Lítið vitað um orsakir aukinnar tíðni hvalreka

Á síð­ustu tíu árum hafa hér á landi rúm­lega 230 hvalir rekið á land, þar af 152 hvalir á þessu ári. Mögu­legar orsakir hval­reka eru aftur á móti lítið rann­sak­aðar hér á landi.

Mikill fjöldi hvala hefur rekið á land það sem af er ári eða alls 152 hvalir. Lítið er hins vegar vitað um orsakir þess og hval­rekar í raun lítið rann­sak­aðir hér á landi. Nið­ur­stöður rann­sókna hafa þó bent til að auk­inn ágangur hvala­skoð­un­ar­skipa og báta í Faxaflóa hafi nei­kvæð áhrif á hegðun hrefna.

Þetta kemur fram í svari sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra við fyr­ir­spurn frá Andrési Inga Jónssyni, þing­manni utan þing­flokks, um hval­reka.

Hvalaskoðun víða áhyggjuefni

Á síð­asta ára­tug hafa alls 237 hvali rekið á land á Íslandi. Stærstur hluti þeirra eru grind­hvalir en mikla athygli vakti þegar 50 grind­hvala­hræ fund­ust í Löngu­fjör­um í sumar. Í kjöl­farið kall­aði Andrés Ingi eftir svörum frá ráð­herra um tíðni hval­reka hér á landi og hvort að skoðað hefði verið hvaða tengsl kunna að vera á milli hval­reka og til að mynda umferðar skipa nálægt hvala­vöðum.

Samkvæmt svari sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra hefur ekki verið gerð fræði­leg úttekt á hugs­an­legum tengslum milli almennrar skipa­um­ferðar og tíðni hval­reka hér við land þrátt fyrir að ýmsar erlendar rann­sóknir á hval­rekum sýni að árekstrar skipa og hvala geti verið mik­il­vægur þáttur í dán­ar­tíðni hvala, einkum þar sem saman fer mikil skipa­um­ferð og við­kvæmir stofnar hvala.

Eitt alvar­leg­asta dæmið um slíkt er Slétt­bakur en sú teg­und var útbreidd í Norður- Atl­ants­hafi fyrr á öldum en en leifar stofns­ins telja nú fáein hund­ruð dýra sem halda til við aust­ur­strönd Banda­ríkj­anna og Kanada. Mikil skipa­um­ferð á því svæði er talin hamla end­ur­reisn stofns­ins og hafa því verið settar sér­stakar sigl­inga­reglur vegna þess.[adspot]

Neikvæð áhrif hvalaskoðunarskipa

Enn fremur segir í svar­inu að hvala­skoðun hafi auk­ist gíf­ur­lega um allan heim og sé það víða áhyggju­efni enda bein­ist hún oft sér­stak­lega að svæðum sem eru mik­il­væg hvala­stofnum. Vís­inda­nefnd Alþjóða­hval­veiði­ráðs­ins hefur á und­an­förnum árum fjallað í auknum mæli um þær hættur sem steðja að hvölum vegna sigl­inga bæði almennt og sér­stak­lega vegna hvala­skoð­unar. 

Gerðar hafa verið nokkrar rann­sóknir hér við land á áhrifum hvala­skoð­unar á hegðun og mögu­leg lang­tíma­á­hrif á hvali. Nið­ur­stöð­urnar benda til að ágangur hvala­skoð­un­ar­skipa og báta í Faxaflóa hafi nei­kvæð áhrif á hegðun hrefnu, sér­stak­lega hvað varðar fæðu­nám.

Hins vegar þykir ólík­legt að þessi truflun hafi var­an­leg alvar­leg áhrif á æxl­un­ar­getu hval­anna til lengri tíma litið vegna hreyf­an­leika hval­anna innan haf­svæð­is­ins við Ísland, að því er fram kemur í svari ráð­herra.

Gengur illa að fá upplýsingar frá hernaðaryfirvöldum

Í fyr­ir­spurn sinni spyr Andrés Ingi jafn­framt hvort að skoðað hafi verið hvort að tengsl kunni að vera á milli hval­reka og umferðar skipa sem senda frá sér öflug hjóð­sjár­merki, til að mynda her­skip og kaf­báta.

Sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra segir í svari sínu að í gangi sé fjöl­þjóð­leg rann­sókn þar sem reynt er að kanna orsakir óvenju­legs fjölda and­ar­nefju og svín­hvala­reka, á árinu 2018, á ströndum margra landa við Norð­austur-Atl­ants­haf, meðal ann­ars á Íslandi.

Hann segir að í því sam­bandi sé meðal ann­ars er litið til við við­veru her­skipa og her­æf­ingar sem fram fóru sum­arið 2018. Erf­ið­lega hefur þó gengið að afla upp­lýs­inga frá hern­að­ar­yf­ir­völdum. Engar rann­sóknir hafa verið gerðar hér við landa á tengslum hval­reka og umferðar skipa sem senda frá sér öflug hljóð­sjár­merki.

Í svar­inu kemur jafn­framt­fram að lítið eða ekk­ert sé vitað um tengsl hval­reka við berg­máls­rann­sóknir olíu­leit­ar­skipa, notk­unar hvala­fæla til að halda hvölum frá veiði­færum skipa eða ann­arrar hljóð­meng­unar af manna­völdum.

Erfitt að ákvarða dánarorsök

Andrés Ingi kall­aði jafn­framt eftir upp­lýs­ingum um dán­ar­or­sök strand­að­ara hvala en ráð­herra segir að sjaldn­ast sé hægt að ákvarða dán­ar­or­sök hvala sem reka á landi nema í til­fellum þar sem sjá megi skýr ummerki um veið­ar­færi eða skips­skrúfur.

Sama gildi um slíkt á heims­vísu enda þyrfti til þess umfangs­miklar og kostn­að­ar­samar krufn­ingar sér­hæfðra dýra­lækna. Haf­rann­sókn­ar­stofa tekur þó reglu­lega sýni úr hval­rekum og safnar í vefja og sýna­banka sem und­an­farin ár hefur sýnt sig sem mik­il­vægt inn­legg í ýmsar alþjóð­legar rann­sóknir, að því er fram kemur í svar­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár