Að vera utan lögheimilis

Dorrit Moussaieff er skráð utan lög­heim­ilis í Bret­landi. Hún nýtir sér fyr­ir­komu­lagið, eins og yfir hund­rað þús­und aðrir auð­ugir íbúar lands­ins. „Non-dom" hefur verið mikið gagn­rýnt í Bret­landi, enda verður þjóð­ar­búið af miklum skatt­tekjum vegna þess.

Talið er að um 114.000 manns sem búa í Bretlandi séu skráðir utan lögheimilis. Það gera þeir til að borga lægri skatta.
Talið er að um 114.000 manns sem búa í Bret­landi séu skráðir utan lög­heim­ilis. Það gera þeir til að borga lægri skatta. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Hugtakið „utan lög­heim­ilis” (e. non-domicile, eða „non-dom“) hefur und­an­farið verið tölu­vert í umræð­unni í breskum stjórn­málum. Fyr­ir­bærið þekk­ist hvergi annar staðar í heim­inum en í Bret­landi og gerir auð­ugu fólki kleift að borga lægri skatta þó að það sé búsett þar í landi.

Dæmisaga

Tökum dæmi. Auðug mann­eskja flytur til Bret­lands og til­kynnir yfir­völdum í land­inu sem hún flytur frá að það megi ekki rukka hana um skatt, þar sem hún sé nú orðin „skatt­greið­andi” í Bret­landi og búsett þar. Mann­eskjan til­kynnir líka breskum yfir­völdum hún sé nú skatt­greið­andi þar í landi. Undir venju­legum kring­um­stæðum verður Bretland þá ábyrgt fyrir að inn­heimta skatt­tekjur hennar.

En mann­eskjan til­kynnir líka til breskra yfir­valda að hún líti á sig sem ein­stak­ling „utan lög­heim­ilis”. Ef hún upp­fyllir þau skil­yrði, getur hún farið fram á að skatt­greiðsl­urnar verði líka þess eðlis. Og það þýðir að hún þarf að greiða skatt af öllum tekjum sem hún þénar þar í landi og öllum tekjum sem hún kemur með inn í landið. En það er hængur á. Mann­eskja „utan lög­heim­ilis“ þarf hins vegar ekki að greiða skatt af auð­æfum eða tekjum sem eru erlendis, hvort sem það er í formi fyr­ir­tækja, aflands­fé­laga, eigna eða sjóða. Það er allt skatt­frjálst. 

Dorrit er „non-dom“

The Guardian greindi frá því í vik­unni að Dorrit Moussaieff væri utan lög­heim­ilis í Bret­landi. Hún flutti lög­heim­ili sitt frá Íslandi í lok árs 2012 og það var ekki fyrr en íslenskir fjöl­miðlar komust að því sem hún svar­aði fyrir það, hálfu ári síðar. Hún leið­rétti aldrei ítrek­aðan frétta­flutn­ing af heim­il­is­að­stæðum hennar, en allir gengu út frá því að hið nýja lög­heim­ili for­seta­frú­ar­innar væri í Bret­landi, þar sem hún er skráð þar sam­kvæmt Þjóðskrá. En Þjóðskrá til­greinir ein­ungis dval­ar­stað (e. residence) og gerir ekki ráð fyrir breska „utan lög­heim­ilis-mögu­leik­anum“. Tugir frétta voru fluttar af því að lög­heim­ili Dorritar væri í Bret­landi og hún gekkst einnig við því í við­tölum að hún væri að flytja til Bret­lands, en þegar nánar er að gáð sagði hún aldrei að lög­heim­ili hennar verði fram­vegis í Bret­landi. Skattleg heim­il­is­festi Dorritar er nefn­in­lega í heima­landi hennar, Ísrael. 

Heit kartafla í Bretlandi

Eins og áður segir skap­ast reglu­lega umræða í Bret­landi um hvort tími sé til kom­inn að afnema „non-dom“ fyr­ir­komu­lagið. Talið er að um 114.000 Bretar séu skráðir utan lög­heim­ilis og í raun er engin leið að finna út hversu miklum skatt­tekjum breska þjóð­ar­búið verður af á ári hverju vegna fyr­ir­komu­lags­ins. Sér­stak­lega í ljósi þess að aflands­fé­lög í skatta­skjólum eru jafn algeng og raun ber vitni. Og þar er for­seta­frúin ekki und­an­skilin.

Forsetahjónin svara ekki

Hvorki Ólafur Ragnar Grímsson, for­seti Íslands, né Dorrit hafa svarað fyr­ir­spurnum fjöl­miðla um málið eftir að það var upp­lýst. Einu upp­lýs­ing­arnar sem fást frá emb­ætt­inu eru þær að Ólafur hafi ekki vitað neitt um fjár­hags­fyr­ir­komu­lag eig­in­konu sinnar. Kjarninn hefur óskað eftir við­brögðum und­an­farnar vikur, en engin svör borist önnur en þau fyrr­greindu. Og þar við situr.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár