AirBnB gefur eftir í baráttunni við löggjafa í Evrópu

Fjöldi heimagistinga í Reykjavík hefur aukist gríðarlega á undanförnum árum í takti við aukinn straum ferðamanna hingað til lands.
Fjöldi heimagist­inga í Reykja­vík hefur auk­ist gríð­ar­lega á und­an­förnum árum í takti við auk­inn straum ferða­manna hingað til lands. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Banda­ríska hús­næð­is­leigu­síðan Airbnb.com ætlar að gefa eftir í bar­áttu sinni við lög­gjafa í Evrópu og gera borgum það kleift að tak­marka fjölda daga sem hver íbúð á skrá getur verið í leigu á ári. Fyr­ir­tækið hefur þegar sam­þykkt að tak­marka fjölda nátta í útleigu í London og Amster­dam, sem eru tveir af stærstu mörk­uðum AirBnB í Evrópu. Til greina kemur að íslensk stjórn­völd óski eftir slíkum tak­mörk­unum fyrir íbúðir hér á landi. Þessi mögu­leiki hefur hins vegar ekki verið kann­aður hjá AirBnB.

Hér á landi hefur ný lög­gjöf verið sam­þykkt um tak­mark­anir á útleigu heim­ila og fast­eigna. Lög­gjöfin tekur gildi um ára­mótin en þá verður fjöldi daga sem fast­eign getur verið í útleigu tak­mark­aður við 90 daga, sé ekki sótt um sér­stakt rekstr­ar­leyfi. Fjallað er um lög­gjöf­ina í grein á vefnum Gestur.is.

AirBnB hefur verið undir tölu­verðum þrýst­ingi víða um heim vegna þeirra áhrifa sem fyr­ir­tækið hefur haft á hótel og gisti­rýma­markað. Víða hefur leyf­is­skild starf­semi í ferða­þjón­ustu talið troðið á rétti sínum til að veita gisti­þjón­ustu þegar almenn­ingi er býðst kostur á að veita svip­aða þjón­ustu án þeirra kvaða sem leyf­is­skildir aðilar búa við.

Þess vegna hafa stjórn­völd víða brugð­ist við og sett tak­mark­anir á fjölda daga sem hús­næði í einka­eigu getur verið í leigu á ári hverju. Í Amster­dam er sá fjöldi 60 dagar. Eins og áður segir verður fjöldi leigu­daga tak­mark­aður við 90 daga hér á landi, hafi við­kom­andi leigu­sali ekki til­skilin leyfi.

Í svari við fyr­ir­spurn Kjarnans til atvinnu­vega- og nýsköp­un­ar­ráðu­neyt­is­ins segir að ekki sé úti­lokað að haga hlutum þannig að skylt verði að skrá skrán­ing­ar­númer við aug­lýs­ingar á vef AirBnB. Eftir laga­breyt­ing­una verður þeim sem eru með heimagist­ingu skylt að sækja um skrán­ing­ar­númer sem nota skal við alla mark­aðs­setn­ingu á heimagist­ing­unni.

Til þess að fá skrán­ing­ar­númer verða ein­stak­lingar sem ætla að leigja út íbúð­ina sína eða hluta af heim­ili sínu að upp­fylla ákveðnar kröfur um bruna­varnir, ástand og húsa­kynnin verða að vera sam­þykkt sem íbúð. Sérstakt árgjald að upp­hæð 8.000 krónur þarf einnig að greiða fyrir skrán­ing­una. Allar þessar kröfur eru gerðar til þess að ein­falda og bæta eft­ir­lit með leyf­is­lausri starf­semi. Í svari ráðu­neyt­is­ins við fyr­ir­spurn Kjarnans segir að ekki standi til að útvista þess­ari skrán­ingu til aðila á borð við AirBnB.

Fjöldi gisti­rýma í útleigu hér á landi hefur marg­fald­ast á síð­ustu árum og þá gildir einu um hvort það eru heilar íbúðir eða afmörkuð her­bergi sem eru í boði. Á Airbnb.com hefur verið hægt að finna 3.104 skráð gisti­rými síð­ustu 30 daga í Reykja­vík. Þessi fjöldi var að jafn­aði um 1.700 gisti­rými árið 2015 og rúm­lega 700 árið 2014. 73,2 pró­sent þeirra sem bjóða upp á leigu í Reykja­vík á vef AirBnB bjóða heila íbúð til leigu. Í 59 pró­sent til­vika voru eignir í Reykja­vík sam­tals í útleigu í minna en þrjá mán­uði und­an­farið ár.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár