Samspil mann­legra og kerf­is­lægra þátta Land­spít­al­inn komst að þeirri nið­ur­stöðu að flókið sam­spil mann­legra og kerf­is­lægra þátta urðu til þess að sjúk­lingur á geð­deild lét lífið í ágúst 2021. Steina Árna­dóttir var hins vegar ákærð fyrir mann­dráp með ásetn­ingi en sýknuð af þeim sökum fyrr í vik­unni.

Atburðarásin sem leiddi til sýknudóms yfir Steinu

Steina Árna­dóttir hjúkr­un­ar­fræð­ingur var ákærð fyrir mann­dráp vegna and­láts á geð­deild Land­spít­al­ans. Dómurinn sýnir hins vegar ófremd­ar­á­stand á spít­al­anum. Fyrir vakt­ina reyndi hún að bregð­ast við með beiðni um aðstoð ann­ars hjúkr­un­ar­fræð­ings en end­aði í ein­angrun í gæslu­varð­haldi. Hér er sagan öll.

Steina Árna­dóttir hjúkr­un­ar­fræð­ingur var fyrr í vik­unni sýknuð af ákæru um mann­dráp í opin­beru starfi og brot gegn lögum um heil­brigð­is­starfs­menn, þar eð ekki tókst að sanna að ætlun hennar hefði verið að svipta sjúk­ling lífi á geð­deild Land­spít­al­ans þann 16. ágúst 2021, heldur hafi ætl­unin verið að reyna að bjarga honum. 

Dagmar Ösp Vésteins­dóttir sak­sókn­ari krafð­ist þungrar refs­ingar yfir Steinu. Fyrir dómi sagði Dagmar að Steina hefði verið „pirruð“ og tekið pirr­ing­inn út á „erf­iðum sjúk­lingi“ með því að hella ofan í hann tveimur nær­ing­ar­drykkjum. Enn fremur sak­aði Dagmar Steinu um hafa gengið fram með „offorsi“, með „skelfi­legum afleið­ingum“ og ætti sér því litlar máls­bætur. Í mál­flutn­ingi sínum bað Dagmar dóm­inn að líta til dóms sem féll yfir manni sem var dæmdur í fjórtán ára fang­elsi fyrir að valda dauða tveggja manna með íkveikju. Atvikið sem Steina var ákærð fyrir og átti sér stað á kvöld­vakt mót­töku­geð­deildar Land­spít­al­ans …

Kjósa
32
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (4)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Stefanía Stefánsdottir skrifaði
    Afhverju get ég ekki lesið þessa grein ? Ég er áskrifandi
    0
  • Ásta Jensen skrifaði
    Hún slapp vel. Hún hefði átt að taka út dóm í samfélagsþjónustu og fara í endurhæfingu. Það er alvarlegt mál að vinna á geðdeild og það þýðir ekkert að vera pirraður þrátt fyrir álag. Auðvitað vitum við að hún ætlaði ekki að drepa neinn. En það hellir enginn vökva ofan í manneskju til að losa stíflu. Ef það stendur í sjúkling á að beita lífgunartilrauniraðferðum með því að þrýsta á þind með vissum vinnubrögðum. Hún á að fara á námskeið.
    -2
  • Þorsteinn Gunnarsson skrifaði
    Ég hef sko á tilfinngunni að þessi "hjúkka" hafi sloppið rúmlega vel. Eiginlega bara glæpsdamlega vel. En Nota Bene... það er svo sem ekkert í tísku að dæma fólk furor glæði í dag. Pg þá sjaldan það gerist er #skilyrtur dómur" orðin að meginreglu en ekki viðurkenndir undan-tekningu.
    Við erum þvottekta AUMINGJAR og krimmarnir algerlega elska það.
    -3
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár