Viðmið um hámarkstekjur og eignir leigutaka hækka

Alþingi sam­þykkti laga­breyt­ingu þar sem hámark­s­við­mið um tekjur og eignir vegna almennra íbúða eru hækkuð en breyt­ingin hefur nú tekið gildi.

Hallgerðargata í Reykjavík
Hall­gerð­ar­gata í Reykja­vík Mynd: Bjarg

Alþingi hefur sam­þykkt laga­breyt­ingu þar sem hámark­s­við­mið um tekjur og eignir vegna almennra íbúða eru hækkuð. Breyt­ingin tók gildi þann 1. jan­úar síð­ast­lið­inn.

Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá Bjargi íbúða­fé­lagi.

Hámark­s­við­mið eru nú eft­ir­far­andi:

  • 6.420.000 krónur ári, fyrir skatta (eða 535.000 krónur á mán­uði) fyrir hvern ein­stak­ling.
  • 8.988.000 krónur á ári, fyrir skatta (eða 749.000 krónur á mán­uði) fyrir hjón og sam­búð­ar­fólk.
  • 1.605.000 krónur á ári, fyrir skatta (eða 133.750 krónur á mán­uði) fyrir hvert barn eða ung­menni að 20 ára aldri sem býr á heim­il­inu.
  • Þá má heild­ar­eign heim­ilis ekki vera hærri en 6.930.000 krónur.

Í til­kynn­ing­unni segir að Bjarg íbúða­fé­lag fagni þessum breyt­ingum sem veiti fleiri ein­stak­lingum og fjöl­skyldum kost á hag­kvæmu og öruggu leigu­hús­næði. Opið sé fyrir skrán­ingar sam­kvæmt nýju tekju­við­miði á vef Bjargs.

Þá muni virkir umsækj­endur sem áður höfðu fengið höfnun vegna of hárra tekna eða eigna, en falla nú undir ný við­mið fá boð um íbúð eftir því sem þær standa til boða.

Almenna íbúða­kerfið er til­raun til að end­ur­reisa ein­hvern vísi að félags­lega hús­næð­is­kerf­inu sem var aflagt undir lok síð­ustu aldar með þeim afleið­ingum að félags­legum íbúðum fækk­aði um helm­ing milli áranna 1998 og 2017.

Almennar íbúðir fá stofn­fram­lög sam­kvæmt lögum og til­gangur þeirra er að auka hús­næð­is­ör­yggi efna­minni fjöl­skyldna. Hug­myndin er að skapa fram­boð af íbúðum sem hægt er að leigja þannig að kostn­að­ur­inn verði ekki umfram 25 pró­sent af tekjum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár