Ríkissjóður byrjar að borga inn á hundruð milljarða lífeyrisskuld

Byrjað verður að greiða inn á 460 millj­arða króna líf­eyr­is­sjóðs­skuld rík­is­ins á árinu 2017. Greiddir verða fimm millj­arðar króna á ári auk þess sem hluti sölu­and­virðis Íslands­banka á að fara í að greiða skuld­ina. Síðast var greitt inn á skuld­ina 2008.

Bjarni Benediktsson og Sigurður Ingi Jóhannsson stýra enn ríkisstjórn landsins þrátt fyrir að ríkisstjórn þeirra hafi tapað meirihluta í síðustu kosningum. Fjárlagafrumvarpið sem var lagt fram í gær er því þeirra frumvarp.
Bjarni Bene­dikts­son og Sigurður Ingi Jóhanns­son stýra enn rík­is­stjórn lands­ins þrátt fyrir að rík­is­stjórn þeirra hafi tapað meiri­hluta í síð­ustu kosn­ingum. Fjár­laga­frum­varpið sem var lagt fram í gær er því þeirra frum­varp. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Frá og með næsta ári mun rík­is­sjóður greiða árlega fimm millj­arða króna inn á ófjár­magn­aðar líf­eyr­is­skuld­bind­ingar sínar. Selji ríkið 100 pró­sent hlut sinn í Íslands­banka mun sú fjár­hæð verða end­ur­metin til hækk­unar og ef allt hluta­féð verður selt gefst svig­rúm til allt að 100 millj­arða króna inn­á­greiðslu á skuld­bind­ing­arnar. Þetta kemur fram í fjár­laga­frum­varpi árs­ins 2017 sem lagt var fram í gær.

Ríkur vilji hefur verið til þess hjá Alþingi að hefja á ný reglu­legar greiðslur vegna ófjár­magn­aðra líf­eyr­is­skuld­bind­inga hins opin­bera. Heild­ar­skuld­bind­ingar B-deildar Líf­eyr­is­sjóðs starfs­manna rík­is­ins (LSR) og Líf­eyr­is­sjóðs hjúkr­un­ar­fræð­inga (LH) sam­kvæmt rík­is­reikn­ingi námu 460 millj­örðum króna í lok árs 2015. Meiri­hluti fjár­laga­nefndar lagði það til í sumar að greiðsl­urnar yrðu að minnsta kosti tíu millj­arðar króna á ári til að draga úr því höggi sem verður á rík­is­sjóð þegar sjóður deild­ar­innar tæm­ist árið 2030. Nið­ur­staðan í fjár­lögum er að greiða helm­ing þeirrar upp­hæðar.

Greiðslum hætt eftir hrunið

Ófjár­­­magn­aðar líf­eyr­is­skuld­bind­ingar hins opin­bera hafa verið risa­stórt vanda­­mál í lengri tíma. Árið 1997 var A-deild LSR stofn­uð. Hún byggir á stiga­­kerfi þar sem sjóðs­­fé­lagi ávinnur sér rétt­indi miðað við greidd iðgjöld. Kerfið byggir á sjóðs­­söfn­un. Þ.e. LSR safnar iðgjöld­um, ávaxtar þau og greiðir út í sam­ræmi við áunnin rétt­indi. Ef sjóð­­ur­inn á ekki fyrir þeim hleypur ríkið undir bagga.

Á sama tíma var eldra kerfi sjóðs­ins, hin svo­kall­aða B-deild, lokuð fyrir sjóðs­fé­lög­um. Í henni ávinna sjóðs­fé­lagar sér tvö pró­sent rétt­indi á ári miðað við fullt starf. Reglur LH eru áþekkar B-deild­inn­i. Þetta kerfi byggir að mestu á gegn­um­streymi fjár­magns, og ein­ungis að hluta til á sjóðs­söfn­un. Ástæða þess að kerfið var lagt niður var sú að það blasti við að það gæti ekki staðið undir sér. Því var settur plástur á sárið og lokað á nýliðun í B-deild­ina. Það breytir því ekki að henni blæðir enn mik­ið. Það var alltaf morg­un­ljóst að ríkið myndi þurfa að greiða háar fjár­hæðir með þessu gamla kerfi.

Þess vegna ákvað Geir H. Haar­de, þáver­andi fjár­­­mála­ráð­herra, árið 1999 að rík­­is­­sjóður skyldi hefja greiðslur til B-deildar LSR og LH umfram laga­­skyldu. Mark­miðið var að milda höggið sem fram­­tíð­­ar­kyn­­slóðir skatt­greið­enda myndu þurfa að þola vegna þess og koma í veg fyrir að sjóð­irnir tæmd­ust.

Árið 2008, eftir hrun­ið, var þessum við­­bót­­ar­greiðslum hins vegar hætt. Þá hafði rík­­is­­sjóð­­ur, frá árinu 1999, alls greitt 90,5 millj­­arða króna inn á úti­stand­andi skuld sína við B-deild LSR og LH. Í lok árs 2014 var sú fjár­­hæð, upp­­­færð með ávöxtun sjóð­anna, orðin 231,8 millj­­arðar króna. Því er ljóst að greiðsl­­urnar skiptu veru­­legu máli. Ef ekki hefði komið til þess­­ara greiðslna væru sjóð­irnir tómir og allar greiðslur féllu nú þegar á rík­­is­­sjóð.

Allt búið 2030

Samtals voru skuld­bind­ingar B-deildar LSR og LH 460 millj­örðum króna í lok árs 2015, sam­kvæmt rík­is­reikn­ingi. Allir fjár­­munir sjóð­anna munu verða upp­­­urnir árið 2030 og eftir það falla greiðslur til sjóð­fé­laga beint á rík­­is­­sjóð. Til við­bótar er heild­ar­staða A-deildar LSR einnig nei­kvæð þótt staða hennar hafi ekki versnað á síð­ustu árum. Greiðslur vegna þeirra ófjár­mögn­uðu skuld­bind­inga falla líka að óbreyttu á rík­is­sjóð.

Verði ekk­ert að gert mun sjóður B-deild­ar­innar tæm­ast árið 2030 og rík­is­sjóður þarf þá að fjár­magna sjóð­inn með 13 millj­arða króna árlegum greiðslum vegna baká­byrgðar til að byrja með, og öðrum 13 millj­örðum króna vegna líf­eyr­is­hækk­ana eft­ir­launa­þega.

Ríkið sleppur við greiðslur og fær skatt­­tekjur á móti

Þegar verið er að meta skuld­bind­ingar rík­­is­­sjóðs vegna opin­berra starfs­­manna verður að hafa í huga að ríkið „slepp­­ur“ við að greiða líf­eyr­is­­sjóðs­greiðslur úr almanna­­trygg­inga­­kerf­inu með því að borga þessar skuldir og hefur auk þess nokkuð háar skatt­­tekjur af líf­eyr­is­greiðsl­­um.

Stjórn LSR fékk í fyrra­vor Bene­dikt Jóhann­es­­son trygg­inga­­stærð­fræð­ing, og nú þing­mann og for­mann Við­reisnar, til að meta þetta sam­­spil. Nið­­ur­­staða hans var sú að ríkið spari sér umtals­verðar fjár­hæð­ir, á annað hund­rað millj­arða króna, í líf­eyr­is­greiðslur og fái auk þess á þriðja hund­rað millj­­arða króna í skatt­­tekjur þegar það er búið að greiða upp skuld­ina.

Þá stendur samt sem áður eftir baká­­byrgð rík­­is­­sjóðs. Þ.e. bein­harðir pen­ingar sem þarf að greiða í skulda­hít­ina og fást ekki aftur með sparn­aði í almanna­­trygg­inga­­kerf­inu eða með skatt­greiðsl­­um. Á rík­­is­­stjórn­­­ar­fund­i í ágúst 2015 kom fram að þessi upp­­hæð er áætl­­uð, fyrir B-deild LSR og LH sam­an, 104,8 millj­­arðar króna. Hún hefur hækkað síð­an. Inn á þessa skuld þarf að hefja greiðsl­­ur, ann­­ars sitja fram­­tíð­­ar­kyn­­slóðir uppi með tug millj­arða króna kostnað á ári frá 2030.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár