Birgitta Jónsdóttir hættir

Þing­flokks­for­maður Pírata ætlar ekki að gefa kost á sér til áfram­hald­andi þing­setu.

Kominn tími til að hætta. Birgitta Jónsdóttir á kosningakvöldi Pírata í fyrra.
Kominn tími til að hætta. Birgitta Jóns­dóttir á kosn­inga­kvöldi Pírata í fyrra. Mynd: Birgir Þór Harðarson

„Ég hef lofað sjálfri mér því að hætta eftir þetta kjör­tíma­bil, óháð lengd þessi,“ skrifar Birgitta Jóns­dóttir, þing­flokks­for­maður Pírata, á Facebook-síðu sína í morgun. Birgitta hygg­ist þess vegna ekki gefa kost á sér í fyr­ir­hug­uðum Alþing­is­kosn­ingum sem vænt­an­lega verður boðað til vegna þeirrar stöðu sem komin er upp í íslenskum stjórn­málum.

„Það er ekk­ert sem getur fengið mig til að skipta um skoðun. Ég er snortin af þeirri bylgju hvatn­ingar að fara fram aftur sem ég hef fundið fyrir þvert á flokka sem og í gras­rót minni,“ skrifar Birgitta.

Hún var spurð að því í kvöld­fréttum RÚV í gær­kvöldi hvort hún ætl­aði að standa við orð sín og hætta. Þá sagð­ist hún eiga erfitt með að ganga á bak orða sinna en gaf ekki skýrt svar um hvort hún myndi hætta. Þeirri óvissu er hefur nú verið eytt.

„Ástæða þess að ég hef ekki viljað koma með þessa yfir­lýs­ingu strax er ein­fald­lega vegna þess að þessu kjör­tíma­bili er ekki lokið, þrátt fyrir að núver­andi stjórn sé fall­inn,“ skrifar Birgitta enn fremur.

„En það hefur verið ákall um að ég svari skýrt og afger­andi, bæði meðal félags­manna sem og meðal okkar póli­tísku and­stæð­inga.“

„Ég vil ekki halda fólki í óþarfa óvissu. Ég mun að sjálf­sögðu þrátt fyrir að vera ekki í fram­boði í næstu kosn­ingum, halda áfram að berj­ast fyrir rétt­lát­ara sam­fé­lagi og þeim breyt­ingum sem ég hef lagt þunga á að ná í gegn hér­lendis sem og erlendis.“

Þingmaður síðan 2009

Birgitta var fyrst kjörin á þing í kosn­ing­unum 2009 þegar hún tók sæti sem Alþing­is­maður Reykja­vík­ur­kjör­dæmis suður fyrir Borg­ara­hreyf­ing­una (síðar Hreyf­ing­una). Hún var svo kjörin á Alþingi að nýju fyrir Pírata í Suð­vest­ur­kjör­dæmi árið 2013 og svo aftur í kosn­ing­unum í fyrra.

Birgitta hefur verið leið­andi í starfi Pírata hér á landi og verið dyggur tals­maður þess að stjórn­ar­skrá Íslands verði end­ur­skoðuð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2017

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár