Virðist vera sem um eitt prósent Íslendinga sé með veiruna

Fyrstu nið­ur­stöður úr skimunum Íslenskrar erfða­grein­ingar benda til þess að mun færri séu með veiruna í íslensku sam­fé­lagi en að fyrri skimanir, á fólki sem hafði verið í sam­skiptum við smit­aða, bentu til.

Þórólfur Guðnason sótt­varn­ar­læknir segir að fyrstu nið­ur­stöður sem borist hafa úr skimunum Íslenskrar erfða­grein­ingar bendi til þess að um eitt pró­sent lands­manna sé með veiruna sem veldur COVID-19 sjúk­dómnum. Frá þessu greindi hann í Silfrinu á RÚV í dag.

Fyrri próf­anir hafa aðal­lega verið á fólki sem kom frá helstu háhættu­svæðum. Í morgun höfðu 161 manns greinst þegar búið var að taka 1.545 sýni. Það þýðir að um tíu pró­sent þeirra sem höfðu verið próf­aðir úr þeim hópi sem er í sótt­kví eða ein­angrun höfðu greinst með veiruna. Prófanir Íslenskrar erfða­grein­ingar á öðrum hópum sýnir að smit eru mun óal­geng­ari þar, eða í kringum eitt pró­sent. Þórólfur sagði að frek­ari nið­ur­stöður ættu að koma frá Íslenskri erfða­grein­ingu í dag.

Á síð­unni covid.is kemur fram að í morgun klukkan 7:30 hafi alls 1.545 sýni verið tekin. Klukkan 9:30 hafði teknum sýnum fjölgað 1.868, eða um 323, án þess að neitt nýtt smit hefði greinst. Allar líkur eru á að þar sé um að ræða skimanir sem fram­kvæmdar hafa verið af Íslenskri erfða­grein­ingu.

[adspot]Þórólfur sagði einnig að hann hefði efa­semdir um að það myndi skila árangri að loka landa­mærum, eins og mörg ríki eru að gera. Hér­lendis hafi verið lögð áherslu á að ein­angra veiruna og halda henni frá þeim sem eru við­kvæm­astir. Það hafi gengið vel.

Skimanir Íslenskrar erfða­grein­ingar hófust á föstu­dags­morgun og unnið er úr nið­ur­stöðum þeirra um næt­ur. Þús­undir Íslend­inga bók­uðu tíma í skimun eftir COVID-19 ­sjúk­­dómnum hjá Íslenskri erfða­­grein­ingu eftir að opnað var fyrir bók­­anir á fimmtu­dags­kvöld og fljót­­lega þurfti að bæta við tímum vegna mik­illar eft­ir­­spurn­­ar.

Í til­kynn­ingu frá Íslenskri erfða­grein­ingu sem send var út á föstu­dag sagði að mik­ill meiri­hlut­i þeirra sem smit­­ast verði ekki alvar­­lega veik­­ir. Flestir sem komi í skimun hafi aldrei fundið fyrir ein­­kennum og séu því lík­­­lega ekki smit­andi. Það sama eigi við alla starfs­­menn í hús­inu, hvort sem þeir starfa við skimanir eða ekki. Það sé því ekki meiri hætta á ferðum í hús­inu en ann­­ars staðar í borg­inni þar sem fólk kemur sam­­an.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár