Boris Johnson ögrar forsætisráðuneyti Theresu May

Boris Johnson er umdeildur stjórnmálamaður og utanríkisráðherra í ríkisstjórn Theresu May í Bretlandi.
Boris Johnson er umdeildur stjórn­mála­maður og utan­rík­is­ráð­herra í rík­is­stjórn Theresu May í Bret­landi. Mynd: EPA

Boris Johnson, utan­rík­is­ráð­herra í Bret­landi, lét hafa eftir sér í sjón­varps­við­tali að Bretland haldi hugs­an­lega áfram Evr­ópu­sam­vinnu eftir að Bretland gangi úr Evr­ópu­sam­band­inu. Johnson var í við­tali á BBC í gær.

Bretar greiddu atkvæði um það síð­asta sumar að ganga úr Evr­ópu­sam­band­inu (ESB) í Brexit-þjóð­ar­at­kvæða­greiðsl­unni svoköll­uðu. Það hefur í kjöl­farið verið nokkuð á reiki hvað það mun þýða og þegar óskað hefur verið eftir áætl­unum og útskýr­ingum á stefnu stjórn­valda í ein­stökum mála­flokkum eru svörin alla­vega.

Brexit-ráð­herr­ann David Davis hefur sagt að það komi til greina að borga ESB fyrir aðgang að sam­eig­in­lega mark­að­inum og kom­ast undan öðrum skyldum Evr­ópu­sam­vinn­unar. Johnson segir að engin ákvörðun hafi verið tekin um þetta. „Þetta er eitt­hvað sem David Davis er að íhuga. Það þýðir ekki að það hafi verið tekin ákvörðun.“

„Ég hef alltaf haldið að það væru ákveðnir þættir Evr­ópu­sam­vinn­unar sem væri góð hug­mynd að taka þátt í í fram­tíð­inni sér­stak­lega ef það þýðir að við getum borgað með okkur í því,“ sagði Johnson og átti þar við Erasmus-náms­styrki ESB og vís­inda­rann­sókna­styrki sam­bands­ins.

Johnson var í við­tölum víðar í gær en á BBC. Á ITV stofn­aði hann til hugs­an­legs ágrein­ings milli utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins og for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins þegar hann lýsti skoðun sinni um að und­an­skilja ætti náms­menn í inn­flytj­enda­tölum stjórn­valda. „Bretland á að vera þekk­ing­ar­höf­uð­borg heims­ins og náms­menn eiga ekki að vera teknir saman í þessar tölur,“ sagði hann.

„Leyfðu mér að nefna eina stað­reynd: Af öllum kóngum og drottn­ingum, for­setum og for­sæt­is­ráð­herrum í heim­inum í dag hefur einn af hverjum sjö menntað sig í Bret­landi,“ sagði Johnson. For­sæt­is­ráðu­neytið hefur ítrekað hafnað því að und­an­skilja náms­menn úr opin­berum inn­flytj­enda­tölum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár