Óbólusettir fimmfalt líklegri til að þurfa gjörgæslumeðferð en bólusettir

Hlut­falls­lega eru þeir sem ekki hafa verið bólu­settir um þrefalt lík­legri til að smit­ast og fimm­falt lík­legri til þess að þurfa að leggj­ast inn á gjör­gæslu en þeir sem hafa verið bólu­settir, sam­kvæmt Þórólfi Guðn­a­syni sótt­varna­lækni.

Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir.
Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir. Mynd: Almannavarnir

Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir sagði á upp­lýs­inga­fundi almanna­varna í dag að hann teldi að núver­andi sótt­varna­ráð­staf­anir inn­an­lands, sem eiga að vera í gildi til 27. ágúst, væru að halda fjölda smita í línu­legum vexti, í stað þess að vera í veld­is­vexti.

Hann sagði einnig ljóst af þeim gögnum sem hefðu safn­ast hér saman und­an­farnar vikur að þrátt fyrir að fjöldi bólu­settra væru að smit­ast af COVID-19 væru smit á meðal óbólu­settra hlut­falls­lega um þrefalt fleiri en hjá þeim sem eru bólu­settir. Því væri bólu­setn­ingin að koma í veg fyrir hluta smita.

Frá 1. júlí hafa 64 ein­stak­lingar þurft að leggj­ast inn á spít­ala með COVID-19 og sagði Þórólfur að hlut­falls­lega væru óbólu­settir fjórum sinnum lík­legri til þess að þurfa á inn­lögn að halda.

Á sama tíma­skeiði hafa níu manns þurft á gjör­gæslu­með­ferð að halda og þar af fimm þurft að leggj­ast í önd­un­ar­vél. Þórólfur sagði gögn sýna fram á að þeir sem er óbólu­settir væru fimm­falt lík­legri til að þurfa á gjör­gæslu­með­ferð að halda, en bólu­settir.

Þetta sagði Þórólfur að ætti að vera hvatn­ing til allra til þess að fara í bólu­setn­ingu.

Meðalaldur innlagðra 64 ár en útskrifaðra 50 ár

Í máli Páls Matth­í­as­sonar for­stjóra Land­spít­ala kom fram að með­al­aldur þeirra 64 ein­stak­linga sem hefðu lagst inn á spít­al­ann til þessa væru 64 ár, en hins vegar væri með­al­aldur þeirra sem hefðu útskrif­ast eftir veik­indi sín 50 ár.

Það væri því eldra fólk sem núna væri inniliggj­andi og reynslan sýndi að þeir eldri væru lengri að jafna sig eftir veik­indi.

Útilokar ekki að leggja til hertar aðgerðir

Sótt­varna­læknir sagði frá því á fund­inum að hann myndi fylgj­ast með stöðu Land­spít­ala og ef neyð­ar­kall myndi ber­ast þaðan sæi hann sér ekki annað fært en að leggja til við stjórn­völd að gripið yrði til hertra aðgerða, sem gætu kveðið niður far­ald­ur­inn. 200 manna fjölda­tak­mark­anir og ýmsar aðrar aðgerðir eiga að vera í gildi til 27. ágúst, að óbreyttu.

Þórólfur sagði stöð­una í dag ekk­ert sér­stak­lega skemmti­lega og honum væri ljóst að allir væru orðnir leiðir á sótt­varna­ráð­stöf­unum. Spít­ala­for­stjór­inn lýsti því á fund­inum að ekki væri ljóst hvernig næstu vikur myndu ganga.

Hann sagði að mönn­unin á gjör­gæsl­unni væri helsti vand­inn sem við væri að setja og útskýrði að gjör­gæslu­með­ferð krefð­ist sér­hæfðra lækna og hjúkr­un­ar­fræð­inga. Því hefði spít­al­inn biðlað til stars­fólks um að koma fyrr úr sum­ar­leyfi og hefði einnig hafið sam­töl við fólk með þekk­ingu sem væri ekki að starfa á Land­spít­al­anum í dag, til dæmis svæf­ing­ar­hjúkr­un­ar­fræð­inga sem væru að starfa utan spít­al­ans.

Páll sagði að dæmi væru um að fólk væri að koma mjög veikt inn á spít­al­ann, án þess að hafa áður greinst með COVID-19. Fólk hefði þannig verið með ein­kenni, en ekki farið í skimun.

Hann sagði að þrír af þeim níu sem hefðu þurft á gjör­gæslu­með­ferð að halda til þessa hefðu komið beint inn á gjör­gæsl­una.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár