Körlum á Íslandi fjölgar mun hraðar en konum

Í fyrra voru tveir af hverjum þremur útlend­ingum sem fluttu til lands­ins karlar. Alls eru tæp­lega sjö þús­und fleiri karlar en konur með búsetu í land­inu og spár gera ráð fyrir að þeir verði orðnir allt að 14 þús­und fleiri eftir örfá ár.

Fjöldi erlendra karlmanna flytur til Íslands til að starfa í byggingaiðnaði.
Fjöldi erlendra karl­manna flytur til Íslands til að starfa í bygg­inga­iðn­aði. Mynd: Bára Huld Beck

Körlum sem búa á Íslandi hefur fjölgað um 18.960 frá lokum árs 2011. Á sama tíma hefur konum fjölgað um 12.530 tals­ins. Körlum hefur því fjölgað umfram konur um 6.430 á rúmum sex árum og eru nú 177.600, en konur 170.850. Karlar eru því 6.750 fleiri en konur eins og er. Þetta má lesa út úr nýbirtum tölum Hagstofu Íslands.

[links]Þar kemur fram að hlut­fall karla hafi verið 50,2 pró­sent af heildar­í­búa­fjölda Íslands í lok árs 2011 en er nú um 51 pró­sent. Samkvæmt mann­fjölda­spá mun þessi þróun halda áfram næstu árin. Í byrjun árs 2022 munu karlar til að mynda verða orðnir 10.669 fleiri en konur sam­kvæmt mið­spá Hagstofu Íslands og 13.599 fleiri sam­kvæmt háspá hennar.

Lang­flestir sem hingað koma eru karlar, enda mikil eft­ir­spurn eftir vinnu­afli í greinum þar sem þeir eru lík­legri til að starfa í, sér­stak­lega bygg­inga­iðn­aði. Í fyrra fluttu 7.888 erlendir rík­is­borg­arar til lands­ins umfram brott­flutta. Þar af voru 5.309 karlar, sem þýðir að tveir karlar með erlent rík­is­fang fluttu til lands­ins fyrir hverja konu sem það gerði.

Erlendir ríkisborgarar gætu orðið 17 prósent landsmanna innan skamms

Í mann­fjölda­spánni, sem var birt í lok októ­ber 2017, mun aðfluttum umfram brott­flutta á Íslandi fjölga um 18.266 frá byrjun árs 2018 til 1. jan­úar 2021 sam­kvæmt mið­spá. Samkvæmt háspá mun þeim fjölga um 28.584 á tíma­bil­inu. Í þessum hópi eru nán­ast ein­vörð­ungu erlendir rík­is­borg­arar sem flytja til Íslands.

[adspot]Gangi þær spár eftir verða erlendir rík­is­borg­arar á Íslandi á bil­inu 55 til 65 þús­und 1. jan­úar 2021. Mann­fjölda­spáin gerir ráð fyrir því að fjöldi Íslend­inga verði 368-376 þús­und í byrjun árs 2021. Það þýðir að þeir verði 15-17 pró­sent þjóð­ar­innar eftir tvö og hálft ár. Í lok mars síð­ast­lið­ins voru þeir 11,2 pró­sent allra íbúa lands­ins.

Erlendum rík­is­borg­urum sem búa á Íslandi hefur fjölgað um 89 pró­sent frá lokum árs 2011. Þá bjuggu hér 20.930 slíkir en í lok mars síð­ast­lið­ins voru þeir 39.570. Á fyrstu þremur mán­uðum árs­ins 2018 fjölg­aði erlendum rík­is­borg­urum sem búa á Íslandi um 2.880 tals­ins, sem er langt umfram það sem háspá Hag­stof­unnar gerði ráð fyrir að þeim myndi fjölga. Ef fjölg­unin verður jafn mikil á seinni þremur árs­fjórð­ungum árs­ins mun erlendum rík­is­borg­urum á Íslandi fjölga um 11.520 í ár. Háspá Hag­stof­unnar gerði ráð fyrir 5.912 manna aukn­ingu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Útlendingamál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár