Rússagrýlan skýtur Svíum skelk í bringu

Flestir Íslend­ingar þekkja þjóð­vís­una um hana Grýlu gömlu sem dó eftir að hafa gef­ist upp á ról­unum. Og eng­inn syrgði. En þær eru fleiri grýl­urnar og að minnsta kosti ein þeirra hefur hreint ekki gef­ist upp á ról­unum, nefni­lega rússa­grýlan.

Sænska veð­ur­stofan spáði sól og blíðu sl. mið­viku­dag (6.júní) og margir Svíar hugðu gott til grill­glóðar eða ferðar í skóg­inn, eins og venja margra er á þessum degi. En að morgni 5. júní fengu 22 þús­und Svíar orð­send­ingu sem koll­vörp­uðu öllum hug­myndum um grill­aðar pylsur og huggu­leg­heit með fjöl­skyld­unni. Orð­send­ingin var frá yfir­stjórn hers­ins og hljóð­aði á þá leið að öllum sem skráðir eru í heima­varn­ar­liðið bæri að mæta á stóra æfingu, með hernum, að morgni þjóð­há­tíð­ar­dags­ins. Margir hafa ugg­laust lesið orð­send­ing­una tvisvar til að full­vissa sig um að ekk­ert færi milli mála. Það eru nefni­lega 43 ár síðan allt heima­varn­ar­liðið hefur verið kallað til æfinga, gerð­ist síð­ast árið 1975. Í til­kynn­ingu sem Micael Bydén yfir­maður hers­ins sendi fjöl­miðlum sagði hann heima­varn­ar­liðið skipta afar miklu máli, væri ómet­an­legur stuðn­ingur við her­inn þegar á þyrfti á að halda.

Ekkert að óttast

Í áður­nefndri til­kynn­ingu lagði yfir­maður hers­ins áherslu á að hér væri um að ræða æfingu og þess vegna hefði almenn­ingur ekk­ert að ótt­ast. Alls tóku 40 deildir heima­varn­ar­liðs­ins þátt í æfing­unni en yfir­maður hers­ins bjóst við að með svo skömmum fyr­ir­vara myndi um það bil helm­ingur þeirra sem skráðir eru í heima­varn­ar­liðið mæta á æfing­una.

Fyrir tveimur vikum fengu öll heim­ili í Svíþjóð bæk­ling inn um bréfalúg­una. Inni­haldið var óvenju­legt, semsé að kynna lands­mönnum hvernig þeir skyldu bregð­ast við ef á skylli stríð, eða meiri­háttar nátt­úru­ham­farir. Fólki var ráð­lagt að geyma bæk­ling­inn á vísum stað.

Sumum Svíum brá í brún en aðrir brostu út í annað.

Óttinn við Rússa

Ástæðan fyrir þess­ari fjöl­mennu og viða­miklu æfingu er aug­ljós. Svíum, eins og fleirum, stendur stuggur af atferli Rússa. Í sept­em­ber í fyrra efndu Rússar til fjöl­menn­ustu her­æf­inga í sögu lands­ins, talið er að um það bil 100 þús­und her­menn hafi tekið þátt í æfing­unum en Rússar sögðu þátt­tak­endur hafa verið um 13 þús­und en nokkrum vikum fyrr tóku þrjú kín­versk her­skip þátt í her­æf­ingum rúss­neska flot­ans á Eystra­salti. Á leið­inni þurftu kín­versku her­skipin að fara um danskt haf­svæði sem þau höfðu fullt leyfi til sam­kvæmt alþjóða­samn­ingum. Stjórn­völd í Eystra­salts­ríkj­unum hafa miklar áhyggjur af hern­að­ar­brölti Rússa, minnug þess að inn­limun Rússa á Austur-Úkraínu hófst með ,,her­æf­ingu“. Um svipað leyti og æfingar Rússa stóðu yfir í sept­em­ber efndu Svíar til fjöl­mennrar her­æf­ingar, með þátt­töku her­manna nokk­urra NATO ríkja. Sænski varn­ar­mála­ráð­herr­ann sagði þá aðspurður, að sam­vinna sænska hers­ins og NATO væri ekki tákn um hugs­an­lega aðild Svía að banda­lag­inu. Í ljósi breyttra aðstæðna hefðu Svíar leitað auk­innar sam­vinnu við vina­þjóð­irnar í NATO, eins og ráð­herr­ann komst að orði.

Svíar hafa ekki átt í stríði frá árinu 1814, þá börð­ust þeir við Norðmenn.

Herskylda og aukin útgjöld

Um síð­ast­liðin ára­mót tóku Svíar upp her­skyldu á nýjan leik, eftir að hafa lagt hana af árið 2010. Eftir að sú breyt­ing tók gildi skráðu mun færri sig í her­inn en reiknað hafði verið með og því var, að mati varn­ar­mála­ráðu­neyt­is­ins nauð­syn­legt að inn­leiða her­skyld­una á ný.

Á þessu ári og því næsta munu sam­tals að minnsta kosti átta þús­und manns fá þjálfun í her­mennsku. Fjár­veit­ingar til hers­ins hafa einnig verið stór­auknar og munu á þessu ári og tveimur næstu sam­tals aukast um sem sam­svarar 110 millj­örðum íslenskra króna. Sú upp­hæð hrekkur þó skammt að mati yfir­stjórnar hers­ins sem margoft hefur vakið athygli á nauð­syn þess að end­ur­nýja tækja­kost hers­ins, en hann er að stærstum hluta kom­inn til ára sinna.

Aukin samvinna Svía við Dani og Finna

Þótt Svíar og Danir hafi fyrr á öldum eldað grátt silfur eru nú aðrir tímar. Síð­ast­liðið haust skrif­uðu varn­ar­mála­ráð­herrar land­anna, þeir Peter Hultqvist og Claus Hjort Frederik­sen undir sam­komu­lag um stór­aukið sam­starf sænska og danska hers­ins. Þeir hitt­ust svo aftur fyrir nokkrum dögum, í Kaup­manna­höfn og eftir þann fund sagði danski varn­ar­mála­ráð­herr­ann við frétta­menn að nú væri verið að leggja lín­urnar varð­andi sam­starfið sem tæki til margra þátta. Ekki síst varð­andi miðlun upp­lýs­inga og nefndi ráð­herr­ann í því sam­hengi sér­stak­lega rad­ar­stöðvar. Yfir­stjórn hers­ins ákvað í fyrra að byggt skyldi nýtt 85 metra hátt rad­armastur á Borg­und­ar­hólmi.

Það gerir Dönum kleift að fylgj­ast með fjar­skiptum Rússa á Eystra­salti, rad­armastur sem var á Borg­und­ar­hólmi var tekið niður fyrir fjórum árum. Claus Hjort Frederik­sen sagði að áhyggjur Svía vegna hugs­an­legra aðgerða, eða jafn­vel árása Rússa væru síður en svo ástæðu­lausar og Danir deildu þeim áhyggjum. Ráð­herr­ann sagði dönsku stjórn­ar­flokk­ana hafa fullan skiln­ing á því að styrkja þyrfti varnir og búnað danska hers­ins. ,,Við verðum að snúa vörn í sókn varð­andi her­inn sem hefur verið fjársveltur árum saman“ sagði ráð­herr­ann. Fyrir þremur árum und­ir­rit­uðu Svíar og Finnar sam­komu­lag um nán­ara hern­að­ar­sam­starf land­anna. Þetta sam­komu­lag olli mik­illi reiði í Kreml en stjórn­völd þar töldu það til merkis um að Svíar hygð­ust ger­ast aðilar að NATO.

Sænska stjórnin samþykkti umdeilda gasleiðslu

Fyrir tveimur dögum sam­þykkti sænska rík­is­stjórnin beiðni Rússa um að ný gasleiðsla, Nord Stream2 fái að liggja um sænska efna­hags­lög­sögu á botni Eystra­salts. Þetta gerði stjórnin þótt hún hafi áður margoft lýst miklum efa­semdum um lagn­ingu leiðsl­unnar, en hún liggur frá Rúss­landi, um Eystra­salt, til Þýska­lands við hlið eldri lagnar, Nord Stream1 og er 1200 kíló­metra löng. Mikael Damber, atvinnu­mála­ráð­herra Svía sagði í frétta­við­tali að Svíar gætu í raun ekki synjað beiðn­inni en hefðu hins­vegar sett fram ýmis skil­yrði varð­andi fram­kvæmd­ina. Þegar ráð­herr­ann var spurður hvort Svíar væru með þessu að ,,hafa Rússa góða“ svar­aði hann því til að Svíar vildu lifa í sátt og sam­lyndi við allar þjóðir. Danir hafa ekki sam­þykkt að leiðslan liggi um danskt haf­svæði, við Borg­und­ar­hólm. Ef Danir neita Rússum um slíkt leyfi verða Rússar að fara króka­leið á þessu haf­svæði, með til­heyr­andi kostn­aði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár