Ofbeldi, meiðyrði og afleiðingar í Hollywood

Amber Heard og Johnny Depp ber ekki saman um það hvort þeirra var ofbeld­is­mað­ur­inn í sam­bandi þeirra. Nú takast þau á um það í annað sinn fyrir dóm­stólum þar sem þau saka hvort annað um alvar­legt ofbeldi.

Hér sést Heard ræða við lögmenn sína í dómsal og Depp í bakgrunn.
Hér sést Heard ræða við lög­menn sína í dóm­sal og Depp í bak­grunn. Mynd: EPA

Þeir sem skoða sam­fé­lags- og fjöl­miðla hafa vart farið var­hluta af rétt­ar­höld­unum sem nú fara fram í máli banda­rísku leik­ar­anna Johnny Depp og Amber Heard. Þar er tek­ist á um ofbeldi í sam­bandi þeirra, en í raun snýr dóms­málið sjálft ekki að því með beinum hætti heldur er þar um að ræða meið­yrða­mál.

Upphaf dóms­máls­ins má rekja til greinar sem Heard skrif­aði í The Washington Post árið 2018. Umfjöll­un­ar­efni grein­ar­innar var heim­il­is­of­beldi og kvaðst Heard vera opin­ber per­sóna sem orðið hefði fyrir slíku í af hendi fyrr­ver­andi eig­in­manns. Þar sagði Heard jafn­framt frá nei­kvæðum afleið­ingum á starfs­frama hennar í Hollywood í kjöl­far þess að hún steig fram með ásak­an­irnar. Johnny Depp var hvergi nefndur á nafn í grein Heard, en þar sem þau höfðu skilið árið áður var nokkuð ljóst um hvern verið var að ræða.

[adspot]Þessu voru Depp og lög­fræð­ingur hans sam­mála og lögð var fram kæra á hendur Heard fyrir meið­yrði sem hefðu orðið til þess að starfs­frami Depp var á enda, en í kjöl­far birt­ingar grein­ar­innar missti Depp meðal ann­ars risa­stór hlut­verk sín í Fantastic Beasts og Pirates of the Caribbean.

Depp lét hins vegar ekki nægja að kæra Heard fyrir meið­yrði heldur sendi lög­fræð­ingur hans út yfir­lýs­ingu fyrir hans hönd þar sem ásak­anir Heard eru sagðar ósannar, og ákvað Heard að greiða honum í sömu mynt og kærði Depp fyrir meið­yrði á móti. Kærurnar tvær eru nú teknar fyrir á sama tíma.

Áður mistekist að verjast ásökununum fyrir dómi

En þetta er ekki í fyrsta skipti sem tek­ist á er um málið fyrir dómi, en það var gert í breskum dóm­stóli þegar Depp kærði breska dag­blaðið The Sun fyrir meið­yrði vegna fyr­ir­sagnar sem birt var árið 2020 þar sem Depp var sagður ofbeld­is­maður. Málið var tekið fyrir í breskum dóm­stólum sama ár og var það dæmt dag­blað­inu í vil á þeim grund­velli að fjöldi sann­ana lægju fyrir um að Depp hafi ítrekað beitt Heard ofbeldi á meðan á hjóna­bandi þeirra stóð.

Depp mistókst þannig að sann­færa breskan dóm­stól um að ásak­an­irnar á hendur honum væru falskar og reynir það nú í annað sinn fyrir dóm­stólum í Virginíu í Banda­ríkj­unum, en í eins konar fjöl­miðla­stríði sem hófst í kjöl­far birt­ingar greinar Heard í Washington Post í lok árs 2018 hafa Depp og Heard ítrekað sakað hvort annað um ofbeldi á meðan á sam­bandi þeirra stóð.

Ásakanir um alvarlegt ofbeldi í báðar áttir

Hjónunum fyrr­ver­andi ber ekki saman um hin ýmsu atvik sem upp komu á meðan á sam­bandi þeirra stóð, en meðal ann­ars er deilt um atvik þar sem Depp missti bút úr fingri. Samkvæmt honum kastað Heard í hann vod­kaflösku sem brotn­aði á hendi hans, en hún segir hann hafa slasað sig á far­síma sem hann hafi mölvað með því að berja í vegg í reiðiskasti. Heard seg­ist aldrei hafa beitt ofbeldi nema í sjálfs­vörn. Depp hafi beitt hana lík­am­legu, and­legu og kyn­ferð­is­legu ofbeldi.

Miðað við áverk­ana sem þau hafa bæði sýnt fram á að hafa hlotið á meðan á sam­bandi þeirra stóð er alla­vega víst að þau hafa átt í mjög ofbeld­is­fullu sam­bandi, hvort sem það var annað þeirra eða þau bæði sem áttu þátt í því. Sama hver nið­ur­staða dóms­máls­ins verður er óvíst hvort Depp eða Heard muni nokkurn tím­ann eiga end­ur­kvæmt á stóra skjá­inn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár