Persónuvernd er að mínu viti bófavernd

Jónas Krist­jáns­son rit­stjóri lést þann 29. júní og var jarð­sung­inn í vik­unni. Jónas var yfir­burða­maður innan sinnar stéttar en ekki síður í íslensku sam­fé­lagi almennt – með hár­beittum skrifum sínum og vinnu­brögðum sem breyttu blaða­mennsku til fram­tíðar.

Jónas Krist­jáns­son býr nú í þjón­ustu­í­búð fyrir aldr­aða, á fjórðu hæð með útsýni yfir borg­ina, og finnst sjálfum að þarna ríki yfir­þyrm­andi þögn. Hann horfir yfir heim­inn í hljóði, skel­eggur og skýr og alveg sama hvað fólki kann að finn­ast um hann. Þögnin minnir á að það er af sem áður var, og þó!

Þarna heldur hann úti blogg­inu sínu og sparar ekk­ert til þegar hann gagn­rýnir menn og mál­efni, nei, hann skrifar af lífs­þrótti ung­lings­ins og kannski er það lífsel­exír­inn hans, manns sem hefur lifað og hrærst í átökum og breyt­ingum sam­fé­lags­ins ára­tugum saman og haft þar áhrif sem blaða­maður og rit­stjóri á einu spræk­asta dag­blað­inu á Íslandi um langa hríð.

Hann býður upp á kaffi, súkkulaði og jarð­ar­ber og sólin skín á veit­ing­arnar meðan við spjöllum um fjöl­miðla og hug­sjónir, eilíf lög­mál hags­muna, flokka­blöð og við­skipta­blokkir, já, um ver­öld sem var … og ver­öld­ina okkar.

Þegar ég var að byrja í blaða­mennsku á Tímanum höfðu blöðin ein­hvern sem tók lög­reglu- og slökkvi­liðs­rúnt­inn, labb­aði á milli­stað­anna eða fór í strætó eða á bíl, eða hvernig sem það var, til að fá fréttir. Núna er þetta þannig að lög­reglan sendir út dag­bók eða til­kynn­ingar og þetta er birt meira og minna orð­rétt frá lög­regl­unni. Allt klippt og skorið. Þannig er mikið af fréttum núna. Þær eru klipptir og skornir textar frá stofn­unum; frá upp­lýs­inga­full­trúum og með ein­hvers konar ákvörð­unum um hvernig mál eigi að nota og búa til orð sem ekki þekkt­ust til að milda, eða eitt­hvað. Menn eru ekki þjófar og glæpa­menn lengur heldur sviga menn í kringum skatt­inn eða eitt­hvað svo­leiðis.

Þá var alltaf ein­hver með partí á föstu­dögum, svona drykkjupartí, og þangað fór öll blaða­manna­hjörðin að drekka sig fulla. Og mað­ur­inn sem hélt þetta partí var með nýj­ung eða eitt­hvað merki­legt og út af fyrir sig var ekk­ert við það að athuga. Svo kom þetta í blöð­unum að við­kom­andi væri að gera ein­hverja rosa­lega fína hluti. Þetta var sú spill­ing sem við hrærð­umst í.

---

Gagn­rýnin blaða­mennska varð til löngu seinna. Ástandið sem maður kynnt­ist á Tímanum var út af fyrir sig frítt spil innan þeirra marka að öll blöðin voru partur af kerf­inu og partur af stjórn­mál­unum, þannig að álit blaða­manna var á svip­uðum nótum og álit kerf­is­ins. Þá var ekk­ert talað um spill­ingu eða svo­leiðis. Þá var einn kommissar á Tímanum sem skrif­aði um póli­tík og hann tók yfir for­síð­una mán­uði fyrir kosn­ingar og skrif­aði for­síð­una meðan við höfðum bak­síð­una. Það var ekk­ert verið að rugla þessu saman. Forsíðan fór í þetta og kannski eitt­hvert fram­hald á blað­síðu tvö – en alvöru frétt­irnar voru á bak­síð­unni.

Ég man eftir einu sinni að ég fór upp á Bifröst í til­efni af því að þeir voru að hefja þar hót­el­rekstur. Ég sagði frá þessu hót­eli og skrif­aði meðal ann­ars að ein afgreiðslu­stúlkan hefði sagt að sér hefði liðið þá verst þegar hún missti sós­una yfir gest­inn. Þetta hafði verið teiti fyrir Samband íslenskra sam­vinnu­fé­laga, sem nátt­úr­lega fjár­magn­aði Tímann, og ég var beð­inn um að koma og tala við deild­ar­stjóra eða fram­kvæmda­stjóra útflutn­ings, en Bifröst féll þá undir hann, og hann var óskap­lega reiður og sagði: „Á Bifröst hellir eng­inn sósu yfir neinn!“ En þetta kom í blað­inu og það urðu engin eft­ir­mál af því á rit­stjórn­inni. Þetta fór alveg fram hjá þeim.

Fyrsta gagn­rýna rann­sókn­ar­blaða­mennskan byrj­aði með Víetnam. Ég skrif­aði leið­ara á móti stríð­inu og það olli óróa.

Af Tímanum fór ég á Vísi þar sem ég varð svo rit­stjóri. Þá var aðal­málið að koma okkur upp nýrri tækni því að tæknin á þessum blöðum öllum var gam­al­dags. Og í kringum 1972 fór prent­smiðja í gang sem blöðin áttu sam­eig­in­lega – nema Mogginn. Tveir menn sem höfðu verið bak­hjarlar blaðs­ins – Kristján í Kassa­gerð­inni og Sigfús í Heklu – unnu mikið með mér á þessum tíma. Þeir höfðu aldrei nein afskipti af neinu en þeir vildu bara að blaðið hætti að tapa!

Fyrsta gagn­rýna rann­sókn­ar­blaða­mennskan byrj­aði með Víetnam. Ég skrif­aði leið­ara á móti stríð­inu og það olli óróa. Þá ger­ist það að þessir gömlu menn deyja og við taka afkom­endur þeirra. Þeir voru allt öðru­vísi. Þeir sáu að blaðið var ekki lengur rekið með tapi og fara að skipta sér af. Þetta Víetnam-mál var eitt af því sem þeir skiptu sér af. Þarna verður mikið havarí sem endar með því að ég er rek­inn 1975. Þá stofn­uðum við Dag­blaðið. Við gátum fengið að prenta í þess­ari sam­eig­in­legu prent­smiðju. En mán­uði seinna, minnir mig, sendu þeir okkur bréf og sögðu okkur upp með mán­aðar fyr­ir­vara og það end­aði með því að Árvakur féllst á að prenta okkur, þannig að við fórum úr þess­ari sam­eig­in­legu prent­smiðju fátæku blað­anna og yfir í prentun hjá Mogganum. Morg­un­blaðið breytt­ist í kjöl­farið. Allir taka við sér þegar kemur sam­keppni.

---

Það hafði orðið til mikil stemn­ing með Dag­blað­inu og hún sýndi sig þegar útvarpið fór í verk­fall og við vorum með útvarp á ljós­vak­anum. Sýslu­maður kom og ætl­aði að loka útvarp­inu og þá komu hund­ruð manna og stóðu fyrir utan húsið til þess að hindra að sýslu­mað­ur­inn kæm­ist inn. Þetta var ólög­legt vegna þess að Rík­is­út­varpið hafði einka­rétt á útvarps­send­ingum. Hannes Hólm­steinn setti líka upp­út­varps­stöð í Valhöll en þetta var sú sem var tekin og henni lokað.

Við vorum blað almenn­ings. Síðar, þegar við sam­ein­uð­umst Vísi, breytt­ist þetta. Fólk hélt áfram að lesa blaðið en það leit ekki lengur á það sem upp­runnið hjá fólk­inu heldur værum við eitt af kerf­is­blöð­unum og orðið stofnun. Við náðum aldrei slíkri stemn­ingu eftir að þetta var sam­einað en við fengum pen­inga. Þannig var fjár­hags­legur blóma­tími þessa blaðs sem var kallað DV á síð­asta ára­tug 20. aldar.

Í sex ár ríkti mikil sam­keppni milli Dag­blaðs­ins og Vísis. Það var raun­veru­lega blóma­skeið okkar því að við höfðum feikn­ar­lega útbreiðslu og feikn­ar­legan lestur á árunum 1975 til 1981. Við vorum alltaf í plús en blaðið samt fátækt og við gátum ekki gert neitt sem kost­aði pen­inga. Um 1981 fórum við að tala um að sam­eina þessi blöð og þau voru sam­einuð á einni nóttu, enda á sömu hæð í sam­liggj­andi húsum. Bara borað á milli og opnað, ekk­ert flókn­ara.

Þá var Ellert Schram rit­stjóri Vísis og ég rit­stjóri Dag­blaðs­ins og þetta gekk glimr­andi fyrir sig fjár­hags­lega. Við gátum fjölgað starfs­fólki; tveir í erlendum fréttum í stað­inn fyrir einn; tveir í íþróttum í stað­inn fyrir einn og svo fram­vegis. Og við gátum fljót­lega farið að hafa mann í að gera eitt­hvað sem við vissum ekki hvað kæmi út úr. Eitt af því fyrsta var að við sendum Eirík Jónsson, sem síðar varð frægur, til Amster­dam í tvær eða þrjár vikur til að kanna fíkni­efna­mark­að­inn. Við gáfum okkur þetta, að ein­hver gæti farið í tvær til þrjár vikur og verið bara í því einu.

Þetta blað seld­ist mjög vel svo við vorum komnir á par við Moggann. Það var gott að vinna með Ellert, við höfðum engar áhyggjur af því hvernig leið­arar voru skrif­aðir. Það fannst mönnum ein­kenni­legt. Leiðarar eru bara um eitt­hvað sem mönnum dettur í hug en svo er fólk sem telur að leið­arar séu ein­hver stjórn á þjóð­inni – sem var alls ekki okkar mein­ing. Við Ellert skrif­uðum á víxl. Ég kann ekki að meta áhrif leiðar­anna, það er eng­inn mæli­kvarði til á það.

---

Í milli­tíð­inni hafði það gerst í útlöndum að farið var að kenna rekstr­ar­hag­fræði og finna ein­hverjar for­múlur til þess að bæta rekstur, og það var mjög mikið fólgið í því að taka yfir fyr­ir­tæki, reka helm­ing starfs­fólks­ins og arð­semin hækk­aði um 20 pró­sent eða eitt­hvað sem þessir menn töldu að væri hæfi­legt, en það er ekk­ert hægt að reka blað með 20 pró­sent hagn­aði. Það er bara vit­leysa.

Þetta kom til okkar í kringum alda­mótin þegar sonur Sveins, Eyjólfur, kom sem rekstr­ar­verk­fræð­ingur frá Banda­ríkj­unum og hann var með þessar dillur; að stofna nefndir til að kanna eitt­hvert vanda­mál, hvernig væri hægt að fjölga aug­lýs­ingum í blað­inu og það var settur blaða­maður í nefnd­ina og aug­lýs­inga­maður og þeir fengu hug­myndir og svo end­aði það með því að þeir reyndu að stjórna hver öðrum. Þetta varð vanda­mál um alda­mótin, þá fór lest­ur­inn að bila. Af því að fólk fatt­aði þetta.

Í útlöndum hefur tek­ist á nokkrum stöðum að verj­ast þessu af því að ein­hverjar fjöl­skyldur eiga blöð, blöð sem hafa verið fjöl­skyldu­eign í þrjár eða fjórar kyn­slóðir, blöð sem eru mjög góð. Og The Guardian er til dæmis í eigu stofn­unar sem er ein­hvers konar sjálfs­eign­ar­stofnun. Þeim hefur tek­ist að halda sér sem mjög góðu blaði þótt það hafi lent í mörgum póli­tískum svipt­ingum. Svo var Washington Post búið að vera í fjöl­skyldu­eign þegar Watergate var í gangi, fjöl­skyldan stóð á bak við þann hvell allan.

Allan þennan tíma hefur Rík­is­út­varpið verið stærsti og mest not­aði fjöl­mið­ill­inn. Útvarp í þá daga og núna bæði sjón­varp og útvarp og meira. Þar eru að mörgu leyti bestu frétta­menn­irnir en Rík­is­út­varpið er ríkið og voða­lega við­kvæmt fyrir póli­tískum áflogum. Og það lamar.

Við höfum ekk­ert svona hér. Eign­ar­haldið á Morg­un­blað­inu hefur færst meira yfir á sjáv­ar­út­veg­inn. Ég veit ekki hverjir eiga DV eða Frétta­blaðið en Frétta­blaðið er svona ný týpa af blaði sem bygg­ist á dreif­ingu, ekki neinu öðru. Það fær aug­lýs­ingar af því að það hefur ákveðna dreif­ingu og svo­leiðis blöð eru til alls staðar en þau eru aldrei mik­ils metin. Frétta­blaðið er hvað skást af slíkum blöðum, enda var það Gunnar Smári sem hélt utan um það. Það væri kannski hægt hér að hafa áskrift­ar­leiðir, eins og Stundin og Kjarninn gera. Þau eru nátt­úr­lega blöðin sem maður les, og Kvenna­blaðið. En þetta er mátt­lítið miðað við aðra fjöl­miðlun, að Rík­is­út­varp­inu ógleymdu. Allan þennan tíma hefur Rík­is­út­varpið verið stærsti og mest not­aði fjöl­mið­ill­inn. Útvarp í þá daga og núna bæði sjón­varp og útvarp og meira. Þar eru að mörgu leyti bestu frétta­menn­irnir en Rík­is­út­varpið er ríkið og voða­lega við­kvæmt fyrir póli­tískum áflogum. Og það lamar. En Rík­is­út­varpið er stabíl­asti fjöl­mið­ill­inn. Það yrði skelfi­legt ef RÚV færi. Þá væru bara einka­stöðvar og senni­lega yrði Stöð 2 og það batt­erí allt ofan á.

Blóma­skeið alvöru blaða­mennsku hér á landi hófst að vissu leyti með sjón­varp­inu. Því fylgdu hug­myndir frá Danmörku um hvernig sjón­varp var rekið þar og þar voru blaða­menn Danmarks Radio með þætti viku­lega um neyt­enda­mál. Þetta var flutt hingað eins og allur brans­inn er; meira og minna í ein­hverju sam­bandi við útlönd. Ég byrja í þessu 1961 og við fengum stafla af skand­in­av­ísku og bresku blöð­unum. Þau höfðu áhrif þá og hafa alltaf haft. Menn hlust­uðu á BBC og fólk var ekk­ert ein­angrað hér, þannig séð. Blaða­menn vissu allan tím­ann að hægt væri að gera betur og öðru­vísi.

Rann­sókn­ar­blaða­mennska er enn til staðar á góðum fjöl­miðlum. Ég held að útvarpið sé mjög lítið í henni samt og Kast­ljósið til dæmis ekki heldur. Silfur Egils er ekki svipur hjá sjón. Rosa­legur hæfi­leika­maður eins og Egill er sem sjón­varps­maður, alveg sér­stakur. Maður sér svo sem á honum að hann er orð­inn grýttur og bólg­inn og það er ósköp skilj­an­legt. En hann gerði mjög góða hluti þegar hrunið varð.

---

Enn hefur ekki verið fundið út hvernig við eigum að hafa fjöl­miðla næstu árin. En þeir sem reyna það eru til dæmis að þróa ýmis­legt með því að líta á aðila erlendis sem hafa áhyggjur af þessu, eins og The Guardian. Þeir eru með mjög virkan vef­miðil og hann er frír. En maður opnar ein­hverja grein þar og þá kemur áminn­ing um að það sé dýrt að gefa út gott efni og mælt með að menn borgi tvö pund ámán­uði eða eitt­hvað svo­leiðis. Þetta er ein til­raunin, að fá fólk til að fast­setja vilj­andi pen­inga mán­að­ar­lega. Svo eru önnur blöð sem hafa bein­línis áskrift og aug­lýsa það alltaf ef maður opnar grein. Þá get­urðu séð grein­ina en með fylgir áminn­ing um að fleiri greinar fáist fyrir um tvo doll­ara á mán­uði. Þetta gerir New York Times.

Þegar menn eru búnir að hafa inter­netið svona lengi og venj­ast því að allar fréttir séu ókeypis er þetta erfitt. Það eru ekki svo margir sem hafa mikla hug­sjón. Þessi blöð reyna í gegnum frétta­skýr­ingar að hala inn fólk sem hefur þá hug­sjón að vilja borga fyrir þetta efni.

Vanda­málið er að rekstr­ar­módel eins og þau sem Eyjólfur Sveins­son var með sýna að rann­sókn­ar­blaða­mennska er tíu sinnum dýr­ari en venju­leg blaða­mennska og að greinar sem tekur langan tíma að gera eru fimm sinnum dýr­ari í vinnslu en þær styttri. Þá er ég að vísa í vinnu­tím­ann. Þetta hefur allt saman verið reiknað út.

---

Svo er það stjórn­sýslan. Hér er ekki póli­tísk stemn­ing fyrir því að setja lög um að skylda til að fund­ar­gerðir séu opnar og að þeim sé ekki breytt í vinnu­gögn með nýjum titli svo að hægt sé að halda þeim leyndum. Það þarf lög um almenna opnun skjala. Það er hægt að klaga svona birt­ing­ar­mál til ein­hverrar stofn­unar en stofn­an­irnar eru rosa­lega konservatí­var. Svo eru dóms­mál og þá dæmt að mik­ill hluti þess­ara skjala eigi erindi til almenn­ings en í þeim séu kannski atriði flokkuð sem prí­vat­mál.

Píratar vilja opna þetta allt saman. Ég er sam­mála því. Ég held að einka­mál séu algjör­lega ofmetin. Per­sónu­vernd er að mínu viti bófa­vernd. Allir segja að þetta séu prí­vat­mál, við­skipta­leynd­ar­málin og annað. En öll stjórn­sýslan á að vera opin og fjár­mál banka eiga líka að vera opin. Það eiga að vera sam­tök milli þjóða um að hafa þetta eins alls staðar. Evr­ópu­sam­bandið hefur nú gert dálítið í að hafa hemil á aflandseyjum og gert samn­inga við sumar þeirra.

---

Ég held að ungt fólk ætti ekki að fara í blaða­mennsku. Alls ekki ef það ætlar að stofna heim­ili og fara í sam­búð og eign­ast börn. Það er, held ég, von­laust fyr­ir­bæri. En líður lýð­ræðið ekki fyrir það ef fólk sækir ekki í þessi störf? Jú jú. En við hvern eruð þið þá að tala? Haldið þið að ein­hver stjórn­mála­maður muni taka að sér að bæta þetta ástand? Við þurfum nátt­úru­lega bara blóð­uga bylt­ingu, það er ekk­ert öðru­vísi. En það mundu ekki vera nema hund­rað manns sem vildu taka þátt í henni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár