RÚV braut lög um Ríkisútvarpið

RÚV braut lög með því að kosta sjö þætti sem ekki telj­ast „íburð­ar­miklir dag­skrár­liðir“. Fjöl­miðla­nefnd féll frá stjórn­valds­sekt í mál­inu vegna þess að búið er að breyta reglum RÚV eftir að 365 miðlar kvört­uðu.

RÚV braut gegn lögum um Rík­is­út­varpið með því að kosta sjö þætti í sjón­varps­dag­skrá sinni. Þetta er nið­ur­staða fjöl­miðla­nefndar.

Það voru 365 miðlar sem kvört­uðu yfir RÚV, en fyr­ir­tækið taldi að RÚV hefði brotið gegn lögum um Rík­is­út­varpið með því að kosta dag­skrár­lið­ina Árið er – upp­rifjun á Eurovision, Popp og rokksaga Íslands, Vikan með Gísla Marteini, Hrað­fréttir og Íþrótta­lífið. Þessi kvörtun barst í ágúst síð­ast­liðnum en áður höfðu 365 miðlar kvartað með sam­bæri­legum hætti yfir kostun á Hrað­fréttum, Útsvari og Óska­lögum þjóð­ar­innar.

Samkvæmt lögum um Rík­is­út­varpið má ekki afla tekna með kostun dag­skrár­efnis nema í und­an­tekn­inga­til­fellum. Und­an­tekn­ing­arnar eru ann­ars vegar „við útsend­ingu íburð­ar­mik­illa dag­skrár­liða til að mæta útgjöldum við fram­leiðslu eða kaup á sýn­ing­ar­rétti“ og hins vegar við útsend­ingu inn­lendra íþrótta­við­burða og umfjöllun um þá.

Fjöl­miðla­nefnd komst að þeirri nið­ur­stöðu að eng­inn þátt­anna sem kvartað var undan féllu undir íburð­ar­mikla dag­skrár­liði og því hefði verið óheim­ilt að kosta þætt­ina.

RÚV þarf hins vegar ekki að greiða stjórn­valds­sekt vegna þess að eftir að málið kom upp ákvað RÚV að gera grund­vall­ar­breyt­ingar á skil­málum um aug­lýs­ingar, sem fjöl­miðla­nefnd segir að feli í sér tölu­verða tekju­skerð­ingu fyrir félagið. Samkvæmt nýju regl­unum falla bara sex þættir sem sýndir hafa verið á RÚV und­an­farin tvö ár undir íburð­ar­fulla dag­skrár­liði, en það eru Ófærð, 50 ára afmæli Sjón­varps­ins, Ligeglad, Topp­stöðin, Spaug­stofan í 30 ár og Dreka­svæðið. Það eru þættir og þátt­araðir þar sem fram­leiðslu- eða inn­kaupa­kostn­aður nemur að lág­marki 30 millj­ónum króna á árs­grund­velli.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár