Páll Valur hættur í Bjartri framtíð

Fyrr­ver­andi þing­maður Bjartrar fram­tíðar hefur sagt skilið við flokk­inn. Honum finnst flokk­ur­inn hafa gefið allt of mikið eftir í lyk­il­málum í rík­is­stjórn­ar­sam­starf­inu.

Páll Valur Björnsson var þingmaður Bjartrar framtíðar á síðasta kjörtímabili. Hann sóttist eftir endurkjöri en hlaut ekki brautargengi.
Páll Valur Björns­son var þing­maður Bjartrar fram­tíðar á síð­asta kjör­tíma­bili. Hann sótt­ist eftir end­ur­kjöri en hlaut ekki braut­ar­gengi. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Páll Valur Björns­son, fyrr­ver­andi þing­maður Bjartrar fram­tíðar, er hættur í flokknum. Hann kynnti ákvörðun sína fyrir félags­mönnum í gær. Frá þessu er greint á vef­miðl­inum Miðjunni.

Þar segir að Páll Valur hafi talið til nokkur atriði sem urðu til þess að hann ákvað að hætta. Honum þætti flokk­ur­inn hafa gefið alltof mikið eftir í Evr­ópu­málum, auð­linda- og umhverf­is­málum og málum sem snú­ast um stöðu barna.

Páll Valur var í fram­boði fyrir Bjarta fram­tíð fyrir síð­ustu þing­kosn­ingar og leiddi flokk­inn í Suð­ur­kjör­dæmi, en náði ekki kjöri. Hann var auk þess stjórn­ar­maður í flokknum.

Hann gagn­rýndi stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræður Bjartrar fram­tíðar við Viðreisn og Sjálf­stæð­is­flokk­inn harð­lega strax í nóv­em­ber 2016, þegar fyrsta umferð þeirra stóð yfir. Þá sagð­ist hann telja að Björt fram­tíð ætti enga sam­leið með Sjálf­stæð­is­flokknum. Hann hefði átt að vera síð­asti kostur í stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræðum þar sem for­maður flokks­ins, Bjarni Bene­dikts­son, sé á móti kerf­is­breyt­ing­um. „Það var kosið út af Panama­skjöl­unum og þar var Bjarn­i,“ sagði Páll Valur í við­tali við Frétta­blaðið 14. nóv­em­ber 2016. Ekki varð að myndun rík­is­stjórnar í þessum við­ræðum.

Björt fram­tíð tók þó síðar aftur upp slíkar við­ræður við sömu flokka og náð­ist að lokum saman um myndun nýrrar rík­is­stjórnar í jan­úar 2017. Rúmur fjórð­ungur stjórnar Bjartrar fram­tíðar greiddi atkvæði gegn stjórn­ar­sátt­mála rík­is­stjórn­ar­innar.

Af stuðn­ings­mönnum stjórn­ar­flokk­anna eru kjós­endur Bjartrar fram­tíðar óánægð­astir með stjórn­ar­sam­starfið og stjórn­ar­sátt­mál­ann sem það byggir á. Í könnun Gallup frá því í byrjun mars kom í ljós að ein­ungis þriðj­ungur kjós­enda flokks­ins væri ánægður með rík­is­stjórn­ina, 45 pró­sent sögð­ust ekki hafa neina sér­staka skoðun á henni og 22 pró­sent voru óánægð. Til sam­an­burðar voru 57 pró­sent kjós­enda Við­reisnar og 75 pró­sent kjós­enda Sjálf­stæð­is­flokks ánægðir með rík­is­stjórn­ina.

Fylgi Bjartrar fram­tíðar mæld­ist 6,0 pró­sent í síð­ustu könnun Gallup, sem birt var í byrjun apríl. Í nýj­ustu könnun MMR mælist það 5,0 pró­sent. Þar mælist stuðn­ingur við rík­is­stjórn­ina líka afar lít­ill, eða 34,5 pró­sent.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár