Landsbankinn ætlar að byggja höfuðstöðvar við Austurhöfn

Lands­bank­inn ætlar að byggja nýjar höf­uð­stöðvar í Aust­ur­höfn, og kostn­að­ur­inn er áætl­aður tæp­lega níu millj­arðar króna. Bankinn mun minnka við sig um helm­ing með nýju höf­uð­stöðv­unum.

Afstöðumynd af Austurhöfn.
Afstöðu­mynd af Aust­ur­höfn. Mynd: Landsbankinn

Bankaráð Lands­bank­ans hefur tekið ákvörðun um að byggja höf­uð­stöðvar bank­ans á lóð­inni við Aust­ur­höfn í miðbæ Reykja­víkur. Frá þessu er greint í frétta­til­kynn­ingu frá bank­anum.

Bankinn hefur skoðað ýmsa kosti í hús­næð­is­málum í sam­vinnu við ráð­gjaf­ar­fyr­ir­tækið KPMG og verk­fræði­stof­una Mannvit, og nið­ur­staða grein­ingar KPMG var sú að ákjós­an­leg­ast væri að flytja höf­uð­stöðv­arnar í Aust­ur­höfn. KPMG leit á hag­kvæmni, verð­gildi húsa til fram­tíðar, sam­göngur, stað­setn­ingu, skipu­lags­mál, sveigj­an­leika hús­næðis og þjón­ustu og mann­líf í nágrenn­inu þegar skoð­aðir voru mis­mun­andi kostir. Meðal ann­arra kosta sem voru skoð­aðir voru lóðir í grennd við Borg­ar­tún, Kringl­una og Smára­lind.

Lands­bank­inn keypti lóð­ina við Aust­ur­höfn árið 2014 með það í huga að þar myndu rísa nýjar höf­uð­stöðvar bank­ans. Í kjöl­far gagn­rýni á það var ákveðið að fresta áformunum og fara yfir málið. Nið­ur­staðan er sem fyrr segir að halda áfram með áformin um bygg­ingu höf­uð­stöðva við hlið Hörpu.

Kostn­að­ur­inn við að byggja nýjar höf­uð­stöðvar verður tæpir níu millj­arðar króna, að með­töldu lóð­ar­verð­inu, að mati Mannvits. Samkvæmt skipu­lagi verður húsið 16.500 fer­metrar en bank­inn ætlar sér að nýta 10 þús­und fer­metra sjálfur og leigja út eða selja 6.500 fer­metra. Áætlaður kostn­aður við hlut­ann sem bank­inn ætlar að nýta er 5,5 millj­arðar. Á móti kostn­aði kæmi einnig sölu­verð­mæti þeirra fast­eigna sem bank­inn getur selt við flutn­ing­ana.

Í frétta­til­kynn­ing­unni kemur fram að árlegur sparn­aður vegna flutn­inga sé met­inn vera um 500 millj­ónir króna. Þar er haft eftir Helgu Björk Eiríks­dóttur, for­manni banka­ráðs, að starf­semi bank­ans í mið­borg­inni sé í þrettán húsum, og hús­næðið sé bæði óhag­kvæmt og óhent­ugt. „Þetta er eitt af þeim skrefum sem brýnt er að taka til að bæta rekst­ur­inn og gera Lands­bank­ann betur í stakk búinn til að þró­ast í síbreyti­legu umhverfi. Við munum vanda til verka við úrlausn þessa máls, enda mik­il­vægt að vel tak­ist til. Við viljum gæta sér­stak­lega að því að hús bank­ans við Aust­ur­stræti 11, sem hefur menn­ing­ar­legt og sögu­legt gildi, fái áfram að njóta sín.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár