Að sætta sig við framtíðina

Að sætta sig við fram­tíð­ina er hlut­skipti nýs for­manns þýskra jafn­að­ar­manna, Andreu Nahles, fyrstu kon­unnar í því emb­ætti.

Andrea Nahles flytur ræðu 1. maí síðastliðinn.
Andrea Nahles flytur ræðu 1. maí síð­ast­lið­inn. Mynd: EPA

Nýr for­maður í flokki þýskra jafn­að­ar­manna heitir Andrea Nahles og er múr­ara­dóttir frá 500 manna þorpi skammt frá Nürnberg. Hún verður 49 ára í næsta mán­uði og hefur verið virk í póli­tík frá ung­lings­ár­unum. Hún lærði þýsku og bók­menntir í skóla og sagan segir að hún hafi verið byrjuð á dokt­ors­rit­gerð þegar flokk­ur­inn kall­aði hana til verka. Nú er hún komin á topp­inn og við blasir heldur næð­ings­samur tími. Hún þarf að stjórna land­inu í félagi við Angelu Merkel kansl­ara, en það sem gæti þó reynst snún­ara: hún þarf að koma á sáttum innan eigin flokks og hífa hann upp úr þeim öldu­dal sem hann hefur verið að síga ofan í á und­an­förnum miss­erum.

[links]Þjóð­verjar hafa velt því fyrir sér hvernig þessum tveimur konum muni ganga að vinna saman, en þetta er í fyrsta sinn sem sú staða er uppi í þýskum stjórn­málum að tveimur stærstu flokkum lands­ins sé stjórnað af konum. Þrátt fyrir að þær séu á margan hátt ólíkar í háttum og afstöðu til mála eru menn frekar bjart­sýnir á að sam­starf þeirra gangi vel. Þær eru alls ekki ókunn­ugar því Andrea Nahles var ráð­herra atvinnu- og félags­mála í rík­is­stjórn­inni sem fór frá síð­asta haust.

Í nýlegri grein í Der Spiegel eru þær bornar saman og nið­ur­staðan er sú að þær séu ólíkar. Nahles er ástríðupóli­tíkus sem á það til að missa sig í ræðu­stól og tekur stundum ákvarð­anir sem gustar af á meðan Merkel er það sem blaðið kallar á ensku „control freak“. Merkel átti oft erfitt með að þola for­vera Nahles á for­manns­stóli, Sigmar Gabriel, þegar hún frétti ekki af ákvörð­unum hans fyrr en þær birt­ust í fjöl­miðlum. Nahles gætti þess hins vegar vel meðan hún var ráð­herra að sinna til­kynn­ing­ar­skyld­unni og láta Merkel alltaf vita ef eitt­hvað var í bígerð í ráðu­neyt­inu.

[adpsot]Annað sem skilur þær að er að Merkel er dóttir prests í lút­erskri kirkju en Nahles ólst upp í kaþ­ólskri trú, hún var kór­stúlka og sækir enn messur í heima­kirkju sinni. Þetta skiptir kannski ekki miklu máli svona í dag­legri póli­tík, en merki­legt nokk er til saga af því að þessi trú­ar­legi mis­munur hafi fært þær nær hvor annarri. Þannig var að stuttu eftir að núver­andi páfi tók við emb­ætti boð­aði hann komu sína til að heim­sækja for­vera sinn í emb­ætti, en sá var þýskur. Merkel fékk boð um að mæta við athöfn sem páf­inn hugð­ist halda, en henni fannst ekki við­eig­andi að hún færi þangað, lút­ersk mann­eskjan. Þá leit­aði hún til Nahles sem var nýorð­inn ráð­herra og spurði hvort hún vildi ekki mæta í hennar stað, hvað hún þáði með þökkum.

Stjórn eða ekki stjórn, þar er vafinn

Andrea Nahles hefur gegnt ýmsum störfum í flokknum og var for­maður þing­flokks­ins þegar for­mennskan komst á dag­skrá. Hún er semsé eng­inn nýgræð­ingur í póli­tík og á sér for­tíð í vinstri­armi SPD, þótt hún hafi raunar sagt skilið við hann. Það segir sína sögu um hana. Í ráð­herra­tíð sinni inn­leiddi hún í fyrsta sinn lög­skipuð lág­marks­laun í Þýska­landi. Í aðdrag­anda þess varð hins vegar ágrein­ingur um hvernig að því skyldi staðið og hversu há þau ættu að vera. Nahles stóð með þeirri mála­miðlun sem náðst hafði í rík­is­stjórn­inni og sagði sig úr sam­tökum vinstri­s­inn­aðra jafn­að­ar­manna. Hér í landi þykir það afar eðli­legt að fólk skipi sér í fylk­ingar innan stjórn­mála­flokka og haldi sínu fram, hvað sem stjórn­ar­sátt­mál­inn segir.

Nú er Nahles komin í þá stöðu að þurfa að stilla saman strengi flokks­manna sinna og það gæti reynst þrautin þyngri. Byrjunin lofar ekk­ert sér­lega góðu. Þátttaka flokks­ins í rík­is­stjórn var sam­þykkt naum­lega í alls­herj­ar­at­kvæða­greiðslu og í for­manns­kjör­inu hlaut Nahles tvo þriðju hluta atkvæða í flokks­stjórn­inni. Þriðj­ungur for­ystu­manna flokks­ins kaus að sitja hjá eða greiða ungri og lítt þekktri konu frá Flens­borg atkvæði. Þetta er enn vand­ræða­legra í ljósi þess að Martin Schulz fékk öll atkvæðin þegar hann tók við for­mennsk­unni í fyrra. Þrátt fyrir for­tíð sína í ung­liða­hreyf­ingu og vinstri­armi flokks­ins mátti hún horfa upp á ung­liða­for­yst­una og marga vinstri­menn beita sér af full­kominni hörku gegn end­ur­nýjun rík­is­stjórnar undir for­ystu Merkel.

Þar er komið að kjarna ágrein­ings­ins innan flokks­ins. Mörgum flokks­mönnum þykir stjórn­ar­sam­starfið við kristi­lega hafa togað flokk­inn lengra inn á miðj­una en góðu hófi gegnir. Þeir vildu að flokk­ur­inn hvíldi sig í stjórn­ar­and­stöðu og not­aði næstu ár til að skerpa á sér­stöðu sinni í þýskum stjórn­málum. Þessi ágrein­ingur nær upp í for­yst­una, en þing­menn og jafn­vel ráð­herrar virð­ast oft leggja sig í líma við að skapa ágrein­ing um stefnu stjórn­ar­innar. Raunar eru jafn­að­ar­menn ekki einir um það því kristi­legir, einkum þeir sem koma frá Bæj­ara­landi og telj­ast til CSU, hafa verið dug­legir að toga í hina átt­ina, færa stjórn­ina til hægri, helst yfir í faðm hægri popúlista.

Andrea Nahles hefur farið rólega af stað í for­manns­emb­ætt­inu og virð­ist ætla að beita svip­aðri aðferð og Merkel er þekkt fyrir: Komi upp ágrein­ingur er best að bíða með ákvarð­anir í lengstu lög, það leiðir oftar en ekki til þess að vanda­málin leysi sig sjálf eða þá að and­stæð­ing­arnir missi þol­in­mæð­ina og geri ein­hverja vit­leysu. Þær eru raunar í ansi ólíkri stöðu því allir vita að þetta verður síð­asta kjör­tíma­bil Angelu Merkel. Hún er raunar byrjuð að hrókera í bak­land­inu og aldrei þessu vant hefur hún safnað í kringum sig yngri konum sem eiga að taka upp merki hennar. Hún hefur ekki verið þekkt fyrir það hingað til að hlaða sér­stak­lega undir konur í flokki sínum.

Tilvistarvandi verkalýðsflokka

Að baki þessum heima­gerðu vanda­málum lúra svo hinar stærri ógn­anir sem allir jafn­að­ar­manna­flokkar í Evrópu og víðar glíma við. Veröldin er að breyt­ast mjög ört um þessar mundir, hinar klass­ísku stéttir að riðl­ast og gömul banda­lög að leys­ast upp. Hluti af þessum ógn­unum felst í tækni­þró­un­inni. Menn sjá fram á að tölvu­tækni og sjálf­virkni muni fækka þeim veru­lega sem sinna hefð­bund­inni launa­vinnu og fram­leiðslu. Þjón­ustan verður hlut­verk æ fleiri í sam­fé­lag­inu sem blasir við. Við það lenda stétt­ar­fé­lög í stand­andi vand­ræðum og þar með einn helsti burða­rás jafn­að­ar­manna­flokk­anna.

Ég leit inn í flokks­höll SPD hér í Berlín en hún ber nafn hins goðum­líka leið­toga Willy Brandts. Þar var svo sem ekki mikið að ger­ast því þennan dag var hald­inn flokks­stjórn­ar­fundur í Wiesbaden til að kjósa Andreu Nahles. En það sem vakti athygli mína í þess­ari heim­sókn var ljós­mynda­sýn­ing sem þar var í gangi. Þar héngu á veggjum ljós­myndir sem lang­flestar voru teknar á sjötta og sjö­unda ára­tugnum og sýndu verka­menn í átökum vegna atvinnu­leysis og bágra kjara í námum og iðn­fyr­ir­tækjum Ruhr-hér­aðs­ins. Þar var að hefj­ast þróun sem nú sér fyrir end­ann á: Kola- og járn­námurnar sem á sínum tíma lögðu grunn­inn að hinu þýska iðn­veldi voru að tæm­ast og eig­endur þeirra beittu ýmsum fanta­brögðum til þess að lengja líf­tíma þeirra. Nú eru þessar námur að heita má allar aflagðar, kol eru ekki vin­sæl fram­leiðslu­vara á tímum vind­myll­unnar og hefð­bundin iðn­fram­leiðsla hefur að stórum hluta flust til fátæk­ari ríkja þar sem umhverf­is­vernd er slak­ari en hér í Þýska­landi.

Mér fannst þessi for­tíð­ar­þrá sem birt­ist í mynd­unum á sýn­ing­unni í Húsi Willy Brandts nokkuð sterk áminn­ing um það að heim­ur­inn hefur breyst frá vel­meg­un­ar­árum jafn­að­ar­manna­flokk­anna. Spurn­ingin er sú hvort flokk­unum lán­ast að laga stefnu sína og starfs­hætti að hinni staf­rænu nútíð og fram­tíð sem óum­flýj­an­lega verður hlut­skipti þeirra að bregð­ast við á næstu árum – sé það ekki þegar orðið of seint.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár