Mynd: EPA

„Við ætlum að fara með hann aftur heim“

Hópur fólks kom inn á safn í París í sumar, tók forn­grip trausta­taki og var á útleið er örygg­is­verðir stöðv­uðu hann. Fólkið seg­ist ekk­ert hafa tekið ófrjálsri hendi því ekki sé hægt að stela frá þjófi. Grip­ur­inn eigi ekki heima í Frakk­landi.

Þann 12. júní komu fjórir karlar og ein kona inn í safnið Quai Branly-Jacques Chirac í París. Þaðan tóku þau svo forn­grip sem á rætur að rekja til Afríku og höfðu hann með sér á brott. Athæfið tóku þau upp á mynd­band. „Við ætlum að fara með hann heim,“ sögðu þau.

Hópurinn komst þó ekki langt og var stöðv­aður af örygg­is­vörðum inni í safn­inu. Grip­ur­inn var tek­inn af þeim, öll voru þau hand­tekin og fyrr í vik­unni voru þau dæmd til sekt­ar­greiðslna.

Þau hefðu getað endað í fang­elsi, jafn­vel í ára­tug. En það var áhætta sem þau voru til­búin að taka.

Ástæðan er grip­ur­inn sjálfur. Og allir grip­irnir sem geymdir eru og hafðir til sýnis í Quai Branly-safn­inu. Í huga hóps­ins tákna þeir og sýn­ing þeirra á þessum stað í ver­öld­inni kúg­un­ina sem þjóðir Afríku og fleiri heims­álfa urðu fyrir á nýlendu­tím­anum. Kúgunina sem enn við­gengst því þrátt fyrir fögur fyr­ir­heit hefur grip­unum sem Frakkar og aðrar þjóðir tóku með sér frá nýlend­unum enn ekki öllum verið skilað.

Grip­ur­inn sem aktí­vist­inn Mwazulu Diyabanza og sam­verka­menn hans tóku er útfar­ar­stöng frá átj­ándu öld, upp­runnin á svæði sem í dag er innan landamæra Tjad. Slíkar stangir, sem eru úr viði og oft útskornar fag­ur­lega, þekkj­ast í menn­ingu margra Afr­íku­þjóða. Hlutverk þeirra er að hýsa sál hins látna.

Það var því ekki til­viljun að hóp­ur­inn valdi einmitt þennan grip úr safn­inu í aðgerð sem fyrst og fremst var tákn­ræn. Og það var heldur ekki til­viljun að Quai Branly-safnið varð fyrir val­inu. Í því eru geymdir yfir milljón gripir sem margir komust í hendur Frakka á nýlendu­tím­anum. Opinbert hlut­verk safns­ins er þó sagt það að sýna menn­ingu og list frum­byggja í Afríku, Asíu, Eyjaálfu og Ameríku.

„Við ætl­uðum aldrei að stela þessum grip en við munum halda áfram þar til bætt hefur verið fyrir órétt­lætið sem fólst í grip­deildum [nýlendu­þjóða] í Afríku,“ sagði Kongómað­ur­inn Diyabanza eftir að hann var leystur úr haldi. „Nýlendu­stefnan rændi Afríku sér­stöðu sinni og sjálfs­mynd. Ég mun færa Afríku aftur það sem stolið var frá henni.“

Diyabanza og hóp­ur­inn sem hann er í for­svari fyrir kallar sig Les Marrons Unis Dignes et Courageux (Eining, virð­ing og hug­rekki) og hlut­verk hans er að berj­ast fyrir frelsi og umbreyt­ingu í Afríku.

Hópurinn lýsti verkn­aði sínum ekki sé þjófn­aði heldur sögðu hann „virkt lýð­ræði“ til að vekja athygli á því að auður Afríku eigi heima þar og sé eign Afr­íku­búa. Hann hefur áður staðið að svip­uðum aðgerðum, m.a. í Hollandi og Marseille í Suður-Frakk­landi.

Útfararstangir á Quai Branly-safninu í París.
Útfar­ar­stangir á Quai Branly-safn­inu í París.

Við rétt­ar­höldin í París í sept­em­ber vakti það athygli að dóm­ar­inn sagði við­stöddum að þeir myndu verða vitni að tveimur rétt­ar­höldum. Annað væri hið aug­ljósa – að dæma hóp­inn fyrir verkn­að­inn – en hitt fjall­aði um „sögu Evrópu, um sögu Frakk­lands og Afríku.“ Hann sagði nýlendu­stefn­una því einnig fyrir dómi sem og mis­notkun á menn­ing­ar­arf­leifð þjóða.

Kúgun fyrri alda, sem enn eimir af í kerfum og vit­und sam­fé­laga víða um heim, var í brennid­epli er Diyabanza og hópur hans framdi verkn­að­inn í safn­inu í París. Aðeins þremur vikum fyrr hafði lög­reglu­maður í Banda­ríkj­unum þrengt svo að hálsi George Floyd að hann lést og fjölda­mót­mæli hófust í land­inu og víðar um heim­inn þar sem þess var kraf­ist að líf svartra yrðu metin til jafns við líf hvítra.

Árið 1444 er talið að fyrsta opin­bera salan á Afr­íku­búum til þrælk­unar hafi farið fram í Lagos í Portúgal. Portú­galar voru nokkrum árum síðar orðnir umfangs­miklir í við­skiptum með fólk frá Afríku sem og Spán­verjar sem fluttu þaðan fólk til nýlenda sinna í Suður-Ameríku þegar í byrjun sext­ándu aldar.

Frá því á fyrri hluta sext­ándu aldar og til seinni hluta þeirrar nítj­ándu er talið að í það minnsta 12,5 millj­ónir manna hafi verið fluttar nauð­ugar frá Afríku til Evrópu og Suður- og Norður-Ameríku. Til að setja þessa miklu nauð­ung­ar­flutn­inga í sam­hengi er talið að tæp­lega fjórir af hverjum fimm sem höfðu verið fluttir yfir Atl­ants­hafið til Ameríku um árið 1820 hafi verið Afr­íku­menn. Þræla­versl­unin grimmi­lega byggði á því að fá ódýrt (ókeypis) vinnu­afl til að byggja upp sam­fé­lag manna í hinum svo­kall­aða nýja heimi. Fjöl­skyldum var splundrað til að veikja sam­stöðu. Þess var gætt að fólk af sama þjóð­erni væri aðskilið – einnig til að veikja sam­stöð­una.

Þræla­hald­arar í Suður- og Norður-Ameríku, m.a. á eyjum Karí­ba­hafs­ins, eign­uðu sér margir hverjir yfir 150 manns hver. Dæmi eru um að þús­und Afr­íku­búar hafi verið í haldi sumra plantekru­eig­enda.

Danir voru fyrstir af Evr­ópu­þjóðum til að banna verslun með fólk frá Afríku til nýlenda sinna í Vestur-Indíum. Bannið tók gildi árið 1803, meira en ára­tug eftir að ákvörð­unin var tekin. Bretar fylgdu í kjöl­farið nokkrum árum síðar, þó með ákveðnum fyr­ir­vörum, líkt og Danir. Þá var komið að Spán­verjum, Svíum og Hol­lend­ingum sem fet­uðu sömu slóðir um svipað leyti. Frakkar voru seinni til. Þó að þeir hefðu ákveðið að banna við­skipti með fólk frá Afríku árið 1917 tók bannið ekki gildi fyrr en 1826. Tæpum ára­tug síðar gengu Bretar lengra í við­skipta­banni sínu en þeir höfðu gert mörgum árum fyrr og sam­þykktu að stöðva þræla­hald almennt en þó í skrefum. Plantekru­eig­endur í Vestur-Indíum fengu greiddar bætur vegna þess tjóns sem þeir urðu fyrir með laga­setn­ing­unni.

Því allt snérist þetta um pen­inga. Að hafa ódýrt eða ókeypis vinnu­afl til að efn­ast. Og þegar þræla­salan var orðin ólög­leg voru Evr­ópu­búar ekki til­búnir að sleppa tak­inu á Afríku, álf­unni við mið­baug þar sem líf­ríkið er eitt það fjöl­skrúð­ug­asta á jörðu og hægt er að rækta nán­ast allt það sem hug­ur­inn girn­ist. Það var þó fleira en ban­anar og ananas sem Evr­ópu­þjóð­irnar, sem þá höfðu skipt Afríku bróð­ur­lega á milli sín, girnt­ust. Góð­málmar og aðrar nyt­sam­legar ger­semar lágu í jörðu engum til gagns.

Heimsálfa gleypt á nokkrum áratugum

Vald­hafar í Evrópu höfðu komið sér nokkuð vel fyrir í Afríku þegar þræla­salan var hvað umfangs­mest og árið 1870 höfðu þeir yfir um 10 pró­sent álf­unnar að ráða – aðal­lega við strönd­ina. Það var hent­ugt til að geta flutt timbur og gúmmí, svo dæmi séu tekin, innan úr álf­unni og með ám til versl­un­ar­mið­stöðva sinna.

Til að kom­ast hjá átökum (sín á milli) höfðu þeir um þetta leyti sam­mælst um að samnýta mörg stór­fljótin sem flutn­ings­leiðir fyrir góss sitt. Hinn form­legi nýlendu tími var haf­inn og árið 1914 réðu Evr­ópu­þjóðir yfir um 90 pró­sentum Afríku allrar.

Eftir tvær heims­styrj­aldir, sem íbúar nýlend­anna voru látnir taka þátt í, fóru Evr­ópu­menn að slaka á klónni í Afríku og næstu ár og ára­tugi fékk hvert landið á fætur öðru sjálf­stæði. Landa­mærin höfðu í mörgum til­fellum verið dregin upp af nýlendu­herr­unum en fólkið sem innan þeirra bjó var skil­greint sem þjóð og átti að taka við stjórn­ar­taumunum og byggja upp sitt sam­fé­lag. Það var mis­jafnt hvernig nýlendu­herr­arnir skyldu við. Óhætt er að segja að þó Evr­ópu­búar hafi litið á Afr­íku­þjóð­irnar sem þær ein­ingar sem landa­kortið sýndi var raunin allt önnur. Upphófst ólgu­tíma­bil í álf­unni sem víða sér ekki fyrir end­ann á.

Nú, á 21. öld­inni, er upp­gjör arð­ráns­ins í Afríku – rótin að mis­skipt­ing­unni – enn óupp­gert. Það sýnir sig ber­sýni­lega í þeirri mót­mæla­öldu sem sprottið hefur upp í Banda­ríkj­unum og víðar.

Mwazulu Diyabanza með útfararstyttu sem hann tók úr sýningarrými á safni í Hollandi nýverið.
Mwazulu Diyabanza með útfar­ar­styttu sem hann tók úr sýn­ing­ar­rými á safni í Hollandi nýverið.

Mwazulu Diyabanza, for­svars­maður hóps­ins sem greip útfar­ar­stöng­ina í Quai Branly-safn­inu, kærði franska ríkið í sumar fyrir þjófnað og fyrir að hafa tekið við þýfi. Um stór­felldan þjófnað á löngu tíma­bili – nýlendu­tím­anum – er að ræða, segir Diyabanza. „Það sem drífur okkur áfram er okkar lög­mæti réttur til að hafa aðgang að menn­ingu okkar og end­ur­heimta sögu okkar,“ hefur Diyabanza sagt.

Umræðan um að Evr­ópu­ríki skili menn­ing­ar­verð­mætum sem þau komust yfir á nýlendu­tím­anum er ekki ný af nál­inni, langt frá því. Mörg söfn hafa sætt harðri gagn­rýni fyrir að slá eign sinni á gripi frá öðrum löndum og hafa þá til sýnis. Skiptar skoð­anir eru meðal safn­stjóra og stjórn­mála­manna í Evrópu á því hvort og þá hvenær eigi að skila ákveðnum gripum. Og kannski ekki síst hver eigi þá að taka við þeim.

Engu enn verið skilað

Emmanuel Macron, for­seti Frakk­lands, skip­aði nefnd árið 2017 til að rann­saka hvort og þá hvaða munum sem eru í vörslu franskra stofn­ana ætti að skila til fyrrum nýlendu­ríkja. Í nefnd­inni sátu Felwine Sarr, hag­fræð­ingur frá Senegal, og franski sagn­fræð­ing­ur­inn Bénédicte Savoy. Skýrsla þeirra var gefin út árið 2018 og var nið­ur­staða hennar sú að frönsk söfn ættu að skila um 90 þús­und gripum til ríkja í Afríku ef þau myndu sækj­ast eftir því. Macron ákvað þegar í stað að hefj­ast handa og fyrsta verk­efnið var að koma 26 gripum sem stolið hafði verið frá Benín á nítj­ándu öld er Frakkar rændu þar völdum af hörku.

Grip­irnir voru geymdir í Quai Branly-safn­inu. Og þar eru þeir enn. Engum gripum sem til­teknir voru í skýrslu rann­sókn­ar­nefnd­ar­innar hefur enn verið skilað.

Savoy segir í við­tali við Time að hann telji að hin lága upp­hæð sekt­ar­innar sem hóp­ur­inn sem fjar­lægði útfar­ar­stöng­ina í Quai Branly-safn­inu í sumar fékk, hafi verið tákn­ræn og til marks um að dóm­ur­inn hafi áttað sig á póli­tísku vægi gjörn­ings­ins.

Svipað andóf hefur verið að eiga sér stað víðar í Evrópu síð­ustu mán­uði. Breska lista­safnið ákvað í byrjun árs að fjar­lægja nokkra muni sem upp­runnir eru í Afríku og voru til sýnis eftir að gestur helti sér yfir starfs­menn safns­ins. Um verð­mæta forn­muni frá Benín er að ræða sem taldir eru vera allt frá tólftu öld.

Frönsk stjórn­völd hafa gripið til þess að vakta styttur í land­inu en á síð­ustu árum hefur verið reynt að steypa þeim sem og öðrum er tengj­ast nýlendu­tím­anum af stalli bæði í Evrópu og í Banda­ríkj­unum. „Franska lýð­veldið mun ekki þurrka út slóð eða nöfn úr sög­unni,“ sagði Macron í sumar. „Engar styttur verða teknar niður.“

Emmanuel Kasarhérou, sem tók við stjórn Quai Branly-safns­ins nýverið, sagði í við­tali við New York Times í sumar að hann væri ekki hlynntur því að senda gripi „út í heim þar sem þeir verða látnir rotna“.

Mwazulu Diyabanza segir gjörn­ing­inn á safn­inu í sumar ekki hafa verið ólög­legan. „Þú spyrð ekki þjóf um leyfi áður en þú tekur til baka það sem hann stal.“

Hann og hóp­ur­inn sem hann er for­svari fyrir muni halda áfram að berj­ast fyrir rétt­læti, end­ur­heimt menn­ing­ar­verð­mæta og sjálfs­mynd þjóða Afríku.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár