Erlendir aðilar áttu 1.063 milljarða á Íslandi um síðustu áramót

Eigið fé erlendra aðila á Íslandi hefur ekki verið meira frá árinu 2007. Ein­stak­lingar eða félög í Lúx­em­borg og Hollandi eiga mest.

Erlendir aðilar hafa keypt mikið af eignum á Íslandi.
Erlendir aðilar hafa keypt mikið af eignum á Íslandi. Mynd: Pexels

Erlendir aðilar áttu sam­tals eignir sem metnar voru á 1.063 millj­arða á Íslandi um síð­ustu ára­mót. Eigið fé erlendra aðila á Íslandi var metið á 592,5 millj­arða króna og jókst um tæp 25 pró­sent milli ára. Það er nú meira en það hefur nokkru sinni verið frá hruni. Raunar hefur eigið fé erlendra aðila á Íslandi ein­ungis einu sinni verið meira frá því að farið var að halda utan um það, árið 2007 þegar það var 660,5 millj­arðar króna.

Þetta kemur fram í nýjum tölum Seðla­banka Íslands um beina fjár­fest­ingu. Þar segir einnig að lána­staða milli erlendra og inn­lendra aðila (e. inter-company loans) hafi verið 470,5 millj­arðar króna í lok árs 2018. Hún hefur lækkað hratt á und­an­förnum árum eftir að hafa náð hámarki 2011 í 1.343 millj­örðum króna.

[adspot]Ástæða þess er að meðal ann­ars upp­gjör þrota­búa föllnu bank­anna og styrk­ing á gengi krón­unnar sem lækkar upp­hæð­ina í krónum talið.

Kunnulegar slóðir

Mestar eignir hér­lendis eiga aðilar með heim­il­is­festi í Lúx­em­borg, 275 millj­arða króna, og í Hollandi, 202 millj­arðar króna. Þar á eftir koma erlendir ein­stak­lingar eða félög sem skráð eru í Sviss, en slíkir eiga 202 millj­arða króna á Íslandi.

Vel þekkt hefur verið árum saman að fjöl­margir íslenskir ein­stak­lingar eiga félög í ofan­greindum löndum og að þau félög haldi á eignum hér­lendis fyrir hönd þeirra. Því eru allar líkur á því að hluti þeirra eigna sem skráðar eru í eigu erlendra aðila á Íslandi séu í raun í eigu íslenskra ein­stak­linga án þess að það eign­ar­hald birt­ist með skýrum hætti í gögnum íslenskra stjórn­valda.

Rúmlega helm­ingur eigna erlendra aðila á Íslandi, alls 604 millj­arðar króna, er í fjár­mála- og vátrygg­inga­starf­semi. Innan þeirrar skil­grein­ingar rúm­ast meðal ann­ars eignir þeirra fjár­fest­inga­sjóða sem eiga stóran hlut í Arion banka og skráðum trygg­inga­fé­lögum.

Raunverulegir eigendur

Kjarninn greindi frá því fyrr í þessum mán­uði að allir þeir sem eiga félag á Íslandi hafa þurft, frá og með 30. ágúst 2019, að veita fyr­ir­tækja­skrá upp­lýs­ingar um nafn, lög­heim­ili, kenni­tölu, rík­is­fang og eign­ar­hlut/­teg­und eign­ar­halds. Þá þurfa allir að fram­vísa gögnum sem stað­festa veittar upp­lýs­ingar og sýna fram á að við­kom­andi sé raun­veru­legur eig­andi þess félags sem um ræð­ir.

[adspot]Þeir sem eru að stofa félag eða til­kynna um breyt­ingar á því þurfa að veita umræddar upp­lýs­ingar sam­hliða því. Aðrir hafa þangað til 1. júní 2020 til að veita upp­lýs­ing­arn­ar. Upp­haf­lega átti að gefa þeim frest fram til 1. des­em­ber 2019 til að gera það, en efna­hags- og við­skipta­nefnd ákvað að leggja fram breyt­ing­ar­til­lögu um að lengja frest­inn þegar málið var í með­förum henn­ar.

Laga­breyt­ingin er meðal ann­ars til þess gerð að loka þeirri algengu felu­leið að láta félög, t.d. eign­ar­halds­fé­lög eða rekstr­ar­fé­lög sem héldu á eignum á Íslandi, vera í eigu erlendra félaga, sem voru síðan í eigu ann­arra erlendra félaga, sem voru í eigu sjóða í skatta­skjólum þar sem engar eða litlar kröfur voru gerðar um skrán­ingar og skil á gögn­um. Þannig hefur verið verið hægt að fela hver raun­veru­legur eig­andi (e. beneficial owner) félaga er.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár