Dregið úr komum úkraínskra flóttamanna – Fráflæðisvandi eykst í búsetuúrræðum

Í mars sóttu 533 mann­eskjur með tengsl við Úkraínu um vernd hér á landi. Í maí voru umsókn­irnar 221. Í gær höfðu 1.222 Úkra­ínu­menn leitað skjóls frá stríði á Íslandi. Það er álíka fjöldi og býr í sveit­ar­fé­lag­inu Vogum.

Milljónir Úkraínumanna hafa lagt á flótta og um 1.200 þeirra hafa endað á Íslandi.
Millj­ónir Úkra­ínu­manna hafa lagt á flótta og um 1.200 þeirra hafa endað á Íslandi. Mynd: EPA

Frá því í febr­úar hafa að með­al­tali 244 Úkra­ínu­menn komið hingað til lands í hverjum mán­uði og sótt um alþjóð­lega vernd. Í febr­úar voru umsókn­irnar sextán en á 24. degi þess mán­aðar hófst inn­rás Rússa í Úkraínu.

Mikill fólks­flótti hófst í kjöl­farið og í mars sóttu 533 mann­eskjur með tengsl við Úkraínu um hæli hér. Fjöldinn var 327 í apríl en kom­inn niður í 221 í maí. Svo virð­ist sem enn haldi áfram að hægja á komu þeirra hingað í leit að vernd. Í gær höfðu 125 Úkra­ínu­menn komið hingað í leit að vernd í júní. Misjafnt er hversu margir koma á degi hverjum. Í fyrra­dag komu tólf og á síð­ustu tveimur vikum komu 73, svo dæmi séu tekin, úr upp­lýs­ingum sem Kjarninn fékk frá Embætti rík­is­lög­reglu­stjóra.

Á um fimm mán­aða tíma­bili hafa í heild 1.222 flótta­menn frá Úkraínu leitað skjóls á Íslandi.

[adspot]

Enginn veit með vissu hversu margir hafa flúið Úkraínu vegna stríðs­átak­anna. Áætlað er að talan standi nú í um 7,7 millj­ónum. Lang­flestir hafa flúið til nágranna­lands­ins Póllands eða um fjórar millj­ónir.

En það eru fleiri á flótta í heim­inum sem leggja í löng ferða­lög frá heima­högum í leit að skjóli eða betra lífi. Frá ára­mótum hafa 1.896 ein­stak­lingar sótt um alþjóð­lega vernd hér á landi. Lang­flestir eru með tengsl við Úkraínu. Flótta­fólk frá Venes­ú­ela er næst flest (370) og fólk á flótta frá Palest­ínu er þriðji fjöl­menn­asti hóp­ur­inn. Í Venes­ú­ela hafa miklar efna­hags­þreng­ingar haft gríð­ar­leg áhrif á almenn­ing á síð­ustu árum. Þá eru vopnuð átök einnig tíð á ákveðnum land­svæðum. Í Palest­ínu hefur ástandið verið slæmt árum og ára­tugum saman og ítrekað kemur til átaka – oft mann­skæðra.

Gögn rík­is­lög­reglu­stjóra um flótta­menn sem hingað koma eru flokkuð í tvennt eftir kynjum; karl­kyn og kven­kyn. Þegar litið er til hóps umsækj­enda í heild eru konur í meiri­hluta (55 pró­sent) og í miklum meiri­hluta (64 pró­sent) hvað varðar fólk á flótta frá Úkraínu.

Um 450 börn hafa leitað verndar á Íslandi á árinu, þar af 304 frá Úkraínu.

Staða Úkra­ínu­manna ann­ars vegar og flótta­fólks frá öðrum löndum hins vegar er almennt nokkuð ólík. Í byrjun mars ákvað dóms­mála­ráð­herra að virkja ákvæði í útlend­inga­lögum er varðar fjölda­flótta í sam­ræmi við ákvörðun Evr­ópu­sam­bands­ins að virkja sams­konar úrræði. Þessi aðferð er fyrst og fremst til þess að geta veitt þeim sem flýja Úkraínu skjóta og skil­virka aðstoð, nánar til­tekið tíma­bundna vernd, án þess að mót­takan og aðstoðin verði vernd­ar­kerfi Íslands ofviða, sagði í til­kynn­ingu dóms­mála­ráðu­neyt­is­ins.

Úkra­ínu­menn fá dval­ar­leyfi sem veitt er til eins árs í senn með heim­ild til að end­ur­nýja eða fram­lengja í allt að þrjú ár. Síðar er heim­ilt að gefa út ótíma­bundið dval­ar­leyfi.

Dval­ar­leyfið sem ein­stak­lingum er veitt á þessum grund­velli felur í sér sömu rétt­indi og aðgengi að þjón­ustu og dval­ar­leyfi á grund­velli mann­úð­ar­sjón­ar­miða. Það þýðir aðgengi að hús­næði, fram­færslu, félags­þjón­ustu, heil­brigð­is­þjón­ustu og aðgengi að atvinnu­mark­aðnum.

Aðrir sem hingað leita þurfa að sækja um vernd, bíða nið­ur­stöðu Útlend­inga­stofn­unar og geta kært þá nið­ur­stöðu til kæru­nefndar útlend­inga­mála. Þetta ferli getur tekið nokkra mán­uði.

Þeir sem sæta ofsóknum í heima­landi sínu eða heyra af öðrum ástæðum undir flótta­manna­hug­takið sam­kvæmt íslenskum lögum eiga rétt á alþjóð­legri vernd hér á landi. Þegar knýj­andi ástæður á borð við alvar­lega sjúk­dóma eða sér­lega erf­iðar félags­legar aðstæður í heima­landi eru til staðar er heim­ilt að veita dval­ar­leyfi af mann­úð­ar­á­stæðum. En hafi fólk fengið hæli í öðru Evr­ópu­landi er því almennt vísað aftur þangað án þess að mál þeirra fái efn­is­með­ferð.

Dvalið í skammtímaúrræðum mun lengur en áformað var

Um 700 manns dvelja nú í skamm­tíma búsetu­úr­ræðum á vegum Útlend­inga­stofn­unar og um 190 í svoköll­uðum „milli­stykkjum“ eða „skjólum“ líkt og Gylfi Þór Þor­steins­son, aðgerða­stjóri hjá félags- og vinnu­mark­aðs­ráðu­neyt­inu, orðar það, inntur eftir því hvernig gangi að koma öllu flótta­fólki sem hingað hefur leitað í hús­næði. „Milli­stykkin“ eru m.a. úrræði á borð við Bifröst, sem Borg­ar­byggð hefur umsjón með. Þar getur fólk dvalið í jafn­vel nokkra mán­uði ef þarf.

En blikur eru á lofti og hús­næði, bæði skamm­tíma- og lang­tíma, fer til­finn­an­lega að vanta við óbreyttar aðstæður.

„Fólkið á aðeins að þurfa að dvelja í skamm­tíma­úr­ræð­unum í nokkrar vikur en það er ekki raunin,“ segir Gylfi og bætir við að það eigi sér ýmsar skýr­ingar. Stundum taki máls­með­ferð umsókna um vernd langan tíma. Af þessum sökum og vegna þess að stöðugt kemur fleira flótta­fólk til lands­ins fyllist pláss sem losna strax og stöðugt þurfi því að bæta við hús­næði.

Öll úrræði þéttsetin

Gisti­heim­ili og hótel sem ekki eru í notkun eru hins vegar ekki á hverju strái í augna­blik­inu enda ferða­þjón­ustan farin á flug eftir far­ald­ur­inn. Það er því af sem áður var er nokkuð greið­lega gekk að finna hús­næði undir far­sótt­ar­húsin sem Gylfi veitti for­stöðu er COVID-far­ald­ur­inn stóð sem hæst.

Frá ára­mótum hefur þurft að koma tæp­lega 1.900 manns fyrir, þar af rúm­lega 1.200 frá Úkraínu. „Öll úrræði eru þétt­setin,“ segir Gylfi og að ákveð­inn „frá­flæð­is­vandi“ hafi mynd­ast þar sem sveit­ar­fé­lögin sem eiga sam­kvæmt aðgerð­ar­á­ætl­unum að taka við fólk­inu úr skamm­tíma­hús­næði geta það ekki alltaf. Skýr­ingin er hin marg­um­tal­aða hús­næðisekla, „það er eins og við vitum skortur á íbúð­ar­hús­næði og þetta hefur oft leitt til þess að fólk þarf að dvelja lengur í skamm­tíma­úr­ræðum Útlend­inga­stofn­unar heldur en stóð til í upp­hafi“.

Ný nálgun

Nýrra skamm­tíma­lausna er því stöðugt leitað en einnig vilja yfir­völd leið­beina flótta­fólki við að finna sitt eigið hús­næði á leigu­mark­aði er það hefur fengið hér dval­ar­leyfi og jafn­vel vinnu. Sem getur reynst þrautin þyngri af fyrr­greindum ástæðum. „Þannig að þetta stundum hel­víti töff,“ við­ur­kennir Gylfi. Hins vegar séu allir að reyna að leggj­ast á eitt að láta hlut­ina ganga upp en hvað næstu vikur og mán­uðir bera í skauti sér er óvíst.

Nú er verið að skoða að bæta bygg­ingum í þorp­inu á Eiðum á Fljóts­dals­hér­aði við sem búsetu­úr­ræði. Þar gætu að sögn Gylfa dvalið um 20 manns til að byrja með. Skóli var rek­inn á Eiðum á síð­ustu öld og hótel yfir sum­ar­tím­ann nokkuð fram á þessa. Þar er ný nálgun í far­vatn­inu, segir Gylfi, sem unnið er að með Vinnu­mála­stofnun og snýr að því að útvega fólk­inu sem þangað færi einnig vinnu. „Að tengja með þessum hætti saman vinnu og búsetu væri jafn­vel hægt að gera víðar úti á landi.“

Sögulegur fjöldi flóttamanna

Spurður hvort farið sé að slá af kröfum um það hús­næði sem hugsað er til skamm­tíma­dvalar flótta­fólks segir Gylfi svo ekki vera en að vissu­lega séu í slíku hús­næði ekki alltaf þær aðstæður sem æski­legar eru til lengri tíma. Fólk getur þurft að deila baði, eld­húsi og svo fram­vegis, og fjöl­skyldur að dvelja nokkuð þröngt saman í her­bergi.

„Það hafa aldrei komið jafn margir flótta­menn til lands­ins á jafn skömmum tíma í Íslands­sög­unni,“ segir Gylfi. „En ég tel að við séum að ná eins vel utan um þetta og hægt er miðað við þær aðstæður sem eru í hús­næð­is­málum. Við­bragðið sem sett var á stofn í vetur heldur ennþá. Allir sem að þessu koma eru að reyna að gera þetta eins vel og mögu­legt er. Því við erum nátt­úr­lega að tala um fólk. Það verður að vanda sig. Þeirra vegna.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár