Guðni samþykkti þingrofstillöguna – kosið verður 28. október

Bjarni Bene­dikts­son, for­sæt­is­ráð­herra, fund­aði með Guðna Th. Jóhann­essyni, for­seta Íslands, á Bessa­stöðum í dag. Þar lagði Bjarni til að þing yrði rofið.

Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands.
Guðni Th. Jóhann­es­son, for­seti Íslands. Mynd: Birgir Þór Harðarson

„Hérna er skjalið sem ég von­ast til að tryggi að við komum aftur röð og reglu á stjórn­málin með hjálp kjós­enda,“ sagði Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins og for­sæt­is­ráð­herra, þegar fjöl­miðla­menn spurðu hvað væri í möpp­unni sem hann kom með á fund Guðna Th. Jóhann­es­sonar, for­seta Íslands, á Bessa­stöðum í dag.

[links]Það kom svo í ljós sem allir vissu: For­sæt­is­ráð­herra óskaði eftir því að for­set­inn myndi sam­þykkja þing­rof, sem Guðni sam­þykkti.

Fundur Guðna og Bjarna tók aðeins tæpar fimmtán mín­útur og að honum loknum ávarp­aði Guðni full­trúa fjöl­miðla. Guðni sagð­ist þar hafa fall­ist á til­lögu for­sæt­is­ráð­herra að þing verði rofið og gengið til kosn­inga 28. októ­ber. Frá þessum degi mega þess vegna aðeins líða 45 dagar þar til kosið verður.

Guðni sagð­ist hafa kannað mögu­leik­ana á því hvort hægt væri að mynda nýja rík­is­stjórn á því þingi sem nú starfar. Eftir sam­töl við for­menn flokk­ana sem eiga sæti á Alþingi á laug­ar­dag var ljóst að ekki yrði reynt að mynda nýja rík­is­stjórn. Guðni taldi það hafa verið skyldu sína áður en hann féllst á til­lögu um þing­rof.

[adspot]

„Þing verður ekki rofið fyrr en á kjör­degi,“ benti for­set­inn á. Alþing­is­menn hafa þess vegna enn þing­skyldum að gegna fram að kosn­ingum. Unnur Brá Kon­ráðs­dóttir, for­seti Alþingis, fundar með for­mönnum þeirra stjórn­mála­flokka sem eiga sæti á Alþingi eftir hádegi. Þar verður ákveðið hvernig þing­störfum verður háttað fram að kosn­ingum.

„Valdið er þing­mann­ana,“ sagði Guðni þegar hann var spurður hvort hann vissi hvernig þing­haldi yrði háttað. „Ég frétti af því eins og þið hvernig þingið starfar. Það verður ekk­ert ákveðið um það hér á Bessa­stöðum.“

For­set­inn ítrek­aði upp­hafs­orð sín við þing­setn­ingu Alþingis á dög­unum um að þingið sé þunga­miðja í stjórn­skip­an­inni á Íslandi. „Því er svo mik­il­vægt að þingið njóti virð­ingar manna á meðal,“ sagði hann og hvatti þá sem hafa kosn­inga­rétt að nýta atkvæða­rétt sinn. „Við skiptum kannski um stjórnir, en við skiptum ekki um kjós­endur.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2017

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár