Tekjur Bláa Lónsins voru tæplega 20 milljarðar króna í fyrra

Þrátt fyrir að ferða­mönnum hafi fækkað í fyrra juk­ust tekjur Bláa Lónsins. Félagið átti 12,4 millj­arða í eigið fé um síð­ustu ára­mót. COVID-19 hefur sett veru­legt strik í reikn­ing­inn hjá félag­inu í ár sem hefur sagt upp nálægt 75 pró­sent starfs­fólks.

Tekjur Bláa Lónsins voru meiri í fyrra en árið 2018, þrátt fyrir að ferða­mönnum sem heim­sóttu Íslands hafi fækkað um rúm­lega 300 þús­und á síð­asta ári. Tekjur félags­ins voru tæp­lega 125 millj­ónir evra á árinu 2019, eða um 19,4 millj­arðar króna á gengi dags­ins í dag. Það eru tæp­lega tvö pró­sent meiri tekjur en Bláa Lónið var með árið áður.

Hagn­að­ur­inn síð­asta árs var tæp­lega 22 millj­ónir evra, um 3,4 millj­arðar króna, sem er um 17 pró­sent minni hagn­aður en var af starf­sem­inni árið áður.

Eignir Bláa Lónsins voru metnar á 183,5 millj­ónir evra í lok síð­asta árs, eða 28,5 millj­arða króna. Eigið fé félags­ins var 79,5 millj­ónir evra, um 12,4 millj­arðar króna á núvirði, og eig­in­fjár­hlut­fallið 43 pró­sent.

Þetta er meðal þess sem fram kemur í árs­reikn­ingi Bláa Lónsins sem birtur var fyrir helgi. Félagið hefur orðið fyrir miklum áhrifum vegna COVID-19 far­ald­urs­ins sem hefur nær lokað Íslandi fyrir ferða­mönnum. Bláa Lónið þurfti meðal ann­ars að loka öllum rekstr­ar­ein­ingum sínum í tæpa þrjá mán­uði vegna far­ald­urs­ins. Í til­kynn­ingu vegna birt­ingar á árs­reikn­ing­unum sagði að nei­kvæð áhrif COVID-19 heims­far­ald­urs­ins verði gríð­ar­leg á rekstur félags­ins í ár og rekstr­ar­tap þess verði veru­legt. Bláa Lónið mun því ekki greiða út arð til hlut­hafa þrátt fyrir hagnað síð­asta árs. Á síð­ustu tveimur árum á undan hafði það sam­tals greitt hlut­höfum sínum út sam­tals 6,6 millj­arða króna í arð vegna frammi­stöðu á árunum 2017 og 2018.

[adspot]Vegna þess­arar stöðu sem er uppi hefur Bláa Lónið sagt upp fjöl­mörgu starfs­fólki. Í árs­lok í fyrra störf­uðu 809 manns hjá félag­inu. Um mán­aða­mótin mars apríl var 164 manns sagt upp. Í aðdrag­anda síð­ustu mán­aða­móta var 403 manns sagt upp störfum til við­bótar. Um er að ræða allt að 75 pró­sent af starfs­fólki Bláa Lónsins sem búið er að segja upp. Upp­sagn­irnar náðu ekki til fram­kvæmda­stjórnar, sem tók hins vegar á sig 25 pró­sent launa­lækkun. For­stjóri og stjórn tók á sig 30 pró­sent lækkun.

Félagið sagð­ist þó von­ast til þess að geta end­ur­ráðið sem flesta sem sagt var upp þegar fram liða stundir. Búast má við því að hluti þeirra vinni upp­sagn­ar­frest. Auk þess voru laun þeirra starfs­manna sem fengu ekki upp­sögn skert.

Nýttu hlutabótaúrræðið

Bláa Lónið hafði áður nýtt sér úrræði stjórn­valda vegna COVID-19 og sett starfs­manna á hluta­bætur, sem greiddar voru úr rík­is­sjóði, í mars og apr­íl. Samkvæmt úttekt Rík­is­end­ur­skoð­unar á úrræð­inu voru alls 441 starfs­menn Bláa Lónsins settir á hluta­bætur og rík­is­sjóður greiddi alls 185,8 millj­ónir króna í hluta­bætur vegna þeirra. Eina fyr­ir­tækja­sam­steypan sem setti fleiri starfs­menn á leið­ina var Icelandair Group.

Stundin spurði Grím Sæmund­sen, for­stjóra Bláa Lónsins, að því 28. maí síð­ast­lið­inn hvort að félagið ætl­aði að nýuta sér úrræði stjórn­valda sem heim­ilar fyr­ir­tækjum sem orðið hafa fyrir miklu tekju­falli að sækja styrk fyrir allt að 85 pró­sent af launa­kostn­aði á upp­sagn­ar­fresti í rík­is­sjóð. Samkvæmt útreikn­ingum blaðs­ins gæti sá launa­kostn­aður sem Bláa Lónið gæti sparað sér með því að nýta úrræði stjórn­valda sparað því allt að 675 millj­ónir króna. Stundin fékk ekki svar við fyr­ir­spurn sinni.

Grímur sagði hins vegar við RÚV síðar þennan sama dag að ekki hefði verið tekin nein ákvörðun um það hvort Bláa Lónið myndi nýta sér úrræði um stuðn­ing í upp­sagn­ar­fresti.

Bláa Lónið opn­aði aftur 19. júní síð­ast­lið­inn.

Lagt til að stjórnarlaun haldist óbreytt milli ára

Á aðal­fundi Bláa Lónsins, sem fram fór á föstu­dag, 26. júní, var lagt til að stjórn­ar­laun yrðu óbreytt milli ára. Fyrir næsta starfsár verða stjórn­ar­laun þannig að Helgi Magn­ús­son, stjórn­ar­for­maður Bláa Lónsins, fær 904.596 krónur greiddar mán­að­ar­lega, eða alls 10.855.152 krónur í árs­laun. Aðrir stjórn­ar­menn fá 452.298 krónur greiddar mán­að­ar­lega, eða alls 5.427.576 krónur í árs­laun. Varamenn í stjórn Bláa Lónsins fá 225 þús­und krónur greiddar mán­að­ar­lega, eða alls tæp­lega 5,5 millj­ónir króna á ári.

Auk Helga sitja þau Ágústa Johnson, Ragnar Guð­munds­son, Sigríður Margrét Odds­dóttir og Steinar Helgason í stjórn Bláa Lónsins. Varamenn í stjórn eru þau Anna G. Sverr­is­dóttir og Úlfar Stein­dórs­son, sem er einnig stjórn­ar­for­maður Icelandair Group.

[adspot]Þetta kemur fram í til­lögum sem lagðar voru fyrir aðal­fund­inn sem Kjarninn hefur undir höndum.

Líkt og áður sagði var ákveðið í maí síð­ast­liðnum að laun stjórn­ar­innar yrðu lækkuð um 30 pró­sent vegna þeirra áhrifa sem heims­far­aldur COVID-19 hefur haft á rekstur Bláa Lónsins. Í til­lög­unum sem lagðar voru fyrir aðal­fund­inn sagði að „í ljósi þeirrar óvissu sem nú er ríkj­andi er gerð til­laga um að stjórn­ar­laun verði óbreytt milli ára, en lagt í hendur stjórnar að aðlaga laun sín innan þess ramma sem aðal­fundur ákveður, til sam­ræmis við rekstr­ar­að­stæður félags­ins á starfs­ár­inu.“

Staf­s­kjara­stefna Bláa Lónsins, sem lögð var fram á fund­inum, var sam­þykkt en hún er óbreytt frá síð­asta aðal­fundi, utan þess að felldu hefur verið á brott heim­ild til að semja um kaupauka sem taki mið af afkomu félags­ins. „Er nú bein­línis tekið fram í starfs­kjara­stefn­unni að ekki skuli samið um árang­urstengdar launa­greiðslur eða ann­ars konar kaupauka í neinu formi.“

Laun stjórnar og for­stjóra Bláa Lónsins voru 1.127 þús­und evrur í fyrra. Á gengi dags­ins í dag eru það um 175 millj­ónir króna.

Undirbúið undir óvænta atburði

Í ávarpi sínu í árs­skýrslu Bláa Lónsins sagði Helgi Magn­ús­son, stjórn­ar­for­maður og hlut­hafi í félag­inu, að við þær aðstæður sem nú eru uppi í sam­fé­lag­inu, vegna COVID-19, sé það

meg­in­við­fangs­efni stjórnar Bláa Lónsins og dag­legra stjórn­enda fyrst og fremst það að leiða Bláa Lónið í gegnum þær. „Sem betur fer hefur verið mörkuð sú stefna hjá félag­inu að mik­il­vægt sé að und­ir­búa fyr­ir­tækið eins og kostur er fyrir óvænta atburði. Um þetta hefur verið rætt á aðal­fundum und­an­farin ár. Við höfum þá einkum fjallað um þá ógn sem gæti steðjað að rekstr­inum vegna nátt­úru­ham­fara eða hryðju­verka sem gætu valdið mik­illi tíma­bund­inni truflun á rekstri.“

Þegar veiru­far­aldur líkt og sá sem nú geisar dynur yfir eru áhrifin, að mati Helga, svipuð og Bláa Lónið hefur reynt að búa sig undir. „Fyrsta skref stjórn­enda Bláa Lónsins í umræddri varn­ar­bar­áttu var að hætta við að greiða hlut­höfum arð á árinu 2020 vegna hagn­að­ar­rekstrar árs­ins 2019. Hlut­hafar félags­ins veita þannig félag­inu styrk og stuðn­ing eins og þeim er unnt. Það þykir okkur sjálf­sagt og eðli­legt við ríkj­andi aðstæður. Ég er ekki var við annað en að um það ríki alger sam­staða eins og reyndar um aðrar aðgerðir sem gripið hefur verið til í þeim til­gangi að stýra Bláa Lóninu heilu í gegnum þessar erf­iðu aðstæður.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár