„Erum við fórnarlömb eineltis?“

Ljós­mynd­ari notar eigin reynslu af ein­elti til að gera bók sem er ætlað að koma af stað vit­und­ar­vakn­ingu um það. Hann safnar fyrir útgáfu hennar á Karolina Fund.

Kristvin Guðmundsson.
Kristvin Guð­munds­son. Mynd: Aðsend

Kristvin Guð­munds­son er ljós­mynd­ari sem hefur starfað sem slíkur und­an­farin ár. Hann útskrif­að­ist úr New York Institude of Pho­tograpy og stofn­aði Iceland.Photo fyrir nokkrum árum síðan.

Það sem Kristvin hefur verið að gera und­an­farin ár er að mynda nátt­úru, and­lits­myndir, norð­ur­ljós og margt fleira. Einnig hefur hann myndað vel flesta tón­list­ar­menn Íslands á tón­leikum. Þá opn­aði Kristvin grúppu á Facebook sem heitir Aurora Hunters Iceland þar sem norð­ur­ljósa upp­lýs­ingar koma fram og hefur hún stækkað gíf­ur­lega und­an­farin ár og telur nú rúm­lega 15 þús­und ein­stak­linga um allan heim.

Nú safnar hann áheitum á Karolina fund til að gefa út ljós­mynda­bók sem er ætlað að koma af stað vit­und­ar­vakn­ingu um ein­elti. Bókina „Erum við fórn­ar­lömb ein­eltis?“

Kristvin segir að hug­myndin að bók­inni hafi kviknað vegna eigin reynslu. „Ég varð fyrir gíf­ur­legu ein­elti alla mína skóla­göngu og hef þurft að glíma við það alla ævi síðan.

[adspot]Eftir að ég náði ákveðnum árangri í minni bar­áttu við þennan for­tíð­ar­draug lang­aði mig að vekja athygli á þessu mál­efni þannig að ég hugs­aði það lengi hvernig ég gæti látið þetta lifa sem lengst. Börnin mín lentu líka í ein­elti þannig það hvatti mig en meira að fara í þetta verk­efni. En í dag koma reglu­lega fram fréttir af fólki sem er að lenda í ein­elti. Þannig fædd­ist hug­myndin af þess­ari bók.“

Hann segir að þema bók­ar­innar sé þannig að teknar verða and­lits­myndir af fólki, bæði þekktum og óþekktum and­litum. „Það er svo marg­sannað að ein­elti hefur elt ótrú­leg­asta fólk. Ég vill setja fókus á augu við­kom­andi þannig að sá sem sér verður að horfast í augun við mynd­ina og reyna að svara spurn­ing­unni.“

Það sem Kristvin vill gera með þess­ari bók er að sýna fólki að ein­elti hefur plagað fólk á hverjum degi. „Ég vill vekja athygli á að ein­elti er orðið svo stórt mein í dag. Hér áður fyrr eins og þegar ég var yngri þá kom ég heim og þar var minn griða­staður. Í dag eltir það þið hvert og hvenær sem er með til­komu nets­ins. Þetta hefur orsakað að fólk fær hvergi frið. Einnig sýna fram á að hin and­legu sár sem ein­elti býr til gróa seint.“

Hér er hægt að skoða og taka þátt í verk­efn­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolinafund

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár