Vilji fyrir algjörri fríverslun við Breta

Und­ir­bún­ingur er haf­inn að samn­inga­við­ræðum Íslend­inga og Breta um fram­tíð­ar­sam­skipti eftir útgöngu þeirra úr Evr­ópu­sam­band­inu. Stefnt er á algjöra frí­verslun milli land­anna eða í það minnsta sömu kjör og bjóð­ast nú.

Brott­hvarf Bret­lands úr Evr­ópu­sam­band­inu gæti raskað veru­lega íslenskum við­skipta­hags­munum, ekki síst í sjáv­ar­út­vegi sem á mikið undir við­skiptum og öðrum sam­skiptum við Bretland. Þetta kemur fram í Fiski­fréttum í morgun en rætt var við Stefán Hauk Jóhann­es­son og Sig­ur­geir Þor­geirs­son um und­ir­bún­ing­inn að samn­inga­við­ræðum um fram­tíð­ar­sam­skipti við Breta eftir útgöngu þeirra úr Evr­ópu­sam­band­inu.

„Það er nú þannig að í gegnum EES samn­ing­inn og í ein­stökum til­vikum gagn­vart gamla EFTA samn­ingnum höfum við almennt mjög góð kjör inn á Evrópu,“ segir Sig­ur­geir Þor­geirs­son, ráð­gjafi hjá atvinnu­vega- og nýsköp­un­ar­ráðu­neyt­inu.

„Það eru nokkrar afurðir hins vegar þar sem eru ekki algjör toll­fríð­indi eða að því er mönnum finnst ekki full­nægj­andi toll­kvótar og við munum sækja á um það, og það er held ég ekk­ert leynd­ar­mál og ég held að Bretum hafi þegar verið sagt það, að við viljum algjöra frí­verslun með sjáv­ar­af­urðir,“ segir hann í við­tal­inu. Hann segir jafn­framt að þetta verði helsta krafa Íslend­inga í við­ræð­unum við Breta en til vara að ekki verði lak­ari kjör heldur en bjóð­ast í dag.

„Þetta er algjört for­gangs­mál hjá okkar utan­rík­is­ráð­herra og rík­is­stjórn, og ég held að þar verði engin breyt­ing á þó hér verði rík­is­stjórn­ar­skipti. Þetta er svo stórt hags­muna­mál,“ segir Stefán Haukur Jóhann­es­son, for­maður stýri­hóps utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins sem sér um þessi mál, í við­tali við Fiski­fréttir.

Í við­tal­inu kemur einnig fram að íslenska stjórn­sýslan sé önnum kafin við að búa sig undir þessi vænt­an­legu umskipti og á vegum ráðu­neyt­anna sé unnið að því að kort­leggja mögu­leik­ana og móta samn­ings­mark­mið með íslenska hags­muni að leið­ar­ljósi.

Hagsmunir miklir

Stefán Haukur segir að Bretar séu eitt helsta við­skipta­land Íslend­inga þannig að hags­munir þar séu gríð­ar­miklir, ekki síst í sjáv­ar­út­vegs­málum. Og við það að Bretar gangi úr ESB séu þeir líka að ganga úr EES en í gegnum EES hafa Íslend­ingar góðan aðgang að Bret­lands­mörk­uðum og innri mark­aði Evr­ópu­sam­bands­ins. Þess vegna þurfi að vinna úr því og tryggja að ekki verði truflun á þessum mik­il­vægu við­skiptum sem Íslend­ingar eiga við Breta.

Annað grund­vall­ar­mál í vænt­an­legum við­ræðum við Breta segir Sig­ur­gerð snú­ast um að tryggja að engin snurða hlaupi á þráð­inn varð­andi flæði vöru yfir landa­mæri. „Það þýðir að við verðum að sjá til þess það verði áfram gagn­kvæm við­ur­kenn­ing á heil­brigð­is­skoðun í báðum löndum,“ segir hann en telur þó afar ólík­legt að á þessu muni steyta, segir í við­tal­inu.

„Því það er nú svo að ef Bretar gera sér ein­hverjar vonir um að ætla að hafa aðgang að innri mark­aði ESB, hvort sem þeir verða áfram á innri mark­aði eða gera ein­hverja samn­inga um það, þá verða þeir að upp­fylla slíkar kröfur og standa áfram að því kerfi sem þeir eru aðilar í dag,“ segir hann.

Brotthvarf Breta flækir málin frekar en hitt

Þriðja atriðið sem nefnt er í við­tal­inu í Fiski­fréttum, sem Íslend­ingar þurfa að fá nið­ur­stöðu í hvað sjáv­ar­út­veg­inn varðar, eru við­ræður og samn­ingar af ein­hverju tagi um deilistofna, sem flakka á milli lög­sagna ríkja þannig að þau verða að koma sér saman um ein­hverjar tak­mark­anir á veiðum úr þeim.

„Það er svo sem erfitt að sjá nákvæm­lega hvaða þýð­ingu brott­hvarf Breta hefur nema það er ljóst að það mun frekar flækja dæmið heldur en hitt,“ segir Sig­ur­geir. „Það fjölgar nátt­úr­lega um eitt strand­ríki, einn aðila að deilu­málum okkar um mak­ríl, kolmunna og norsk-íslenska síld. Og það er alla vega mín til­finn­ing að það muni ekki auð­velda lausn­ina.“

Ef þessi mál verða óleyst þegar Bretar ganga úr Evr­ópu­sam­band­inu gætu við­ræð­urnar orðið harla flóknar. „Það væri þess vegna afskap­lega mik­il­vægt fyrir okkur ef það væri hægt að ná að loka samn­ingum áður en þeir fara út, en kannski ekki lík­legt að það ger­ist.“

Hægt er að lesa við­talið í heild sinni á vef­síðu Fiski­frétta.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

sjávarútvegsmál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár