Handknattleiksdeild ÍR fer nýjar leiðir í að leita að fjármagni

Mörg íþrótta­fé­lög berj­ast nú í bökkum, enda búið að blása af tíma­bilið víða og tekju­straum­arnir þornað upp. Því hafa þau farið þá nýstár­legu leið að safna fjár­munum fyrir rekst­ur­inn á Karolina fund.

Hand­knatt­leiks­deild ÍR á í fjár­hags­erf­ið­leikum og ákvað nýr þjálf­ari liðs­ins, Kristinn Björg­úlfs­son að breyta til og fara nýjar leiðir til að búa til að afla pen­inga inn í félagið.

Karolina fund varð fyrir val­inu og þar geta stuðn­ings­menn ÍR, sem og allir aðrir stutt félagið með mis­mun­andi háum styrkjum. Styrkirnir eru mjög frum­legir. Allt frá ein­földum styrk upp á tæpar 6000 krónur, Árskort á heima­leiki liðs­ins, sitt eigið sæti í stúkunni. Margur áhorf­and­inn telur sig einnig alltaf vita betur en þjálf­ar­inn og gefst fólki því einnig tæki­færi á að verða þjálf­ari liðs­ins í Olís­deild, fyrir rétta upp­hæð.

Hvernig kvikn­aði hug­myndin að verk­efn­inu?

„Hug­myndin að verk­efn­inu kvikn­aði eftir fund þar sem við vorum að leita leiða til að afla fjár inn í rekstur félags­ins. Við í ÍR tókum það skref að fara út með að við værum í vanda stödd og þar með var ljóst að við þyrftum á nýjum leiðum að halda.“

Hvert er þema verk­efn­is­ins?

„Fjár­hags­vandi okkar er þemað. Við ákváðum að láta vita af honum, hætta þeim felu­leik sem félagið hefur verið í og biðlum til fólks að styrkja okkur.

Á móti viljum við reyna að gera eitt­hvað fyrir það góða fólk sem styrkir okkur með t.d að láta árskort á heima­leiki af hendi á móti. Ef fólk styrkir okkur um 16.500 þá fær það árskort að launum. Styrk­ur­inn þarf ekki að vera svo hár, það er hægt að leggja til í kringum 6000 krónur eða 35€ og fyrir það þökkum við kær­lega fyrir.

[adspot]Per­sónu­lega finnst mér skemmti­leg­ast ef fólk kaupir sér sér sæti í stúkunni, eða fót­spor á svöl­unum fyrir ofan annað markið.

Ef ein­hver kaupir sér aðgang að lið­inu og vill fá tæki­færi til að spila í deild þeirra bestu í hand­bolt­anum yrði það vissu­lega frá­bært. Það eru jú margir sér­fræð­ing­arnir í stúkunni á leikjum og þykj­ast alltaf geta gert betur en þeir sem eru inn á. Hér er tæki­færið fyrir þá. Ég er viss um að þetta verður mjög gaman ef að ein­hver kaupir sér sæti í lið­inu.“

Ertu ekki hræddur um nei­kvæða umfjöllun yfir því sem þið bjóðið upp á?

„Nóg er af fólki sem er alltaf nei­kvætt hvort sem er. Veit allt betur og þyk­ist geta gert allt betur en við erum að reyna að gera. Nú er komið af því að það fólk hætti þessu röfli og þessu sífellda kvarti og leggi eitt­hvað af mörkum. Sendið okkur póst og bjóðið fram aðstoð.

Við erum í þessu af því okkur þykir hand­bolti skemmti­legur, þeir sem vinna með okkur finnst hand­bolti skemmti­legur. Allir sem koma á leik­ina finnst hand­bolti skemmti­legur. Um það snýst málið. Það er eng­inn í þessu af því að þeim þykir hand­bolti leið­in­legur.

Við erum að reyna okkar besta, hér förum við nýjar leiðir til að afla fjár, og okkur finnst þetta skemmti­legt. Er ekki skemmti­legra að kaupa sér eigið sæti í stúkunni en að safna dósum? Í þeirri stöðu sem við erum í í dag, höfum við ekki pláss fyrir nei­kvætt og leið­in­legt fólk.“

Hér er hægt að styrkja hand­knatt­leiks­deild ÍR.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár