Of mikið stuð

Íbúar í mið­borg Kaup­manna­hafnar eru orðnir þreyttir á hávaða og áreiti sem fylgir versl­unum og þjón­ustu í borg­ar­hlut­anum.

Einkenni flestra mið­borga er iðandi mann­líf. Hlátra­sköll, hróp og köll, tón­list og margt fleira myndar í einu orði sagt: hávaða. Flestum þykir þetta eðli­legt, á dag­inn. Öðru máli gegnir um næt­urnar, þá vill fólk næði. En því er ekki ætíð að heilsa. Íbúar í mið­borg Kaup­manna­hafnar eru þreyttir á hávað­anum.

Haustið 2012 tóku gildi í Danmörku ný lög um afgreiðslu­tíma versl­ana. Samkvæmt þeim mega versl­anir hafa opið allan sól­ar­hring­inn, árið um kring. Örfáir dagar, tengdir stór­há­tíðum, eru und­an­skildir. Lög um afgreiðslu­tíma ,,Lukk­eloven“ eiga sér langa sögu, þau fyrstu voru sett á 19. öld, þar var sér­stak­lega tekið fram að versl­anir skyldu vera lok­aðar á messu­tíma. Árið 1904 var öll verslun á sunnu­dögum og hátíð­is­dögum bönnuð en strangar reglur varð­andi aðra daga. Síðan hafa margoft verið gerðar breyt­ingar á lög­unum, allar til rýmk­unar og auk­ins frelsis. Í dag er það sem áður sagði nær algjör­lega í höndum eig­enda versl­ana hvenær er opið og hvenær ekki.

Það sem breyttist

Þegar ,,sól­ar­hrings­leyfið var tekið upp “ varð ákveðin óvissa um hvað myndi ger­ast. Myndu allir rjúka til og hafa opið fram á nótt og jafn­vel allan sól­ar­hring­inn? Þetta vissi eng­inn.

Brátt skýrð­ust þó lín­urnar í þessum efnum. Margir kaup­menn og eig­endur versl­ana ákváðu að halda sig að mestu leyti við óbreytt fyr­ir­komu­lag frá því sem var. Opið á venju­legum afgreiðslu­tíma, lokað fyrr á laug­ar­dögum og lokað á sunnu­dögum.

Ástæðan fyrir því að ekki ruku allir til og höfðu opið lengur er ein­föld. Margir sáu ekki fram á aukin við­skipti en hins­vegar stór­auk­inn kostnað. Í kjara­samn­ingum versl­un­ar­fólks er skýrt kveðið á um vinnu­tíma og margir kaup­menn og eig­endur versl­ana voru fljótir að reikna út að ekki myndi svara kostn­aði að hafa opið lengur á degi hverjum en þeir voru vanir. Afgreiðslu­tími langt fram á kvöld og um helgar þýddi vakta­vinnu, yfir­vinnu­á­lag o.s.frv. Nið­ur­staða flestra var að mun lengri afgreiðslu­tími myndi ekki vega á móti kostn­að­ar­auk­anum.

Fyr­ir­fram var talið að margir smá­kaup­menn, sjoppu­eig­endur og bens­ín­stöðvar myndu not­færa sér nýju lögin og lengja afgreiðslu­tím­ann. Sú varð líka raunin, og hefur breytt ýmsu.

Reykingalögin

Árið 2007 tóku gildi í Danmörku ný lög um reyk­ingar. Samkvæmt þeim voru reyk­ingar meðal ann­ars bann­aðar á veit­inga-og verts­húsum nema komið væri upp sér­stökum reyk­her­bergjum, þar var bannað að neyta matar og drykkjar. Gestir urðu, í flestum til­vikum að skreppa út fyrir til að svala nikótín­þörf­inni. Margir sem bjuggu í nágrenni hinna fjöl­mörgu verts­húsa í mið­borg Kaup­manna­hafnar, og víðar, kvört­uðu hástöfum undan lykt­inni sem barst inn í íbúðir á efri hæðum.

Barir geta sótt um leyfi til að hafa opið allan sólarhringinn

Þegar lögin um rýmri afgreiðslu­tíma versl­ana tóku gildi tóku jafn­framt gildi ný lög um verts­hús. Þau máttu sam­kvæmt lög­unum, með sér­stöku leyfi, hafa opið mun lengur en áður, jafn­vel allan sól­ar­hring­inn. Slík leyfi voru, og eru, háð ákvörð­unum yfir­valda á hverjum stað, í Kaup­manna­höfn borg­ar­stjórn­inni.

Hávaðinn angrar marga

Ferða­fólki hefur fjölgað mikið í Kaup­manna­höfn á síð­ustu árum. Margir úr þeim hópi vilja gera sem mest úr dvöl­inni og eru á ferð­inni fram á nótt. Það gildir auð­vitað líka um marga heima­menn, þeir eru frels­inu fegnir ef svo mætti að orði kom­ast. En, þeir eru líka margir, einkum íbúar í mið­borg­inni, sem finnst hávað­inn, bæði á dag­inn en þó sér­stak­lega seint á kvöldin og nótt­unni, kom­inn langt yfir það sem eðli­legt geti talist.

Mest kvartað vegna hávaða

Kaup­manna­hafn­ar­búar geta kvartað til borg­ar­yf­ir­valda þyki þeim ástæða til og á síð­ustu árum hefur fjöldi kvart­ana marg­fald­ast. Á síð­asta ári bár­ust borg­inni hátt í tvö þús­und kvart­anir en það segir þó ekki alla sög­una, því ein­ungis ein kvörtun er talin frá hverju hús­núm­eri.

Flestar kvart­anir sem borg­inni ber­ast eru vegna hávaða. Það er bæði það sem borg­ar­yf­ir­völd kalla ,,venju­legan hávaða“, nánar til­tekið hlátur og hróp, flöskuglamur, skrölt í ferða­töskum og fleira af því tagi. Þetta telja yfir­völd allt eðli­legan þátt borg­ar­lífs­ins. Tónlist er líka meðal þess sem angrar æ fleiri borg­ar­búa. Svæðum í mið­borg­inni þar sem fólk getur safn­ast saman hefur fjölgað og þar má oft heyra og sjá tón­list­ar­fólk. Sigl­ingar um síkin, í og við mið­borg­ina, eru vin­sælar og útskýr­ingar leið­sögu­fólks heyr­ast stundum langar leiðir. Sömu­leiðis mætti nefna mara­þon­hlaup en áhorf­endur láta þar mjög til sín taka við að hvetja kepp­endur. Ónefndur er sá hávaði sem óhjá­kvæmi­lega fylgir þegar margt fólk er sam­an­komið á afmörk­uðu svæði.

Hávaðalöggur

Tveir starfs­menn borg­ar­innar sinna hávaða­mæl­ingum (kall­aðir hávaðalöggur), þeir eiga að fylgj­ast með því að reglum sé fylgt. Þeir sögðu ljóst, í við­tali við dag­blaðið Berl­ingske, að hávaði á almanna­færi í borg­inni hefði auk­ist mjög en það væri auð­veld­ara um að tala en að ráða við eða breyta. Hávaðinn tengd­ist ekki síst stór­auk­inni bjórn­eyslu en eins og spáð var þegar afgreiðslu­tím­inn breytt­ist hafa margir smá­kaup­menn opið allan sól­ar­hring­inn og því auð­velt að verða sér úti um drykkj­ar­föng. Margar kvart­anir ber­ast líka vegna hávaða og ryks við bygg­inga­fram­kvæmdir, ekki síst Metro lesta­lín­una.

Bílflaut og hávaði í sorphreinsunarbílum angrar marga

Þótt flestar kvart­anir sem borg­inni ber­ast séu vegna hávaða er kvartað yfir fleiru. Hluti þess vökva sem inn­byrtur er skal út aftur og stað­ar­valið til slíkra athafna að næt­ur­lagi gjarna húsa­sund og skúma­skot, lyktin liggur svo í loft­inu. Margir kvarta vegna þessa.

Frank Jensen yfir­borg­ar­stjóri Kaup­manna­hafnar sagði nýlega í við­tali að vissu­lega væri mik­ill hávaði í borg­inni en á dag­inn væri slíkt eðli­legt. Hins­vegar væri full ástæða til að bregð­ast við kvört­unum vegna óeðli­legs hávaða á ákveðnum svæðum í borg­inni að næt­ur­lagi og slíkt væri nú til skoð­unar.

Rann­sóknir sýna að þrír af hverjum fimm Dönum sýna ein­kenni streitu (svefn-og hjart­slátt­ar­trufl­anir) sem talið er að teng­ist hávaða.

Víðar hávaði en í Kaupmannahöfn

Evrópska umhverf­is­stofn­unin (EEA) og Alþjóða­heil­brigð­is­mála­stofn­unin (WHO) hafa gagn­rýnt þann hávaða sem margir borg­arar ESB ríkj­anna mega búa við. Þessar stofn­anir hafa mælt með að hávaði að næt­ur­lagi fari ekki yfir 40 desi­bel og ekki yfir 65 desi­bel að degi til. Þriðji hver íbúi ESB ríkj­anna býr hins vegar við það að hávaði að næt­ur­lagi sé meiri en 55 desi­bel. Áður­nefndar stofn­anir telja að árlega lát­ist 10 þús­und Evr­ópu­búar af ástæðum sem rekja megi til hávaða.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár