Jair Bolsonaro, forseti Brasilíu, segir að glæpamenn muni „deyja eins og kakkalakka“ þegar ný lög um öryggismál taka gildi. Nýju lögin munu koma í veg fyrir að almennir borgarar og öryggissveitir Brasilíu verði ákærð fyrir morð skjóti þau glæpamenn, að því er kemur fram í frétt the Guardian.
Bolsonaro vill jafnframt að almennir borgarar nýti sér lögin og skjóti glæpamenn. Orðin lét forsetinn falla í beinni útsendingu í gær. Þar sagðist hann vona að brasilíska þingið muni samþykkja nýju löggjöf hans sem breytir hegningarlöggjöf Brasilíu. Með breytingunum munu ýmsar gjörðir sem teljast ólöglegar í dag verða löglegar, til að mynda að skjóta fólk til að verja eignir sínar.
[adspot]Aktívistar í Brasilíu hafa gagnrýnt löggjöfina og segja hana geta orsakað blóðbað. Bolsonaro segir löggjöfina hins vegar munu vernda lögreglumenn og að hún muni minnka ofbeldi á götum Brasilíu. Þá muni glæpamenn deyja á götunum eins og kakkalakkar „og þannig á það að vera,“ sagði forsetinn í viðtalinu. Hann sagði jafnframt að „heiðvirðir borgarar“ verði verndaðir með nýju lögunum ef þeir þurfi að nota vopn til að verja líf sitt eða eignir.
Rúmlega sex þúsund manns látist af völdum lögreglunnar
Baráttufólk fyrir mannréttindum í landinu segja að orðræða Bolsonaro hafi þegar ýtt undir ofbeldi, sérstaklega gegn ungum, fátækum og svörtum mönnum. Þeir óttast að nýja löggjöfin get ýtt undir enn frekara ofbeldi.
Á fyrstu sex mánuðum ársins 2019 létust 414 manns af völdum lögreglumanna í São Paulo og 434 létust í Rio de Janeiro á fyrstu þremur mánuðum ársins, sem er mesti fjöldi síðustu tveggja áratuga. Á síðasta ári drap brasilíska lögreglan 6.200 manns samkvæmt opinberum tölum í Brasilíu.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.














































Athugasemdir