Núverandi sóttvarnaráðstafanir verða framlengdar um tvær vikur

Svandís Svav­ars­dóttir heil­brigð­is­ráð­herra sagði á blaða­manna­fundi að ákveðið hefði verið að fram­lengja núver­andi reglu­gerð um opin­berar sótt­varna­ráð­staf­anir um tvær vikur þegar hún rennur út 13. ágúst.

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra.
Svandís Svav­ars­dóttir heil­brigð­is­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Þegar núver­andi reglu­gerð um sótt­varna­ráð­staf­anir inn­an­lands, sem felur meðal ann­ars í sér að ein­ungis 200 manns mega koma saman og veit­inga­staðir og krár þurfa að vísa öllum gestum sínum út á mið­nætti, rennur út þann 13. ágúst, verður hún fram­lengd um tvær vikur.

Þetta til­kynnti Svandís Svav­ars­dóttir á blaða­manna­fundi rík­is­stjórn­ar­innar sem fram fór í Reykja­nesbæ síð­degis í dag.

Fram kom í máli heil­brigð­is­ráð­herra að í minn­is­blaði sótt­varna­læknis hefðu verið færð rök fyrir því að ekki væri tíma­bært að aflétta gild­andi tak­mörk­unum á dag­legt líf lands­manna strax í næstu viku.

[adspot]

Meðal ann­ars hefði þar sagt að meira en helm­ingur þeirra sem væru 70 ára og eldri og hefðu smit­ast af COVID-19 í þess­ari bylgju far­ald­urs­ins væru ein­ungis á fyrstu viku veik­inda og því væri ekki komin nægi­leg reynsla á það hvernig við­kvæmum hópum myndi reiða af vegna veik­inda af völdum kór­ónu­veirunnar.

Aðgerð­irnar sem eru í gildi munu því vera við lýði til 27. ágúst, sam­kvæmt orðum heil­brigð­is­ráð­herra.

Skólastarf tekur mið af takmörkunum í samfélaginu

Skóla­starf verður bundið sömu tak­mörk­unum og almennt gilda í sam­fé­lag­inu, þ.e. að ekki fleiri en 200 mega vera í sama rým­inu.

Und­an­tekn­ing verður þó gerð í skólum lands­ins hvað grímu­skyldu varðar, en nem­endur sem fæddir eru 2006 og síðar þurfa ekki að bera grímu og þeir sem fæddir eru fyrr mega taka niður grímuna þegar þau setj­ast niður í skóla­stof­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár