Bólusetningum barna ábótavant

Þátttaka í bólu­setn­ingum barna hér á landi við 12 mán­aða, 18 mán­aða og 4 ára aldur er undir við­mið­un­ar­mörkum, það er að segja undir 95 pró­sentum.

Þátttaka í bólu­setn­ingum barna hér á landi við 12 mán­aða, 18 mán­aða og 4 ára aldur er undir við­mið­un­ar­mörkum, það er að segja undir 95 pró­sentum. Þetta kemur fram í minn­is­blaði sem heil­brigð­is­ráð­herra lagði fyrir rík­is­stjórn­ina á föstu­dag.

Á öðrum ald­urs­skeiðum er hún við­un­andi. Börn á Íslandi eru bólu­sett á fyrsta ári, við 3, 5, 6, 8 og 12 mán­aða aldur. Á öðru ári eru þau bólu­sett við 18 mán­aða aldur og síðan 4 ára, 12 ára og 14 ára.

Fyr­ir­komu­lag bólu­setn­inga hér á landi svipar mjög til fyr­ir­komu­lags­ins á hinum Norð­ur­lönd­unum. Þeim er ætlað að verja börn gegn alvar­legum smit­sjúk­dómum og er börnum með lög­heim­ili hér á landi boðin bólu­setn­ing, þeim að kostn­að­ar­lausu, gegn barna­veiki, hettu­sótt, H influenzae sjúk­dómi, kíg­hósta, mænu­sótt, misl­ingum, rauðum hundum og stíf­krampa. Vegna almennrar þátt­töku lands­manna í bólu­setn­ingum hefur sótt­varna­læknir ekki talið þörf á að gera bólu­setn­ingar að lög­bund­inni skyldu.

Sótt­varn­ar­læknir hefur leitað skýr­inga á því að þátt­taka á þessum ald­urs­skeiðum sé undir vænt­ingum og brugð­ist við því með því að kanna ýmsa þætti. Þannig telur hann ekki að skýr­ing­una megi finna í and­stöðu almenn­ings til bólu­setn­inga. Rann­sóknir sýni að yfir 95 pró­sent þátt­tak­enda séu frekar eða mjög hlynnt bólu­setn­ingum en ein­ungis 1-2 pró­sent mót­fallin. Sótt­varn­ar­læknir telur því óráð­legt að gera bólu­setn­ingu að lög­bund­inni skyldu.

Þá segir sótt­varn­ar­læknir að borið hafi á því að bólu­setn­ingar séu van­skráðar í raf­rænt kerfi heilsu­gæsl­unnar og upp­lýs­ingar ber­ist því ekki í bólu­setn­ing­ar­grunn sótt­varna­læknis. Við þessu hefur verið brugð­ist og hefur sótt­varna­læknir reglu­lega ítrekað við heil­brigð­is­starfs­menn að skrá allar bólu­setn­ingarra­f­rænt. Þá er í und­ir­bún­ingi að bæta not­enda­við­mót sjúkra­skrár­kerf­is­ins hvað varðar skrán­ingu bólu­setn­inga.

Sótt­varn­ar­læknir segir enn­fremur að út frá fyr­ir­liggj­andi upp­lýs­ingum um óvið­un­andi þátt­töku í bólu­setn­ingum við 12 mán­aða, 18 mán­aða og 4 ára aldur virð­ist ljóst að inn­köll­un­ar­kerfi heilsu­gæsl­unnar hvað bólu­setn­ingar varðar sé ófull­nægj­andi. Unnið sé að því að koma á við­vör­un­ar­kerfi í sjúkra­skrár­kerfum heil­brigð­is­stofn­ana þannig að hægt verði að hafa upp á óbólu­settum börnum og bjóða þeim bólu­setn­ingar.

Þá hefur komið fram í rann­sóknum að fræðsla til for­eldra um bólu­setn­ingar sé ekki næg. Óskað hefur verið eftir því að slík fræðsla verði skipu­lögð í mæðra- og ung­barna­vernd heilsu­gæsl­unnar. Að auki vinnur vel­ferð­ar­ráðu­neytið nú að nýju

Telur sótt­varn­ar­læknir margt benda til að þátt­taka barna í almennum bólu­setn­ingum hér á landi sé betri en opin­berar tölur segja til um. Í minn­is­blað­inu segir að sótt­varna­læknir telji að ekki sé ástæða til að ætla að þátt­taka hér sé svo slæm að ótt­ast megi að hér breið­ist út hættu­legir smit­sjúk­dómar. Mik­il­vægt er að gæta þess að sofna ekki á verð­inum og bregð­ast við með við­eig­andi hætti ef þátt­taka í bólu­setn­ingum barna verður óásætt­an­leg.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár