Bólusetningin hafi ekki skapað það hjarðónæmi sem vonast var til

Flest smit að und­an­förnu má rekja til hóp­at­burða en delta afbrigði veirunnar hefur breiðst út á ótrú­legum hraða að sögn sótt­varna­læknis. Til stendur að bjóða þeim sem fengu Janssen bólu­efni upp á aðra bólu­setn­ingu sem og að bólu­setja 12 til 15 ára börn.

Delta afbrigðið hefur tekið algjör­lega yfir öll önnur afbrigði kór­ónu­veirunnar hér á landi á síð­ustu vikum sem hefur leitt til þess að útbreiðsla veirunnar hefur orðið mjög mikil hér inn­an­lands. Þetta kom fram í máli Þórólfs Guðna­sonar sótt­varna­læknis á upp­lýs­inga­fundi Almanna­varna í dag. Þórólfur sagði að afbrigðið hefði komið hingað til lands og dreifst með fólki sem hefur hér víð­tækt tengsla­net.

„Einnig hefur komið í ljós að full­bólu­settir geta smit­ast nokkuð auð­veld­lega og smitað aðra þannig að það er ljóst að bólu­setn­ingin er ekki að skapa það hjarð­ó­næmi sem von­ast var til. Þetta hefur leitt til þess að margir sem hafa komið hingað til lands hafa borið með sér delta afbrigði veirunnar og náð að smita út frá sér hér inn­an­lands. Þannig höfum við séð ótrú­lega hraða útbreiðslu inn­an­lands bæði hjá bólu­settum og óbólu­settum ein­stak­lingum, einkum frá fólki sem hingað kemur og hefur hér víð­tækt tengsla­net,“ sagði Þórólfur.

Rað­grein­ing hafi sýnt að upp­runi flestra smita megi rekja til hóp­at­burða, til að mynda til skemmti­staðs í Reykja­vík, hóp­ferða til London og Krítar sem og til ann­ara atburða þar sem margt fólk kemur saman.

Vantar upp á bólusetningu í yngstu hópunum

Þórólfur sagði að ljóst hafi verið að ekki hafi verið hægt að halda áfram óbreyttu fyr­ir­komu­lagi skim­ana á landa­mærum vegna vax­andi fjölda ferða­manna og tak­mark­aðs mann­afla til að sinna sýna­töku. Á ein­hverjum tíma­punkti hafi þurft að láta á það reyna hvort útbreidd bólu­setn­ing myndi ná að halda COVID í skefjum eða í lág­marki hér á landi en um 70 pró­sent lands­manna er full­bólu­settur. Þá hafði inn­an­lands­smit verið í lág­marki um nokk­urt skeið þegar ákvörðun um til­slak­anir var tekin auk þess sem áhætta á því að smit bær­ist yfir landa­mærin hafði verið metin lítil.

Hlutfall bólu­settra er mis­jafnt eftir ald­urs­hópum, um 95 pró­sent þeirra sem eru 60 ára og eldri eru full­bólu­sett. Um 90 pró­sent þeirra sem eru 50 til 60 ára eru full­bólu­sett og í ald­urs­hópnum 16-50 ára eru 80 pró­sent full­bólu­sett. „Helst vantar á bólu­setn­ingu yngstu ald­urs­hópanna, núna eru um 10 pró­sent þeirra sem eru á aldr­inum 12 til 16 ára full­bólu­settir,“ sagði Þórólfur.

Þórólfur sagði það eiga eftir að koma í ljós hvort að núver­andi tak­mark­anir muni duga til að nú utan um þá bylgju sem er í gangi en vonir höfðu verið bundnar við að hin víð­tæka bólu­setn­ing myndi koma í veg fyrir alvar­leg veik­indi og spít­ala­inn­lagnir. Vís­bend­ingar séu um bólu­setn­ing komi í veg fyrir alvar­leg veik­indi að sögn Þórólfs.

Álag á heilbrigðiskerfið áhyggjuefni

„Nú hafa 24 rúm­lega þurft að leggj­ast inn á sjúkra­hús af þeim 1470 sem greinst hafa inn­an­lands eða um 1,6 pró­sent. Í fyrri bylgjum far­ald­urs var hlut­fall þeirra sem þurftu að leggj­ast inn á sjúkra­hús um fjögur til fimm pró­sent. Hins vegar hafa um 70 pró­sent af þeim sem hafa greinst frá 1. júlí verið full­bólu­settir og hlut­fall þeirra bólu­settra sem hafa þurft að leggj­ast inn er um eitt pró­sent. Hlutfall inn­lagna hjá smit­uðum óbólu­settum er hins vegar um 2,4 pró­sent,“ sagði Þórólfur. Því sé bólu­setn­ingin að veita vörn gegn alvar­legum veik­indum.

Svo virð­ist sem mest sé um smit meðal fólks sem fékk bólu­efni frá Janssen og því stendur til að bjóða þeim sem það fengu aðra bólu­setn­ingu, annað hvort með bólu­efni frá Pfizer eða Moderna. Einnig stendur til að bjóða börnum frá 12 til 15 ára bólu­setn­ingu á næst­unni.

„Þannig erum við núna á þeim tíma­mótum að við erum að sjá mikla útbreiðslu veirunnar í sam­fé­lag­inu sem getur náð til þeirra sem að ekki hafa verið bólu­settir en það eru núna um 30 þús­und manns sem eru eldri en 16 ára og um 70 þús­und börn yngri en 16 ára. Þannig getur lítið hlut­fall alvar­legra veik­inda hjá óbólu­settum leitt af sér mik­inn fjölda alvar­legra veikra ef útbreiðslan verður mikil,“ sagði Þórólfur. Hann sagði að þetta gæti leitt af sér mikið álag á heil­brigð­is­kerfið. Nú þegar hafi borist af því fréttir frá Land­spít­al­anum að mikið álag sé á spít­al­anum sem einnig geti leitt af sér truflun á þjón­ustu við aðra sjúk­linga en ein­ungis þá sem eru að glíma við COVID-19.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár