Jón Pétursson nýr aðstoðarmaður Sigmundar Davíðs

Formaður Mið­flokks­ins ræður nýjan aðstoð­ar­mann.

Jón Pétursson
Jón Pét­urs­son Mynd: Aðsend mynd

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­maður Mið­flokks­ins hefur ráðið nýjan aðstoð­ar­mann, Jón Pét­urs­son. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá þing­flokknum.

Í til­kynn­ing­unni kemur fram að hann sé fæddur 1971 og stúd­ent frá Mennta­skól­anum í Reykja­vík 1991. Hann lauk prófi frá Stýri­manna­skól­anum í Reykja­vík árið 1994 og var stýri­maður til margra ára. Hann er einn af stofn­endum Mið­flokks­ins. Jón er giftur og á einn son og býr í Mos­fellsbæ.

Jóhannes Þór Skúla­son, fyrr­ver­andi aðstoð­ar­maður Sig­mundar Dav­íðs Gunn­laugs­son­ar, var ráð­inn fram­kvæmda­stjóri Sam­taka ferða­þjón­ust­unn­ar í maí síð­ast­liðnum og hóf störf í júní.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár