Hafa framleitt örfáa bíla en eru samt verðmætari en flestir bílaframleiðendur

Tvö banda­rísk raf­bíla­fyr­ir­tæki sem eiga það sam­eig­in­legt að hafa ein­ungis fram­leitt örfáa bíla til þessa eru á meðal tíu verð­mæt­ustu bíla­fram­leið­enda heims eins og sakir standa, í kjöl­far skrán­ingar á hluta­bréfa­markað.

Frumgerð af rafknúna pallbílnum RT1 frá Rivian. Fyrirtækið hefur einungis framleitt nokkur hundruð bíla til þessa en var þó fyrr í vikunni þriðji verðmætasti bílaframleiðandi heims.
Frumgerð af raf­knúna pall­bílnum RT1 frá Rivian. Fyr­ir­tækið hefur ein­ungis fram­leitt nokkur hund­ruð bíla til þessa en var þó fyrr í vik­unni þriðji verð­mæt­asti bíla­fram­leið­andi heims. Mynd: EPA

Raf­bíla­fram­leið­and­inn Rivian var skráður á markað í Banda­ríkj­unum fyrr í mán­uð­inum og er nú, þrátt fyrir að hafa ein­ungis fram­leitt nokkur hund­ruð raf­bíla, einn verð­mæt­asti bíla­fram­leið­andi heims. Í gær var mark­aðsvirði fyr­ir­tæk­is­ins nærri 130 millj­örðum banda­ríkja­dala, jafn­virði um 17 þús­und millj­arða íslenskra króna.

Það var enn hærra fyrr í vik­unni, en þá skaust mark­aðsvirði félags­ins meira að segja upp fyrir verð­mæti Volkswagen – og Rivian varð þar með þriðji verð­mæt­asti bíla­fram­leið­andi í heimi. Einungis Tesla og Toyota voru ofar.[links]

Í fyrra­dag dal­aði hluta­bréfa­verð félags­ins þó nokkuð, í fyrsta sinn frá skrán­ingu félags­ins þann 11. nóv­em­ber og þarf Rivian að gera sér það að góðu að vera sjötta verð­mætasta fyr­ir­tækið í bíla­brans­anum, sam­kvæmt sam­an­tekt á vefnum companiesmarketcap.com.

En hvernig má það vera að fyr­ir­tæki sem hefur selt sára­fáa bíla og á eftir að koma allri sinni fjölda­fram­leiðslu almenni­lega af stað geti talist svona verð­mætt? Sér­fræð­ingar sem fylgj­ast grannt með á þessum mark­aði klóra sér sumir í höfð­inu yfir því. Í hlað­varps­þætti Financial Times í gær var spurn­ing­unni velt upp og sagði blaða­mað­ur­inn Peter Campbell að ein­fald­ast væri að lýsa verð­mati fyr­ir­tæk­is­ins sem hálf­gerðri klikkun.

„Stutta svarið er að þetta er algjör­lega klikkað, út frá öllum þeim mæli­kvörðum sem not­aðir eru til að verð­meta fyr­ir­tæki; tekjum, hagn­aði og öðru,“ sagði Campbell í þætt­inum, en benti síðan á að það virt­ist ein­fald­lega vera mat mark­aðs­að­ila að raf­bíla­fram­leið­endur væru mun verð­mæt­ari en hefð­bundnir bíla­fram­leið­endur í dag.

Það er ekki ofsögum sagt. Trú fjár­festa á raf­magn­aðri fram­tíð bíla­brans­ans virð­ist gíf­ur­leg og margir virð­ast til­búnir að taka áhættu og fjár­festa í fyr­ir­tæki eins og Rivian, sem gæti ef til vill flogið með him­in­skautum líkt og Tesla – sem er metið á yfir billjón banda­ríkja­dali sem sakir standa.

[adspot]

Stórir fjár­festar virð­ast líka hafa mikla trú á raf­bílum Rivian. Amazon-veldið á 20 pró­sent hlut í fyr­ir­tæk­inu og hefur samið við Rivian um fram­leiðslu á 100 þús­und raf­knúnum sendi­bílum fram til árs­ins 2030. Bíla­fram­leið­and­inn Ford er líka nokkuð stór hlut­hafi í Rivian, þrátt fyrir að vera reyndar í beinni sam­keppni á mark­aðnum fyrir raf­knúna pall­bíla.

Annað banda­rískt fyr­ir­tæki sem ein­beitir sér að fram­leiðslu raf­bíla, Lucid Motors, var einnig nýlega skráð á markað og er líka á lista yfir tíu verð­mæt­ustu bíla­fram­leið­endur heims­ins, þrátt fyrir að hafa til þessa selt sára­fáa bíla.

Í gær nam mark­aðsvirðið röskum 84 millj­örðum banda­ríkja­dala, jafn­virði 11 þús­und millj­arða íslenskra króna. Fyrstu tutt­ugu sport­bíl­arnir úr smiðju fyr­ir­tæk­is­ins voru afhentir í lok októ­ber­mán­aðar og glædd­ist hluta­bréfa­verðið veru­lega um sama leyti og það var til­kynnt.

Hið sama blasir hins vegar við bæði Lucid Motors og Rivian – fyr­ir­tækin eiga enn eftir að koma fjölda­fram­leiðslu sinni á raf­knúnum öku­tækjum almenni­lega af stað. Það er alls óvíst hversu vel það mun ganga og sam­keppnin á ein­ungis eftir að harðna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár