Er ég orðin geðveik?

Konur vilja stundum ekki kannast við að vera með einkenni breytinga­skeiðsins. Sumar þjást í einrúmi og halda jafnvel að þær séu að missa vitið. Hér er rýnt í einkennin og jafnframt rætt við tvo sérfræðinga; Steinunni Kristbjörgu Zophoníasdóttur ljósmóður sem er sérhæfð í breytinga­skeiðinu og líka Unni Önnu Valdimars­dóttur, aðal­rannsakanda langtíma­rann­sóknarinnar Áfalla­saga kvenna. Getur verið að konur með áfalla­sögu séu berskjald­aðri á breytinga­skeiðinu?

Breytinga­skeiðið minnir að því leyti á kynþroskann að umbreytingar líkamans geta koll­varpað vitundinni.

Kvíði læðist að konu, stundum svo ágengur að hann minnir á sængur­kvenna­grát. Óróinn yfirtekur hugsanir og gerir þannig veru­leikann annan en hann var. Það rökkvar í huga annars bjartsýnnar manneskju.  

Allt í einu er konan hætt að geta sofnað á kvöldin, hún byltir sér andvaka, í hitakófi sem er eins og búið sé að staðsetja sánubað inni í líkamanum. Hún stressast ekki bara út af þráhyggjukendum hugsunum knúnum áfram af kvíða, heldur líka þreytu­verkjum í vöðvunum sem fá hana til að halda að hún sé komin með gigt. Þegar verst lætur líður henni eins og hún sé orðin 87 ára nema hún er ekki á öldrunar­heimili að hvíla lúin bein. Þvert á móti bíða hennar krefjandi verkefni morgudagsins og tilhugsunin um þau kyndir enn frekar undir kvíðanum.

Heilaþoka og gleymska

Þegar konan …

Kjósa
19
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár