Vill breyta heiminum – Sandi Toksvig berst fyrir jafnrétti

Danski aðgerðasinn­inn, þátta­stjórn­and­inn og grínist­inn Sandi Toksvig er þekkt fyrir að vera skörp og fljót að hugsa. Hún hefur nú stofnað stjórn­mála­flokk og tekið að sér að stýra einum vin­sælasta sjón­varps­þætti í Bret­landi. Kjarninn skoð­aði sögu hennar.

Sandi stýrir nú einum vinsælasta skemmti- og spurningaþættinum á BBC Two.
Sandi stýrir nú einum vin­sælasta skemmti- og spurn­inga­þætt­inum á BBC Two. Mynd: Skjáskot úr þættinum QI sem sýndur er á BBC Two.

Fjöl­miðla­konan, rit­höf­und­ur­inn og grínist­inn Sandi Toksvig hefur verið opin­ber per­sóna í Bret­landi um ára­bil og hefur ekki setið auðum höndum um ævina. Ung byrj­aði hún að skrifa og varð hún þekkt fyrir beittan húmor og að vera snögg til svars. Hún var með þeim fyrstu til að koma út úr skápnum á tíunda ára­tug síð­ustu aldar í Bret­landi og fékk bágt fyrir. Hún er aðgerðasinni og berst fyrir jafn­rétti kynj­anna og fyrir minni­hluta­hópa og hefur hún nú stofnað stjórn­mála­flokk þar sem mál­efni kvenna eru í fyr­ir­rúmi. Hún hefur einnig tekið við einum vin­sælasta spurn­inga­þætti í Bret­landi og skrifar hún bækur, leik­rit og söng­leiki.

Sandi hélt ræðu í til­efni kvenna­göng­unnar í London þann 21. jan­úar síð­ast­lið­inn en hund­ruðir þús­unda kvenna út um allan heim mót­mæltu emb­ætt­is­töku Donald Trump sem for­seta Banda­ríkj­anna. Meðal ann­ars hitt­ust konur á Aust­ur­velli á sama tíma. Sandi tal­aði um að mik­il­vægt væri að jafna laun kynj­anna og að standa vörð um rétt kon­unnar til að ráða yfir sínum eigin lík­ama. Hún sagði að betra væri að reisa brýr en múra og sagð­ist hún ekki líða for­dóma gagn­vart fólki sem er öðru­vísi á ein­hvern máta eða vegna trú­ar­bragða.

Vildi ung hafa áhrif

Sandi er fædd í Danmörku árið 1958 en vegna starfa föður hennar þá ólst hún upp víðs­vegar um heim­inn. Hann vann sem frétta­rit­ari og dvaldi fjöl­skyldan aðal­lega í New York. Móðir hennar er bresk og bjuggu þau einnig í London á tíma­bili. Hún fór í háskóla í Cambridge þar sem hún lagði stund á lög­fræði, for­leifa­fræði og mann­fræði en þaðan útskrif­að­ist hún með ágæt­is­ein­kunn. Hún hefur greint frá því að draum­ur­inn hafi verið að verða mann­rétt­inda­lög­fræð­ingur en að hún hafi kom­ist að því að fleiri leiðir séu til að hafa áhrif á sam­fé­lagið. Sú leið sé í gegnum kímni­gáfu og hafi hún ákveðið að feta þá slóð.

Hún byrj­aði ung að skrifa og vera með uppi­stand. Síðan hefur hún verið með sína eigin þætti í útvarpi og sjón­varpi í Bret­landi sem og skrifað leik­rit og gefið út yfir tutt­ugu bækur. Hún hefur hlotið ýmis verð­laun og við­ur­kenn­ingar fyrir störf sín.

Fyrsta konan til að stjórna svo stórum þætti

Sandi stjórn­aði útvarps­þætt­inum The News Quiz á BBC Radio 4 í ein níu ár en hefur nú tekið við þátta­stjórn í skemmti- og spurn­inga­þætt­inum QI á BBC Two af Stephen Fry. Hann var gríð­ar­lega vin­sæll þátta­stjórn­andi eftir 13 ár í starfi og var áhorf á þátt­inn alltaf mikið. Þess vegna má ætla að krefj­andi hafi verið fyrir Sandi að fylla í skarðið og kviðu margir fyrir þess­ari breyt­ingu. Sandi er fyrsta konan til að stjórna þætti af þess­ari stærð­argráðu í Bret­landi. Hún er sögð hafa verið hörð á því að fá sömu laun og Fry fyrir starf sitt í QI enda um sama starf að ræða.

Við­brögðin hafa ekki leynt sér og virð­ist fólk vera almennt ánægt með breyt­ing­una. Sandi var ekki ókunnug þætt­inum þar sem hún hefur verið gestur í honum sextán sinnum og því má ætla að hún þekki vel til hans.

Álits­gjafi The Guardian segir að Sandi hafi verið athugul og per­sónu­leg sem nýr þátta­stjórn­andi QI. Hún hafi verið nógu örlát til að leyfa gestum sínum að finna sína eigin snertifleti á mál­efnin en nógu skörp til að koma með sína eigin brand­ara þegar hún fékk tæki­færi til. Hún hafi einnig verið nógu ströng til að halda hlut­unum gang­andi á snörpum hraða. Hann telur því að hún muni pluma sig vel í QI.

Fékk morðhótanir

Sandi hefur verið ötull tals­maður sam­kyn­hneigðra en hún kom sjálf út úr skápnum árið 1994. Var hún fyrsta konan til að gera það opin­ber­lega í Bret­landi. Henni var sagt að hún myndi aldrei fá vinnu aftur en frá þessu greindi hún í við­tali við The Tel­egraph í ágúst 2016. Hún segir frá því að hún og fjöl­skylda hennar hafi þurft að fá sér­staka örygg­is­gæslu á sínum tíma og að margir hafi tekið fregn­unum illa.

Hún á tvær dætur og einn son með fyrr­ver­andi konu sinni en hún er nú gift sál­fræð­ingnum Debbie Toksvig. Þær giftu sig um leið og lög­leið­ing hjóna­banda fólks af sama kyni gekk í gildi í Bret­landi í mars 2014. Yfir tvö þús­und manns mættu í brúð­kaup þeirra þrátt fyrir að aðeins rúm­lega hund­rað manns hafi verið boðið. Ástæðan fyrir því er sú að Sandi lýsti því yfir að allir þeir sem vildu halda upp á áfang­ann með þeim væru vel­komnir. Fjöldi ókunn­ugs fólks úr ýmsum áttum mætti því til að gleðj­ast með par­inu.

[quote font="0" align="right“]Ég tel að leynd­ar­mál séu krabba­mein sál­ar­innar.[/quote]

Ástæðan fyrir því að koma út úr skápnum á þessum tíma var að hennar sögn fyrir börnin sín; svo þau þyrftu ekki að skamm­ast sín eða fela það að eiga tvær mæður. „Ég tel að leynd­ar­mál séu krabba­mein sál­ar­innar,“ segir hún í því því sam­bandi og greindi frá því að hún hafi ekki viljað á þessum tíma lifa í leyni og hafi því tekið þessa ákvörðun þrátt fyrir aðvar­anir. Hún segir jafn­framt í fyrr­nefndu við­tali að þetta hafi verið erf­iður tími, hún hafi fengið morð­hót­anir og að fjöl­skyldan hafi þurft að fara í felur í tvær vikur. En fátt er svo með öllu illt að eigi boði nokkuð gott því hún fékk einnig skila­boð og bréf frá konum sem þökk­uðu henni hafa fyrir að koma út með þessum hætti.

Vill betri heim fyrir börnin sín

Stjórn­mál hafa gegnt veiga­miklu hlut­verki í lífi Sandi en hún hefur verið um ára­bil aðgerðasinni og tals­maður fyrir rétt­indum kvenna. Hún tók til að mynda þátt í stofnun stjórn­mála­flokks með áherslur á jafn­rétti kvenna, eða eins konar kvenna­lista, árið 2015 sem ber nafnið The Women´s Equality Party.

Sandi gerði grein fyrir þeirri ákvörðun sinni að stofna stjórn­mála­flokk í TED-fyr­ir­lestri en þar fjallar hún um jafn­rétti kynj­anna og hvernig kyn­bundin mis­munun birt­ist henni. Hún byggir fyr­ir­lest­ur­inn upp eins og uppi­stand og hún spyr sig af hverju þessi mis­munun sé látin við­gang­ast. Því þrátt fyrir að margir séu til­búnir að leggja sitt að mörkum og gera eitt­hvað í hlut­unum þá breyt­ist sam­fé­lagið hægt. Hún segir að hvati sinn til að berj­ast fyrir þessum ákveðna mál­stað hafi verið sá að hún vildi betri heim fyrir börnin sín þrjú.

Barátta framundan

Sandi seg­ist hafa áttað sig á því, fyrir ekki svo löngu síðan, að mikil vinna væri enn framundan í jafn­rétt­is­málum. Ekki væri jafn­ræði komið á og að bar­áttan væri ekki bundin við sög­una eða for­tíð­ina. Því hvergi í heim­inum fái konur sömu laun fyrir sömu vinnu og þess vegna telur Sandi það mik­il­vægt að fá til dæmis fleiri konur í stjórnun fyr­ir­tækja og í áhrifa­stöður. Hún seg­ist hafa viljað taka málin í sínar eigin hendur og stofn­aði hún því þennan flokk með áherslur á mál kvenna. Við­brögðin hafi ekki látið á sér standa og hafa konur og karlar skráð sig í flokk­inn og sýnt áhuga.

[quote font="0" align="right“]Ímyndið ykkur ef við gætum virkjað millj­ónir kvenna um heim allan sem segj­ast vera búnar að fá nóg af hefð­bundnum stjórn­málum og þrasi. Við gætum bók­staf­lega breytt heim­inum og það er það sem ég vil.[/quote]

Sandi segir að vegna þess­ara góðu við­bragða hafi mál­efni þeirra borið á borð ann­arra stjórn­mála­flokka. Hún telur þó að ekki sé nóg að stofna einn flokk í einu landi heldur þurfi að verða breyt­ing á alheims­vísu. Hún segir að hún vilji sjá flokka með þessar áherslur í öllum löndum. „Ímyndið ykkur ef við gætum virkjað millj­ónir kvenna um heim allan sem segj­ast vera búnar að fá nóg af hefð­bundnum stjórn­málum og þrasi. Við gætum bók­staf­lega breytt heim­inum og það er það sem ég vil,“ segir Sandi og lýkur þannig fyr­ir­lestr­inum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár