Ármann ætlar ekki að gefa kost á sér til endurkjörs í Kópavogi

Ármann Kr. Ólafsson odd­viti Sjálf­stæð­is­flokks­ins og bæj­ar­stjóri í Kópavogi frá árinu 2012 ætlar ekki að sækj­ast eftir end­ur­kjöri í sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ing­unum í maí.

Ármann Kr. Ólafsson hefur verið oddviti Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi og bæjarstjóri frá árinu 2012.
Ármann Kr. Ólafsson hefur verið odd­viti Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Kópavogi og bæj­ar­stjóri frá árinu 2012. Mynd: Heimasíða Kópavogs.

Ármann Kr. Ólafsson, bæj­ar­stjóri í Kópavogi, ætlar ekki að sækj­ast eftir end­ur­kjöri í próf­kjöri Sjálf­stæð­is­flokks­ins í bænum fyrir kom­andi sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingar. Frá þessu segir hann í frétta­til­kynn­ingu í dag.

Ármann hefur verið bæj­ar­full­trúi allt frá árinu 1998 og bæj­ar­stjóri frá árinu 2012, en seg­ist nú telja tíma­bært að stíga til hliðar og að annar taki við kefl­inu.

„Á þeim tíma sem ég hef starfað í bæj­ar­mál­unum hefur Kópa­vogur tekið miklum breyt­ingum þar sem fjöldi íbúa í bænum hefur tvö­fald­ast og telur nú um 40.000 manns. Ég er stoltur af því að hafa starfað með Sjálf­stæð­is­flokknum í gegnum þær umbreyt­ingar sem hafa átt sér stað í Kópavogi og hafa leitt flokk­inn síð­ustu 12 ár,“ segir í yfir­lýs­ingu Ármanns, sem lesa má í heild sinni hér að neðan.

Prófkjör Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Kópavogi fer fram þann 12. mars, en flokk­ur­inn á í meiri­hluta­sam­starfi í bænum ásamt Fram­sókn­ar­flokki. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn er með 5 af 11 bæj­ar­full­trúum og fékk 36,12 pró­sent atkvæða í sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ing­unum í Kópavogi árið 2018.

Tilkynning Ármanns í heild sinni:

Á fundi kjör­nefndar Sjálf­stæð­is­fé­lags­ins í Kópavog í gær­kvöldi skýrði ég nefnd­inni frá því að ég myndi ekki sækj­ast eftir end­ur­kjöri í próf­kjöri Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Kópavogi þann 12. mars n.k. vegna kom­andi sveit­ar­stjórn­ar­kosn­inga.

Síðustu 25 ár hef ég helgað mig bæj­ar­mál­unum í Kópavogi. Ég var kjör­inn bæj­ar­full­trúi árið 1998 og hef verið bæj­ar­stjóri frá árinu 2012 en ég tel nú tíma­bært að stíga til hliðar og að annar taki við kefl­inu.

[adspot]

Á þeim tíma sem ég hef starfað í bæj­ar­mál­unum hefur Kópa­vogur tekið miklum breyt­ingum þar sem fjöldi íbúa í bænum hefur tvö­fald­ast og telur nú um 40.000 manns. Ég er stoltur af því að hafa starfað með Sjálf­stæð­is­flokknum í gegnum þær umbreyt­ingar sem hafa átt sér stað í Kópavogi og hafa leitt flokk­inn síð­ustu 12 ár. Ég hef ávallt haft þá sýn að góður rekstur og ábyrg fjár­mála­stjórn sé und­ir­staða blóm­legs vaxtar bæj­ar­fé­lags­ins og er þeirrar skoð­unar að það skýri þá sterku stöðu sem bær­inn nýtur núna.

Á þeim tíma sem ég hef setið í bæj­ar­stjórn Kópavogs hef ég kynnst og átt sam­leið með fjölda fólks. Vil ég nota þetta tæki­færi og þakka Kópa­vogs­búum öllum, öfl­ugu og góðu starfs­fólki Kópa­vogs­bæjar, Sjálf­stæð­is­fólki í Kópavogi fyrir þeirra ómet­an­lega og óeig­in­gjarna starf, póli­tískum full­trúum allra flokka í Kópavogi og á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og þeim full­trúum fyr­ir­tækja og félaga­sam­taka sem ég hef kynnst og unnið með í gegnum tíð­ina.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2022

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár