Verðbólgudraugurinn versti óvinur fasteignamarkaðarins

Blikur eru nú á lofti á fast­eigna­mark­aði en tölu­vert hefur hægst á verð­hækk­unum. Þá stefnir í að verð­bólga fari hækk­andi á næst­unni. Fast­eigna­fé­lög munu lítið annað geta gert en að hækka leig­una.

Pen­inga­stefnu­nefnd Seðla­banka Íslands ákvað í vik­unni að hækka meg­in­vext­ina um 0,25 pró­sentur, úr 4,25 pró­sent í 4,5 pró­sent, og er ástæðan sú að verð­bólgu­draug­ur­inn er vakn­aður og lík­legur til að belgja sig í íslensku sam­fé­lagi á næst­unni.

Spár grein­enda í banka­kerf­inu, bæði hjá stóru við­skipta­bönk­unum þremur og seðla­bank­anum, benda til þess að verð­bólga gæti farið yfir 3 pró­sent í des­em­ber og síðan farið hratt hækk­andi næstu mán­uð­ina á eftir, upp fyrir 5 pró­sent.

Meiri verðbólga í kortunum

Spárnar eru aðeins ólíkar, en þær gera þó ráð fyrir að verð­bólgan fari á næstu mán­uðum upp í 3,5 til 5 pró­sent, en hún mælist nú 2,8 pró­sent.

Eftir mikla hækkun fast­eigna­verðs á und­an­förnum árum, einkum árin 2013 til vor­mán­aða 2017, er nú farið að hægj­ast veru­lega á verð­hækk­unum en árs­hækkun á höf­uð­borg­ar­svæð­inu mælist nú 3,9 pró­sent. Á vor­mán­uðum í fyrra mæld­ist nú 23,5 pró­sent og var þá næstum eng­inn fast­eigna­mark­aður í heim­inum sem mæld­ist með svo mikla árlega hækkun.

Það sem skipt hefur sköpum fyrir miklar hækk­anir á fast­eigna­mark­aði, og góð efna­hags­skil­yrði í hag­kerf­inu almennt, er að það hefur tek­ist að halda verð­bólg­unni í skefjum. Í meira en fjögur ár, þar sem fjár­magns­höft voru fyrir hendi stóran hluta tím­ans, tókst að halda verð­bólg­unni undir 2,5 pró­sent verð­bólgu­mark­aði.

Vaxta­stig hélst lágt - í sögu­legum sam­an­burði á Íslandi - og lána­kjör voru einnig með besta móti. Mikill vöxtur í hag­kerf­inu, ekki síst vegna mik­ils vaxtar í ferða­þjón­ust­unni, ýtti síðan enn frekar undir mikla eft­ir­spurn eftir hús­næði. Ennþá vantar umtals­verðan fjölda af íbúðum á markað, einkum litlar og með­al­stórar, til að jafn­vægi náist á mark­aðnum. ASÍ hefur sagt að um 8 þús­und íbúðir vanti inn á mark­að­inn, til að tryggja nægi­legt fram­boð á höf­uð­borg­ar­svæð­inu.

Grein­ingar hafa verið nokkuð mis­vísandi, en í máli Sölva Blöndal, hag­fræð­ings og sér­fræð­ings í fast­eigna­mark­aðnum, á fundi Félags við­skipta- og hag­fræð­inga á dög­unum kom fram að oft sé þörfin ofmetin. Þetta var meðal ann­ars gert að umtals­efni í ítar­legri frétta­skýr­ingu um horfur á fast­eigna­mark­aði á vef Kjarnans.

Sam­tals eru 4.900 íbúðir í bygg­ingu á höf­uð­borg­ar­svæð­inu í dag, sam­kvæmt mati Samtaka iðn­að­ar­ins, og er áætlað að á þessu ári komi sam­tals 2.000 íbúðir á markað.

Á næsta ári má gera ráð fyr­ir að þær verði 2.200 og árið 2020 fari þær upp í allt að 2.600 íbúðir. Á næstu 18 mán­uðum eru íbúð­irnar um 5 þús­und sem koma inn á mark­að­inn.

Verðlækkun eða verðhækkun?

Spár hafa verið nokkuð mis­vísandi þegar kemur að þróun fast­eigna­verðs á næst­unni. Grein­endur Arion banka gera ráð fyrir að fast­eigna­verð lækki á næstu þremur árum, að teknu til­liti til verð­bólgu, en aðrar spár hafa gert ráð fyrir lít­ils­háttar eða hóf­legri hækkun. Þannig er mun­ur­inn á spánum frá því að vera lækkun um 2 pró­sent á næstu árum upp í að vera hækkun um 8 pró­sent. Vandi er um þetta að spá, greini­lega.

Leiguverð líklegt til að hækka

Hvort sem fast­eigna­verð mun hækka eða lækka á næst­unni, þá bendir margt til þess að leigu­verð muni hækka á næst­unni. Einkum á það við um leigu­samn­inga hjá stærstu fast­eigna­fé­lögum lands­ins. Fjár­mögnun þeirra að miklu leyti verð­tryggð og er fyr­ir­sjá­an­legt að skörp hækkun á verð­bólg­unni mun leiða til þess að skuld­irnar hækki, og það smitar síðan út í leigu­verðið.

Má sem dæmi nefna að eina íbúða­leigu­fé­lagið sem skráð er á markað, Heima­vellir, er með nokkuð við­kvæma stöðu hvað þetta varðar. Skuldir félags­ins eru tæp­lega 40 millj­arðar, og að miklu leyti verð­tryggðar. Eignir félags­ins nema rúm­lega 58 millj­örðum. Fari svo að verð­bólgan hækki skarpt, og fast­eigna­verð lækki eða hækki lítið sem ekk­ert, þá getur það verið högg fyrir efna­hag félags­ins, jafn­vel þó leigu­verð verðið hækkað á móti.

Staðan er að mörgu leyti sam­bæri­leg hjá Almenna leigu­fé­lag­inu, en það félag er ekki skráð á markað, en stefnt er á skrán­ingu þess.

Sömu sögu er að segja af fast­eigna­fé­lög­unum á mark­aði atvinnu­hús­næðis. Heild­ar­eignir Regins, Eikar og Reita nema um 350 millj­örðum króna og skuldir tæp­lega 250 millj­örðum. Skuld­irnar eru að miklu leyti verð­tryggðar. Skörp hækkun verð­bólgu er því lík­leg til að hækka skuld­irnar nokkuð, að nafn­virði, og um leið myndi það leiða til hækk­unar á leigu hjá við­skipta­vinum félag­anna.

Vita­skuld er síðan sam­bæri­leg staða uppi hjá heim­ilum lands­ins, þar sem algeng­asta fjár­mögn­un­ar­form lána eru verð­tryggð lán.

Einn óvissu­þáttur fyrir þróun á fast­eigna­mark­aði á næstu árum, snýr að því hvernig kjara­við­ræður muni ganga og til hvaða aðgerða verður gripið á fast­eigna­mark­aði. Stétt­ar­fé­lögin og Samtök atvinnu­lífs­ins hafa sagt að grípa þurfi til aðgerða á hús­næð­is­mark­aði, en það hefur ekki nákvæm­lega verið útli­stað hverjar þær aðgerðir gætu verið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár