Allt frá bátasætum til barnauppeldis í Gullegginu 2017

Tíu hug­myndir hafa verið valdar til þátt­töku í úrslitum Gul­leggs­ins 2017, stærstu frum­kvöðla­keppni lands­ins.

Tíu við­skipta­hug­myndir og við­skipta­á­ætl­anir hafa verið valdar til þátt­töku í Gul­legg­inu 2017. Frum­kvöðla­keppnin er haldin árlega af Icelandic Startups í sam­starfi við Háskól­ann í Reykja­vík, Háskóla Íslands, Bifröst og Lista­há­skóla Íslands.

Alls bár­ust 123 við­skipta­hug­myndir í keppn­ina, þar af 45 mót­aðar við­skipta­á­ætl­anir og valdi 100 manna rýni­hópur hug­mynd­irnar til þátt­töku í þess­ari stærstu frum­kvöðla­keppni á Íslandi. Rýni­hóp­ur­inn var skip­aður konum og körlum til jafns.

Allir þátt­tak­endur hafa sótt vinnu­smiðjur und­an­farnar vikur þar sem þeir hafa fengið leið­sögn og fræðslu til að þróa hug­myndir og áætl­anir sínar áfram.

Teymin á bak við hug­mynd­irnar tíu munu kynna hug­myndir sínar fyrir dóm­nefnd Gul­leggs­ins 11. mars næst­kom­andi. Dóm­nefndin verður skipuð fjár­festum og reynslu­ríkum stjórn­endum fyr­ir­tækja. Lokahóf Gul­leggs­ins fer fram í Hörpu síðar sama dag þar sem verð­laun verða veitt.

Tíu stigahæstu hugmyndirnar hafa nú verið valdar

  • Barna­menn­ing­ar­hús - Sama­staður barna­menn­ingar á Íslandi, staður þar sem börn geta upp­lifað ólíkar list­greinar og fengið útrás fyrir sköp­un­ar­þörf­ina á sínum for­sendum.
  • BlissApp – Sam­skipta­app fyrir fólk sem notar óhefð­bundin tjá­skipti.
  • Eiderway, undir vöru­merk­inu S. Stef­áns­son & Co. - Tísku­fyr­ir­tæki með áherslu á æðar­dúnsein­angr­aðan útvi­starfatnað.
  • Fjöl­skyldu­myllan - Ráðgjafa­fyr­ir­tæki sem fræðir og ráðleggur for­eldrum um allt það er kemur að upp­eldi barna og ung­linga.
  • Happa­Glapp - App sem gefur! Skaf­miða­leikur í gegnum smá­forrit.
  • Lab Farm - Sharing computational resources through the academic community.
  • League Manager - Tournament mana­gement through a mobile application.
  • Procura Home - Vefrænt sölu- og verð­mats­kerfi fast­eigna.
  • Project Monsters - Video game designed to speed up skill acquisition.
  • SAFE Seat – Fjaðr­andi báta­sæti sem verndar hryggsúluna í erf­iðu sjólagi.

Gul­leggið fór fyrst fram árið 2008 en frá þeim tíma hafa um 2500 hug­myndir borist í keppn­ina. Fjölmörg fyr­ir­tæki sem náð hafa eft­ir­tekt­ar­verðum árangri hafa stigið sín fyrstu skref í Gul­legg­inu. Þar á meðal má nefna Meniga, Karolina Fund, Videntifier, Clara, Controlant, Nude Maga­Solid Clouds, Radiant Games, Betri svefn, Pink Iceland, o.fl.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár