félag í Lúx­em­borg og segir það að fullu skatt­lagt.

Árni Páll Árnason og Vilhjálmur Þorsteinsson.
Árni Páll Árnason og Vil­hjálmur Þor­steins­son.

Vil­hjálmur Þor­steins­son, gjald­keri Sam­fylk­ing­ar­innar og einn hlut­hafi Kjarnans, greindi frá því á Facebook að hann eigi félag í Lúx­em­borg, í sam­hengi við fréttir af aflands­fé­lögum sem tengst hafa þremur ráð­herrum rík­is­stjórn­ar­innar. Lúx­em­borg er þó ekki skil­greind sem skatta­skjól. Vil­hjálmur segir það ekk­ert leynd­ar­mál að hann eigi félag í land­inu.

„Það er full­skatt­lagt félag sem greiðir 21, 84% tekju­skatt. Skattar eru ekki ástæðan fyrir því að ég vil hafa félagið þar, heldur krónan, gjald­eyr­is­höftin og póli­tísk og efna­hags­leg áhætta á Íslandi. Ef við værum í ESB væri engin ástæða til að hafa félagið erlendis. Hlutir mínir í sprota­fyr­ir­tækjum hér inn­an­lands eru hins vegar að lang­mestu leyti í íslensku félagi.”

Töluverð ólga hefur verið meðal félags­manna Sam­fylk­ing­ar­innar á Facebook í dag vegna máls­ins. Vil­hjálmur und­ir­strikar að hann þó að hann eigi félag í Lúx­em­borg, eigi hann ekki „aflands­fé­lag” í „skatta­skjóli”.

Erfitt að gera athugasemdir

Árni Páll Árnason, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, segir flokk­inn hafa tekið prinsippaf­stöðu gegn skatta­skjólum.

„Það er ósam­rým­an­legt trún­að­ar­störfum Sam­fylk­ing­ar­innar að vera með eign í skatta­skjóli,” segir hann. „En Vil­hjálmur segir að þetta sé upp­lýst félag og skatt­lagt og með hærri skatt­pró­sentu en á Íslandi. Ef málið er þannig vaxið, þá er erfitt að gera athuga­semdir við það. Ef það er ekki annað í mál­inu en þetta. Það mundi horfa öðru­vísi við ef félagið væri ann­ars staðar, eða ef það væri eitt­hvað leyni­makk í Lúx­em­borg.”

Árni Páll seg­ist hafa fengið vit­neskju um félagið þegar hann las færslu Vil­hjálms á Facebook.

„Ég hef aldrei leitt hug­ann að því hvar hann ætti pen­inga,” segir hann. „En yfir­lýs­ing­arnar sem hann hefur gefið, sem og skýr­ing­arnar um að þetta félag í Lúx­em­borg sé fullu skatt­lagt, gefa ekki til­efni til aðgerða.”

Eins og áður segir er Vil­hjálmur hlut­hafi í Kjarn­anum. Hann er það í gegnum félag sitt Miðeind ehf. og það félag er í eigu Meson Holding A.S., sem skráð er í Lúx­em­borg.

Bjarni hélt að félagið sitt væri í Lúx

Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra er einn þeirra þriggja ráð­herra sem tengj­ast aflands­fé­lögum í skatta­skjólum. Bjarni sagð­ist í svari sínu til frétta­stofu RÚV að hann hafi keypt fyrir tæp­lega 40 millj­ónir króna, þriðj­ungs­hlut í eign­ar­halds­fé­lagi sem Lands­bank­inn í Lúx­em­borg hafi stofnað fyrir við­skipta­fé­laga hans, um kaup á fast­eign í Dúbaí. Hann hafi alla tíð staðið í þeirri trú að félagið ætti varn­ar­þing í Lúx­em­borg, en ekki á Seychelles-Eyjum í Ind­lands­hafi, eins og raunin var. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

wintris

Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Munurinn á stað­reyndum og spuna

Í morgun birti Kjarninn frétta­skýr­ingu sem unnin er upp úr úrskurði yfir­skatta­nefndar í máli hjón­anna Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar og Önnu Sig­ur­laugar Páls­dóttur. Í henni eru engar álykt­anir dregnar heldur sagt frá þeim stað­reyndum sem fram koma í þeim úrskurði. Þær stað­reyndir eru eft­ir­far­andi: Þann 13. maí 2016 skrif­aði umboðs­maður hjón­anna bréf til rík­is­skatt­stjóra. Þar óskaði hann eftir því að skatt­fram­töl...

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár