Áfram Ísland!

Stóri dag­ur­inn er í dag. Ísland mætir Argent­ínu í fyrsta leik liðs­ins á Heims­meist­ara­mót­inu í Rúss­landi. Sjáðu byrj­un­ar­liðin hjá báðum þjóðum og gerðu þig klára/n fyrir öskur­veislu og hæsi með Gumma Ben!

Ísland hefur keppni á HM í Rúss­landi í dag þegar liðið mætir sterku liði Argent­ínu. Þar er fremstur meðal jafn­ingja, einn allra besti leik­maður heims, Lionel Messi, leik­maður Barcelona og Kjarninn hefur fjallað ítar­lega um hér.

[links]Það verður að finna leiðir til stöðva hann, ef leik­ur­inn á að fara vel fyrir Ísland. Svo mikið er víst.

Greint var frá byrj­un­ar­liði Argent­ínu í gær en Heimir Hall­gríms­son þjálf­ari Íslands birti okkar lið nú fyrir skömmu.

Byrj­un­ar­lið Íslands:

Hannes Þór Hall­dórs­son

Birkir Már Sæv­ars­son

Ragnar Sig­urðs­son

Kári Árnason

Hörður Björgvin Magn­ús­son

Jóhann Berg Guð­munds­son

Aron Einar Gunn­ars­son

Birkir Bjarna­son

Gylfi Þór Sig­urðs­son

Alfreð Finn­boga­son

Byrj­un­ar­lið Argent­ínu:

Mark­vörð­­ur­: Willy Caball­­er­o (Chel­­sea)

Hægri bak­vörð­­ur­: Ed­u­­ardo Sal­vi­o (Ben­fica)

Vinstri Bak­vörð­­ur­: N­icolas Tagli­afico (A­jax)

Mið­verð­ir: N­icolas Ota­m­end­i (M­­an.City), Marcos Rojo (M­­an.Utd)

Miðju­­menn: Ja­vier Mascher­a­no (Hebei China Fortu­­ne), Lucas Bigl­i­a (AC Milan), Angel Di Mar­í­a (PS­G), Max­im­il­i­ano Meza (Ind­erpend­i­ente).

„Tí­a“: Lionel Messi (Barcelona)

Fram­herj­­i: Sergio Agu­er­o (M­­an.City).

Íslenska A-karla­lands­liðið hefur aldrei keppt áður á móti liði Argent­ínu í sög­unni og eins og alþjóð veit ekki heldur á Heims­meist­ara­mót­inu, svo burt­séð frá því hvernig fer verður viður­eignin alltaf sögu­leg.

Þrátt fyrir sterka mótherja í upp­hafi móts hefur íslenska liðið hefur sýnt það, að þegar leik­menn standa saman þá getur það lagt sterka and­stæð­inga af velli, og haldið stór­stjörnum í skefj­um.

Rifja má upp að liðið gerði jafn­tefli í fyrsta leik Evr­ópu­meist­ara­móts­ins fyrir tveimur árum síðan, gegn Portúgal, 1-1. Í öðrum leik liðs­ins „tap­aði“ liðið með því að gera aftur 1-1 jafn­tefli, þá á móti Ung­verja­landi. Í loka­leik riðla­keppn­innar vann liðið síðan fræk­inn sigur á Aust­ur­ríki, 2-1, kom íslenska lands­lið­inu upp úr riðl­inum í hinn sögu­lega sig­ur­leik gegn Englandi í útslátt­ar­keppn­inni. Sá leikur fór 2-1 fyrir Íslandi sem síðan tap­aði fyrir Frakk­landi í 8 liða úrslitum.

Núna er að duga eða drep­ast aftur, og leggja líf og sál í leik­ina framund­an.

Á­fram Ísland!

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hm2018

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár